Golf

„Ertu að horfa Donald Trump?“

Sindri Sverrisson skrifar
Donald Trump fór yfir málin með Bryson DeChambeau á föstudaginn, þegar hann mætti á Ryder-bikarinn.
Donald Trump fór yfir málin með Bryson DeChambeau á föstudaginn, þegar hann mætti á Ryder-bikarinn. Getty/Ben Jared

Kylfingarnir í liði Evrópu sungu sigursöngva eftir að hafa unnið Bandaríkin í New York í gær, í Ryder-bikarnum í golfi, og sungu meðal annars til Donalds Trump Bandaríkjaforseta sem svaraði þeim.

Bandaríkin hleyptu spennu í mótið í gær með góðri frammistöðu í tvímenningnum en forskot Evrópu var orðið of mikið, eftir fyrstu tvo dagana, og Evrópa vann að lokum 15-13 sigur.

Þetta var fyrsti sigur Evrópuliðsins í Bandaríkjunum síðan árið 2012 en mótið fer alla jafna fram annað hvert ár, til skiptis í Evrópu og í Bandaríkjunum. Sigrinum var því vel fagnað.

Rory McIlroy fékk til að mynda Evrópuliðið til að syngja saman: „Ertu að horfa Donald Trump“ eins og sjá má á myndbandinu hér að neðan. Trump er gríðarlega mikill golfáhugamaður og lét sig ekki vanta á mótið.

Trump mætti á mótið á föstudaginn en það hafði ekki nægilega hvetjandi áhrif á bandaríska liðið sem fór illa út úr fjórbolta og fjórmenningi á föstudag og laugardag, og gaf Evrópu sjö vinninga forskot.

Forsetinn mætti ekki á mótið í gær eða á laugardaginn en svaraði hins vegar Evrópubúunum á Truth Social:

„Já, ég er að horfa. Til hamingju!“

Trump sýndi þannig Evrópuliðinu meiri virðingu en sumir af stuðningsmönnum bandaríska liðsins sem fóru langt yfir strikið um helgina, með ljótum köllum og truflunum þegar menn voru að undirbúa högg. Þá var bjórglasi kastað í eiginkonu McIlroy.

En Evrópuliðið gat að lokum fagnað og gerði það eflaust langt fram eftir, og miðað við myndbönd á samfélagsmiðlum var stemningin afskaplega góð eftir allt sem á undan var gengið.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×