Betri mönnun er lykillinn Skúli Helgason og Sabine Leskopf skrifa 2. október 2025 16:02 Miklar áskoranir varðandi mönnun hafa mætt leikskólum um land allt undanfarin ár og áratugi.Ljóst er að vanhugsaðar ákvarðanir Alþingis um lengingu kennaranáms árið 2008 höfðu þau óæskilegu en að mörgu leyti fyrirsjáanlegu áhrif að aðsókn ungs fólks í kennaranám hrundi og verulegur skortur á leikskólakennurum fylgdi í kjölfarið sem enn hefur ekki tekist að vinna til baka þrátt fyrir batamerki hin síðari ár. Eitt leyfisbréf þvert á skólastíg hefur einnig haft í för með sér að missa menntaða leikskólakennara til annarra skólastíga. Reykjavíkurborg steig fram fyrir skjöldu árið 2018 með aðgerðum til að bæta starfsaðstæður í leikskólum, sem drógu úr álagi á starfsfólk og börn og önnur sveitarfélög hafa fylgt í kjölfarið með aðgerðum undanfarin misseri til að mæta mönnunarvandanum. Einnig var mikil áhersla lögð á að kynna bæði starfið og námið betur fyrir ungu fólki. Minnkum óvissu og fáliðun Nú hefur þverpólitískur stýrihópur á vegum borgarinnar skilað fyrsta hluta tillagna sinna sem hafa það markmið að bæta enn frekar mönnun og starfsaðstæður á leikskólum borgarinnar, minnka fyrirvaralausar fáliðunaraðgerðir og auka þannig fyrirsjáanleika starfseminnar fyrir foreldra, börn og starfsfólk auk þess að hvetja foreldra sem það geta til að stytta dvalartíma í því augnamiði að minnka álag á starfsemina. Þessar tillögur koma til viðbótar jákvæðum áhrifum nýrra kjarasamninga við leikskólakennara í byrjun árs sem borgaryfirvöld studdu með ráðum og dáð, ekki síst núverandi borgarstjóri. Samvera barna og foreldra er dýrmæt fyrir þroska sérstaklega yngstu barna, hins vegar er mikilvægt að sveitarfélög séu meðvituð um það að aðstæður foreldra og forráðamanna eru mismunandi og svigrúm þeirra sömuleiðis til að minnka við sig vinnu til að auka samveru með börnum sínum. Það hefur því verið leiðarljós stýrihópsins að beita hvötum frekar en boðum og bönnum til að hafa jákvæð áhrif á umgjörð leikskólastarfsins þ.m.t. lengd vistunartímans. Jákvæðir hvatar og tekjutillit Markmið tillagnanna sem nú eru kynntar er að standa vörð um faglegt leikskólastarf og tryggja meiri stöðugleika fyrir bæði foreldra, börn og starfsfólk. Þær snúa m.a. að skipulagi leikskóladagsins, dvalartíma barna og gjaldskrá leikskóla. Tillögunum er ætlað að vinna gegn ófyrirséðum fáliðunaraðgerðum vegna mönnunarvanda, sem reynast foreldrum afar íþyngjandi.Aðgerðirnar miða að því að skapa meiri fyrirsjáanleika og draga úr álagi samhliða styttri vistunartíma barna, samhliða því sem staðinn er vörður um faglegt starf leikskóla. Foreldrar hafa áfram val um lengd vistunartíma barna sinna en kynntir eru til sögunnar fjárhagslegir hvatar í formi verulegs afsláttar af leikskólagjöldum ef vistunartíminn er styttur. Sá afsláttur hækkar í hlutfalli við styttri vistunartíma. Þá er sérstakur afsláttur veittur fyrir foreldra sem ekki skrá börn sín í vistun eftir kl. 14 á föstudögum. Markmiðið með þeirri aðgerð er að nýta þann tíma til að mæta skuldbindingum borgarinnar gagnvart styttingu vinnuviku starfsfólks, sem er verkefni sem borgin þróaði með góðum árangri á sínum tíma og hefur síðan verið staðfestur í kjarasamningum fjölmennra stéttarfélaga. Við jafnaðarfólk í Samfylkingunni höfum lagt sérstaka áherslu á að standa vörð um efnaminni fjölskyldur við útfærslu tillagnanna og birtist það m.a. í sérstöku tekjutilliti sem ætlað er að verja hag þeirra sem lægstar hafa tekjurnar. Þeir munu njóta allt að 80% afsláttar af vistunargjöldum leikskóla ef tillögurnar verða að veruleika, jafnt einstaklingar sem sambúðarfólk en hingað til hafa einungis einstæðir foreldrar notið mestu afsláttarkjara án tillits til tekna, auk forgangshópa námsmanna, öryrkja og starfsfólks leikskóla. Samráð framundan Tillögurnar hafa verið kynntar í borgarráði, verða kynntar í skóla- og frístundaráði í næstu viku og fara svo í samráðsgátt borgarinnar, þar sem foreldrar, starfsfólk og önnur áhugasöm eru hvött til að senda inn sín sjónarmið, ábendingar og hugmyndir varðandi tillögurnar og útfærslu þeirra. Samráðsferlið stendur yfir frá 15.