Sveppi, Ari Eldjárn og Valdimar minnast Róberts Arnar á tónleikum Lovísa Arnardóttir skrifar 30. september 2025 13:57 Róbert Örn spilaði aðallega á bassa. Aðsend Hljómsveitin Ég kemur saman á ný og heldur sérstaka tónleika í Bæjarbíói, Hafnarfirði þann 30. október 2025, til heiðurs leiðtoga, söngvara, laga- og textahöfundi sveitarinnar, Róberti Erni Hjálmtýssyni. Meðlimir Ég fá til liðs við sig á tónleikunum fjölda gestasöngvara eins og Valdimar Guðmundsson, Eyþór Inga, Heiðu Eiríks, Bjarka Sig, Ara Eldjárn, Örn Eldjárn og Sverri Þór Sverrisson (Sveppi).
Róbert Örn féll frá í júní í fyrra, þá 47 ára gamall. Á heimasíðunni Glatkistunni segir að Róbert hafi verið Breiðhyltingur í húð og hár en hafi verið fæddur í Svíþjóð. Hann hafi stundað íþróttir á æskuárunum en á unglingsaldri hafi tónlistin tekið yfir og bassi orðið hans helsta hljóðfæri. Í tilkynningu um tónleikana segir að plata sveitarinnar, Plata ársins, verði flutt í tilefni af tuttugu ára afmæli hennar. Einnig verði önnur vinsæl lög frá ferli hljómsveitarinnar flutt. „Ég var einstök sveit og munaði þar mest um ótrúlega sýn Róberts á hlutina. Gagnrýnendur lofuðu sveitina jafnan í hástert, m.a. skrifaði Arnar Eggert Thoroddsen þessi orð um Róbert: „...þeir fáu sem hlýtt hafa á tónlist hans og sótt tónleika tilbiðja hann sem snilling (ég þar með talinn) á meðan restin af heiminum missir því miður af.“,“ segir í tilkynningunni um tónleikana.
Tónleikar á Íslandi Tónlist Hafnarfjörður Mest lesið Nicole birtir myndir úr Íslandsheimsókninni: „Við elskum ykkur Ísland!!“ Lífið Tekjuhæstu listamennirnir árið 2025 Lífið Sögðu já þar sem ástarsagan hófst Lífið „Ég vildi verða þrítug í Pucci“ Lífið Jóhann Kristófer og Nadía Áróra slá sér upp Lífið Sannkallað stjörnubrúðkaup Katrínar Tönju og Brooks Lífið Sunneva Einars áfram langtekjuhæsti áhrifavaldurinn Lífið Gamall klassíker fær helvíti góða yfirhalningu Lífið samstarf Frank Beard er látinn 77 ára að aldri Lífið „Ógleymanlegt söngævintýri“ með Nicole Kidman Lífið Fleiri fréttir Eitt myndband selji upp heilu lagerana Byrjaði sem þráhyggja fyrir rapplagi á spítala Jón Viðar fellir dóm yfir Ódysseifskviðu án þess að sjá hana Hulda Hákon, Jón Óskar og Krassasig á ListaVestrinu Aðsóknarmet slegið á brúðulistahátíð á Hvammstanga Dreymdi um að á bókasafninu væri bók eftir sig Skólastika Gamalíelsdóttir vekur undrun Íslendinga Sýning Bjarkar bæði væmin og stórkostleg og leggur til stofnun Bjarkarsafns Sjá meira