Óli Jó segir að Geir hafi rekið hann þrisvar Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 13. nóvember 2025 08:02 Geir Þorsteinsson réði bæði og rak Ólaf Jóhannesson sem landsliðsþjálfara. Vísir/Daníel Þór/Getty/Andrew Milligan Ólafur Jóhannesson tók inn í landsliðið marga af þeim leikmönnum sem tilheyra nú gullkynslóð íslenska landsliðsins. Ólafur ræðir þessi ár í nýrri ævisögu sinni en einnig samskipti sín við þáverandi formann Knattspyrnusambands Íslands, Geir Þorsteinsson.
Eitt stærsta málið sem kom upp á tíma Ólafs Jóhannessonar sem landsliðsþjálfara var þegar hann fékk ekki að velja bestu leikmennina í liðið þar sem 21 árs landsliðið var á sama tíma að tryggja sig inn á stórmót. Kynslóðin sem fór á EM með 21 árs landsliðinu átti síðan eftir að skila Íslandi inn á bæði EM og HM í fyrsta sinn en þá var Ólafur ekki lengur landsliðsþjálfari. Út er komin ævisaga knattspyrnuþjálfarans Ólafs Jóhannessonar. Bókin: Óli Jó – fótboltasaga, er rituð af Ingva Þór Sæmundssyni íþróttafréttamanni og í henni segir Ólafur sem kom víða við á sínum ferli, þar á meðal þegar hann var landsliðsþjálfari á árunum 2007 til 2011. Reifst hrikalega við Geir „Þegar þetta mál með U-21 árs liðið kom upp reifst ég hrikalega við Geir; sagði honum mína skoðun og spurði hvað hefði breyst. Hvað gerði hann sem Eyjólfur vissi? Ég gekk á hann. Hvað gerðist á þessum tveimur dögum? Var honum hótað? Það var einhver pressa í þjóðfélaginu að U-21 árs liðið fengi forgang en það voru skiptar skoðanir á því. En Geir bar því við að stjórnin hefði ákveðið þetta. Ég hélt að menn stæðu á bak við það sem formaðurinn segði og hann hafði sagt við mig að A-landsliðið gengi fyrir,“ sagði Ólafur í bókinni og hann hélt áfram að segja frá samskiptum sínum við Geir. „Eftir þessa uppákomu kom ýmislegt upp milli okkar Geirs sem mér fannst ósanngjarnt gagnvart mér. Við tókumst á og í tvígang þegar við vorum erlendis, og höfðum báðir áfengi um hönd, rak hann mig en ég tók ekki mark á honum. Það var þungt á milli okkar Geirs um tíma en við erum fínir mátar í dag og ég virði hann. Geir gerði ótrúlega mikið fyrir KSÍ og var klókur í störfum sínum fyrir sambandið,“ sagði Ólafur. Staðan virðist henta útlendingum betur Ólafur var látinn fara sem landsliðsþjálfari eftir undankeppni EM 2012. Við liðinu tók Svíinn Lars Lagerbäck. Ólafur Jóhannesson í einu landsliðsverkefninu sínu.Getty/Steve Welsh „Á einhverjum tímapunkti sögðu þeir hjá KSÍ mér að samningur minn yrði ekki endurnýjaður. Það var allt í lagi. Ég var ekkert fúll yfir því og það kom mér ekki á óvart. Ég vissi að þetta væri komið gott. Þeir sögðu jafnframt að þeir ætluðu að ráða erlendan þjálfara. Einhverra hluta vegna virðist þessi staða henta útlendingum betur,“ sagði Ólafur. „Ég hugsa að það sé mest til komið vegna þess að allir leikmennirnir spila erlendis því þú virðist ekki eiga neinn einasta möguleika á að spila fyrir íslenska landsliðið ef þú leikur á Íslandi,“ sagði Ólafur en hann sagði jafnframt að síðasti landsleikurinn hans, sem var á móti Portúgal í október 2011, hafi verið einn eftirminnilegasti leikurinn á ferli hans sem landsliðsþjálfari. Leikurinn tapaðist 5-3.
Landslið karla í fótbolta Mest lesið Missti af dýrmætum stigum gegn meisturunum Handbolti „stúkan er of þögul“ Fótbolti Ný rangstöðutækni á HM Fótbolti Danir andlausir gegn Kongó Fótbolti „Það er tilfinningaþrungið að kveðja Old Trafford“ Enski boltinn Vardy sýnir myndir frá innbrotinu á heimilið Fótbolti Þór Þorlákshöfn sækja sér leikmann Körfubolti Bjóða upp á áfanga í körfuboltadómgæslu á Króknum næsta vetur Körfubolti „Þetta hefði ekki getað endað betur“ Handbolti Ráða Svíann sem var einu sinni orðaður við íslenska landsliðið Handbolti Fleiri fréttir „stúkan er of þögul“ ÍBV riftir samning Filip Stuparevic Tryggði sigurinn með glæsimarki Danir andlausir gegn Kongó Lofar nýjum stjörnuleikmanni í Real Madrid á morgun Vill nota Liverpool-strákinn í annarri stöðu en hann er vanur Messi æfði einn viku fyrir Íslandsleikinn „Það er tilfinningaþrungið að kveðja Old Trafford“ Á að endurvekja þungarokksfótboltann og ánægjuna á Anfield „Allar spár kolrangar og vitlausar“ HM-minning: Þegar Norður-Kórea komst lengra en Brasilía á HM Vardy sýnir myndir frá innbrotinu á heimilið Listamaður lögsækir FIFA fyrir að mála yfir myndina sína Norðmenn mæta með nýja útgáfu af Víkingaklappinu á HM í sumar Manchester United kaupir Ederson Ný rangstöðutækni á HM Samkomulag náðst milli Iraola og Liverpool John Barnes greindist með krabbamein Wales jafnaði metin í lokin Kláruðu leikinn með síðustu spyrnu leiksins Segir að Real Madrid sé með munnlegt samkomulag við Konaté Rodri ætlar ekki að ræða framtíð sína fyrr en eftir HM Fer frá Fulham og tekur við Benfica Fékk ekki að ferðast með landsliðinu til Bandaríkjanna Bodö/Glimt græddi yfir sex milljarða á Evrópuævintýrinu Svíar tala um valdaskipti í skandinavískum íþróttum Ver val á meintum kynferðisbrotamanni Dalglish greindi óvart frá baráttu sinni við krabbamein Sjáðu mörkin: Norðmenn rúlluðu yfir Svía og glæsimark Isak „Öfundsýki alls staðar“ Sjá meira