Lægðagangur næstu daga býður upp á sígilt haustveður Atli Ísleifsson skrifar 24. september 2025 07:25 Hiti verður á bilinu níu til fimmtán stig, mildast norðan heiða. Vísir/Vilhelm Nokkrar lægðir munu fara fram hjá landinu næstu daga og bjóða upp á sígilt haustveður.
Á vef Veðurstofunnar segir að í dag verði suðlæg átt, átta til fimmtán metrar á sekúndu, og skúrir, en líkur á stöku eldingum á sunnanverðu landinu. Áfram verður úrkomulítið á Norðurlandi og milt í veðri. Hiti verður á bilinu níu til fimmtán stig, mildast norðan heiða. „Dregur úr vindi og skúrum á morgun, en hvessir seinnipartinn og fer að rigna hressilega. Búast má við talsverðri eða mikilli úrkomu sunnantil undir kvöld og um nóttina. Á Norðurlandi er yfirleitt þurrt, en rigning af og til um kvöldið,“ segir á vef Veðurstofunnar. Spákort fyrir klukkan 14Veðurstofan Veðurhorfur á landinu næstu daga Á fimmtudag: Sunnan og suðaustan 8-15 m/s og skúrir, en þurrt norðaustanlands. Austlægari og bætir verulega í úrkomu á sunnanverðu landinu seinnipartinn, með talsverðri eða mikilli rigningu suðaustantil, en úrkomuminna norðaustanlands. Hiti 9 til 14 stig. Á föstudag: Suðaustan 13-23, hvassast suðvestantil og allra austast. Talsverð eða mikil rigning, einkum á suðaustanverðu landinu, en úrkomuminna norðaustanlands. Dregur úr vindi og úrkomu seinnipartinn. Hiti 11 til 16 stig. Á laugardag: Suðlæg átt 5-13 og skúrir, en bjart á Norður- og Austurlandi. Hiti 8 til 13 stig. Á sunnudag: Suðlæg átt og dálítil væta, en vaxandi suðaustanátt og fer að rigna sunnan- og vestanlands síðdegis. Talsverð eða mikil úrkoma sunnantil um kvöldið. Hiti breytist lítið. Á mánudag: Suðlæg átt með rigningu, en lengst af þurrt á Norðausturlandi. Talsverð úrkoma suðaustantil framan af degi. Milt í veðri. Á þriðjudag: Útlit fyrir suðvestanátt með vætu, einkum vestantil á landinu. Heldur kólnandi, einkum norðvestantil.
Veður Mest lesið Ingó veðurguð hafði betur í Landsrétti Innlent Söknuðu nærgætni og umhyggju eftir háska á Ibiza Innlent Inga vildi alls ekki svara spurningum fréttamanns Innlent Kristrún tilbúin í aðgerðir Innlent Alvarlega slasaður eftir fall af svölum Innlent Kveður svefnlyfin eftir átján ára notkun Innlent „Vitum ekki hundrað prósent hvað er í þessu“ Innlent „Ég væri að ljúga ef ég segði að það væri tilviljun“ Innlent „Ég er bara ótrúlega leiður yfir þessu“ Innlent Uppsagnir hjá Klettabæ Innlent Fleiri fréttir Vara við stormi á norðaustanverðu landinu Auknar líkur á skriðuföllum á Suðausturlandi og Austfjörðum Gular viðvaranir í nótt vegna rigningar Áfram spáð talsverðri úrkomu norðvestanlands Enn hætta á skriðum Líkur á slyddu og snjókomu á Vestfjörðum Viðvaranir fyrir vestan í allan dag Rigning og vindur Gular viðvaranir á morgun Rigning, rigning, rigning Gular viðvaranir á Suður- og Vesturlandi Gul viðvörun vegna hvassviðris gefin út Hvessir allverulega á morgun Bjart framan af en skúrir síðdegis Skýjað og dálítil væta víðast hvar Rigning og víða hvasst um nær allt land Vara við hvössum vindum í nótt Von á vaxandi suðaustanátt og rigningu Haustið mætir á miðvikudaginn Rigning á Norðurlandi en að mestu þurrt annars staðar Næturfrost norðaustantil Umhleypingar næstu daga Vætusamt veður í kortunum Áfram rigning og lægðagangur Bætir í úrkomu síðdegis Allt að átján stiga hiti í dag Hviður allt að 30 metrar á sekúndu á Suðausturlandi Gul veðurviðvörun og sextán stiga hiti Gul viðvörun vegna hvassviðris á Suðausturlandi Vara við snörpum hviðum Sjá meira