San Marínó gæti tryggt sig í umspil um HM-sæti með því að tapa nógu stórt Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 12. nóvember 2025 11:30 Það á ekki að vega gott fyrir lið að tapa stórt en það gæti verið það fyrir landslið San Marínó í þessum glugga. Getty/Jonathan Moscrop Íslenska karlalandsliðið dreymir um sæti í umspili um laus sæti á HM og þarf mjög hagstæð úrslit úr leikjum sínum til að ná þangað. Önnur smáþjóð í Evrópu er hins vegar í allt annarri stöðu.
Undankeppni HM í fótbolta gæti þróast þannig að líkurnar á því að San Marínó komist í umspil gætu aukist með því meiri mun sem liðið tapar á móti Rúmeníu. Breska ríkisútvarpið fór yfir stöðuna. Þessi fáránlega atburðarás gæti orðið að veruleika vegna umspilskerfis Evrópu þar sem fjórir riðilsigurvegarar úr Þjóðadeildinni koma inn, á sama tíma og markamunur spilar hlutverk í undankeppni HM. Markatalan er 1-32 San Marínó hefur hingað til spilað sjö leiki í sínum riðli og er með sjö töp í röð og markamuninn 1-32 eftir meðal annars 0-10 tap fyrir Austurríki í október. We've warned about it on Thursday, but now it's even more likely to happen.If 🇧🇦 BiH do not beat 🇷🇴 Romania, it will be in 🇸🇲 San Marino's best interest to LOSE to 🇷🇴 Romania last matchday by AS MANY GOALS AS POSSIBLE to maximize their chances of reaching WC playoffs via UNL.… pic.twitter.com/NSJHgRxSwb— Football Meets Data (@fmeetsdata) October 12, 2025 Þær tólf þjóðir sem vinna sinn riðil fara beint á HM, en þeir tólf sem lenda í öðru sæti fara í umspil þar sem einnig koma inn þeir fjórir hæst settu af þeim sem unnu sinn riðil í Þjóðadeildinni af þeim sem eru ekki þegar komnir áfram eða í öðru sæti. San Marínó hefur verið í D-deild Þjóðadeildarinnar en vann sinn riðil þar fyrir ofan Liechtenstein og Gíbraltar. Eins og staðan er núna er San Marínó lægst sett af fjórtán riðilsigurvegurum í Þjóðadeildinni. Það þrengir hópinn Margir af riðilsigurvegurum Þjóðadeildarinnar munu enda í fyrsta eða öðru sæti í sínum undankeppnisriðlum fyrir HM og það þrengir hópinn hjá þjóðum sem eru að sækjast eftir aukatækifæri í umspilinu. If you thought this day couldn't get more crazy, check this out:‼️ San Marino 🇸🇲 may be only 2 games away from qualifying to the 2026 World Cup ‼️How is that possible?Best 4 UNL group winners who do not finish Top 2 in their WC qualifying group will go to WC play-offs.If… pic.twitter.com/np9ceMgKCE— Football Meets Data (@fmeetsdata) November 18, 2024 Eins og staðan er núna stefnir í að Wales, Rúmenía, Svíþjóð og Norður-Írland komist í svokallað umspil í gegnum Þjóðadeildina, á meðan Moldóva og San Marínó eru einu riðilsigurvegararnir úr Þjóðadeildinni sem gera það ekki miðað við núverandi stöðu í töflunni. Kostur ef Rúmenía nær öðru sætinu Það getur þó breyst, og fyrir San Marínó væri það kostur að Rúmenía tryggi sér annað sætið í H-riðli undankeppni HM á undan Bosníu og Hersegóvínu – þannig að annað sæti opnast í „Þjóðadeildarröðinni“. Rúmenar mæta Bosníu á útivelli þremur dögum áður en allt ræðst á heimavelli gegn San Marínó. Ef Rúmenía og Bosnía enda riðlakeppnina með jafnmörg stig mun markamunur ráða úrslitum. Eins og staðan er núna eru Bosníumenn þremur stigum á undan Rúmenum, en þeir eiga útileik gegn toppliði Austurríkis í síðasta leik. Aðeins þrír sigrar í sögunni Rúmenía gæti þurft á stórsigri að halda til að komast fram úr Bosníumönnum á síðasta degi undankeppninnar – og um leið mögulega tryggt San Marínó ótrúlegt umspilssæti. San Marínó hefur aldrei áður verið nálægt því að komast á stórmóti. Landsliðið hefur unnið þrjá leiki í sögunni, gert tíu jafntefli og tapað 206 leikjum.
HM 2026 í fótbolta Mest lesið Utan vallar: Sjúklingurinn er að deyja Enski boltinn Þurfti að spretta í markið eftir 102 klukkutíma á hlaupum Sport Belgísku bakgarðskóngarnir með lygilegt heimsmet Sport Veigar Páll í árs bann eftir fall á lyfjaprófi Körfubolti Vinirnir deila heimsmetinu en hvorugur er sigurvegari Sport Þurftu að biðja Infantino afsökunar Fótbolti Martröð hjá Manchester United við Como-vatnið Fótbolti Hitti holu í höggi á fyrsta hring ævinnar Golf „Þetta voru meira en vonbrigði“ Fótbolti Þjóðhátíð er Gunnar Lárus kom heim á Reyðarfjörð Sport Fleiri fréttir Svaf ekki í margar nætur áður en hann tók ákvörðunina um Arsenal Hituðu upp fyrir United-leikinn með því að bursta AC Milan Orri Steinn skoraði í Evrópudeildinni „Á morgun mun ég reima á mig takkaskóna í síðasta sinn“ Þrír Íslendingar í byrjunarliði Brann í Evrópusigri Sky Sports: Carrick mun stýra Man. Utd gegn Bournemouth Líf tilnefnd til tvennra verðlauna Matthías hættur hjá Val Vopnaðir ræningjar brutust inn á heimili fyrrum markmanns PSG Hverjir eru þessir 19 Íslendingar sem hafa spilað í Meistaradeildinni? Vill fá annan þjálfara eins og Amorim til að hreinsa til Belgarnir láta Elísabetu fara Utan vallar: Sjúklingurinn er að deyja Nagelsmann efstur á lista verði Carrick rekinn Sagði leikmönnum sínum að slaka á í lok leiksins Svona missti Aron markið sögulega Sjáðu jöfnunarmark Rice og stórtap Manchester United „Kevin sér opnar hraðbrautir þar sem aðrir sjá umferðarteppu“ Barcelona kærir PSG vegna móðgandi skilaboða Þurftu að biðja Infantino afsökunar „Það er augljóst að Kane á að vinna Ballon d'Or“ Diomande með frábært mark í sigri Real Madrid Kane stríddi löndum sínum en Arsenal fer heim með stig „Þetta voru meira en vonbrigði“ „Það er þjálfarans og starfsliðsins að meta það, ekki mitt“ Hákon með stoðsendingu en Lille við botninn eftir tap Martröð hjá Manchester United við Como-vatnið Selma Sól skoraði í bikarsigri Íslenskir dómarar í Sambandsdeild en Danir horfa á skjáinn Messi klæddist Como-treyju Sjá meira