Fyrrverandi starfsmenn endurvekja Lagningu Árni Sæberg skrifar 29. október 2025 12:21 Lagning starfaði í nokkur ár við Keflavíkurflugvöll. Vísir/Vilhelm Hópur fyrrverandi starfsmanna Lagningar, bílastæðafyrirtækis á Keflavíkurflugvelli, hefur endurvakið félagið, sem fór í gjaldþrot í september.
Lagning, sem hafði lagt bílum ferðalanga á leið úr landi á Keflavíkurflugvelli undanfarin ár, var tekið til gjaldþrotaskipta í september. Nú hefur þeim sem stundað höfðu viðskipti við fyrirtækið borist tölvubréf frá því. „Við vildum tilkynna þér að nýjir eigendur hafa nú tekið við vörumerki Lagningar. Við erum hópur fyrrum starfsmanna Lagningar og þekkjum því reksturinn vel og vitum nákvæmlega hvernig við getum gert betur,“ segir í tölvubréfinu. Þá segir að markmið nýrra eigenda sé að bera þjónustustig Lagningar á nýjar hæðir. En til þess muni þeir ekki taka við jafnmörgum bílum og áður fyrr. Fyrirtækið var stofnað árið 2021 af Theódóri Ágústi Magnússyni, Jóhanni Eggertssyni, Írisi Hrund Sigurðardóttur og Sigurði Smára Gylfasyni. Þjónusta Lagningar fól í sér að viðskiptavinir á leið úr landi afhentu starfsmanni Lagningar bíl sinn við Keflavíkurflugvöll. Starfsmaður ók bílnum á bílastæði í Reykjanesbæ og færði svo á bílastæði við flugstöðina við heimkomu. Þá bauð Lagning upp á aukaþjónustu fyrir þá sem vildu svo sem þrif og bón á bílum. Fyrirtækið velti 148 milljónum króna árið 2022 og hagnaðist um 12 milljónir króna. Árið eftir varð hins vegar 7,7 milljóna króna tap á rekstrinum og eigið féð 14,1 milljónir króna í árslok 2023. Ekki hefur verið birtur ársreikningur fyrir árið 2024.
Keflavíkurflugvöllur Suðurnesjabær Bílastæði Mest lesið Fimm frumkvöðlar: Afarnir, pabbarnir og nú 10 ára sonurinn Atvinnulíf Aflýsa sex flugferðum vegna áhafnarskorts Viðskipti innlent Hröð og slæm þróun á fasteignamarkaði Viðskipti innlent „Bað maðurinn minn þig um að spyrja mig að þessu?“ Atvinnulíf Kaupa Sóma og Þykkvabæ Viðskipti innlent Uppsagnir hjá Bláa lóninu Viðskipti innlent Atvinnuleysi lækkar en óvissa eykst Viðskipti innlent Prentmet Oddi kaupir Ísafoldarprentsmiðju Viðskipti innlent Sendir flugmönnum tóninn: „Maður mjólkar ekki dauða kú“ Viðskipti innlent Greiða sér rúmlega tvo milljarða í arð Viðskipti innlent Fleiri fréttir Hröð og slæm þróun á fasteignamarkaði Aflýsa sex flugferðum vegna áhafnarskorts Atvinnuleysi lækkar en óvissa eykst Prentmet Oddi kaupir Ísafoldarprentsmiðju Kaupa Sóma og Þykkvabæ Ákvörðun um næsta fund tekin yfir helgina Eftir sumarið tekur við óvissa Yrði fjórði stærsti lífeyrissjóðurinn Kjörin formaður SÍA Sendir flugmönnum tóninn: „Maður mjólkar ekki dauða kú“ Meira atvinnuleysi og fjöldauppsagnir í maí Hásetar fengu tæpar níu milljónir fyrir fimmtán daga Flugrisi eignast allan flugflota Air Atlanta Greiða sér rúmlega tvo milljarða í arð Fá að kaupa Pei og Motus „Við þurfum að fara að spýta í lófana“ Gervigreindargjöf til lýðræðisins Hópuppsögn hjá Rapyd á Íslandi Helmingur Air Atlanta seldur úr landi Uppsagnir hjá Bláa lóninu Segir vanda Icelandair djúpstæðari en samningar flugmanna Fljúga til Færeyja árið um kring Verðbólga hjaðnar minna en vonir stóðu til Verslunin Air lokar í Kringlunni Fundi frestað til morguns Beina því til Storytel að gæta varúðar í markaðssetningu Skipulagsbreytingar hjá Símanum Advania lýkur kaupum á Evolv Stjórn Icelandair með fullt traust til Boga Hyggja á hóteluppbyggingu á milli Hveragerðis og Selfoss Sjá meira