-29. október og í kjölfarið verður unnið úr athugasemdum og ábendingum áður en tillögurnar koma til afgreiðslu hjá borginni. Við hvetjum allt áhugafólk um faglegt og gott leikskólastarf til að taka þátt í samráðinu og taka þátt í því með okkur að bæta skipulag og umgjörð leikskólastarfs í borginni. Við erum sannfærð um að með góðu samstarfi getum við unnið gegn því að börn séu send heim með litlum fyrirvara vegna fáliðunar sem bitnar mest á þeim sem hafa minnsta svigrúm í vinnunni eða baklandi. Fleiri tillögur til að létta álagi á öflugt starfsfólk leikskólanna og bæta starfsaðstæður þeirra munu fylgja fljótlega. Höfundar eru borgarfulltrúar Samfylkingarinnar og fulltrúar í stýrihópi um breytingar á reglum um leikskólastarf. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Skúli Helgason Sabine Leskopf Borgarstjórn Reykjavík Leikskólar Skóla- og menntamál Skoðun: Sveitarstjórnarkosningar 2026 Mest lesið Hver á arfinn? Gunnar Ármannsson Skoðun Í hvaða vitleysu erum við stödd? Ragnheiður Stephensen Skoðun Skuggamansal á Íslandi Sævar Þór Jónsson Skoðun Grateful Dead á Sæbrautinni Júlíus Valsson Skoðun Skattlagning til velsældar Hannes Lúðvíksson Skoðun Baráttan er ekki búin Mordekaí Elí Esrason Skoðun Til hamingju Reykjanesbær með leikskólana okkar Guðný Birna Guðmundsdóttir Skoðun Er Þórarinn Tyrfings nýja framtíð Vogs? Bergþóra Haralds Eiðsdóttir Skoðun Þjóðarsjúkrahúsið seinkar Sigurður Sigurðsson Skoðun Við erum ekki jafn ömurleg og við höldum Þorsteinn Tjörvi Sigurðsson Skoðun Skoðun Skoðun Landsleikar RÚV! Sigurlín Margrét Sigurðardóttir skrifar Skoðun Við erum ekki jafn ömurleg og við höldum Þorsteinn Tjörvi Sigurðsson skrifar Skoðun Bjórinn sem slapp við suðurferðina Elís Pétur Elísson skrifar Skoðun Í hvaða vitleysu erum við stödd? Ragnheiður Stephensen skrifar Skoðun Skattlagning til velsældar Hannes Lúðvíksson skrifar Skoðun Baráttan er ekki búin Mordekaí Elí Esrason skrifar Skoðun Hver á arfinn? Gunnar Ármannsson skrifar Skoðun Að tala um dauðann er að tala um lífið Ingrid Kuhlman skrifar Skoðun Til hamingju Reykjanesbær með leikskólana okkar Guðný Birna Guðmundsdóttir skrifar Skoðun Skuggamansal á Íslandi Sævar Þór Jónsson skrifar Skoðun Grateful Dead á Sæbrautinni Júlíus Valsson skrifar Skoðun Þjóðarsjúkrahúsið seinkar Sigurður Sigurðsson skrifar Skoðun Er gervigreindin spegill mannkyns Kristján Logason skrifar Skoðun Er Þórarinn Tyrfings nýja framtíð Vogs? Bergþóra Haralds Eiðsdóttir skrifar Skoðun Tólf ára ákvað ég að gera bíó Arnar Benjamín Kristjánsson skrifar Skoðun Hvað segja gögnin í raun um ásakanir á hendur séra Friðriki Theódór S. Halldórsson skrifar Skoðun Það er sárt að tapa kosningum Heimir Már Pétursson skrifar Skoðun Er enn þess virði að leggja á sig langt háskólanám? Gunnar Alexander Ólafsson skrifar Skoðun Engin fjölskylda á að þurfa að standa ein Eydís Ásbjörnsdóttir skrifar Skoðun Þegar reglurnar gilda ekki jafnt Ágúst Karlsson skrifar Skoðun Utanríkisstefna án ábyrgðar? Erna Bjarnadóttir skrifar Skoðun Heiður hússins: Um kynferðisofbeldi í nánum samböndum Hrafnhildur Kjerúlf Sigmarsdóttir skrifar Skoðun PISA-skellur en hvað svo? Inga Sæland skrifar Skoðun Hver verndar velferð barna þegar náttúran blandar kynjunum? Jón Þór Ólafsson skrifar Skoðun Einhliða bergmálshellir og heimildir sem hrynja Lilja Benatov Hjartar skrifar Skoðun KEMUR TÓLFAN? Hilmar Jökull Stefánsson skrifar Skoðun Ábyrgðinni má ekki útvista til tækninnar Karen Ósk Nielsen Björnsdóttir skrifar Skoðun Gervigreindin kaupir ekki það sem hún skilur ekki Jens Gunnarsson skrifar Skoðun Fólkið á bak við öruggt flug Elísabet Heiða Valdemarsdóttir skrifar Skoðun Fjöldi opinberra starfsmanna - deilt um keisarans skegg Ingvar Freyr Ingvarsson skrifar Sjá meira
Skoðun Heiður hússins: Um kynferðisofbeldi í nánum samböndum Hrafnhildur Kjerúlf Sigmarsdóttir skrifar