Hörður á flugi og vann Hjört í slag um fjórða sæti Sindri Sverrisson skrifar 24. nóvember 2025 18:07 Hörður Björgvin Magnússon í leiknum við Úkraínu fyrr í þessum mánuði. Hann er nú kominn á fulla ferð eftir afar erfiðan tíma vegna meiðsla. Getty/Sebastian Frej Hörður Björgvin Magnússon fagnaði sigri í kvöld þegar tvö Íslendingalið mættust í grísku úrvalsdeildinni í fótbolta.
Hörður og félagar í Levadiakos unnu þá dýrmætan útisigur gegn Volos, liði Hjartar Hermannssonar, þrátt fyrir að hafa lent undir um miðjan fyrri hálfleikinn þegar Joca Fernandes skoraði beint úr aukaspyrnu. Alen Ozbolt jafnaði metin úr víti í lok fyrri hálfleiks og skoraði svo sigurmarkið um miðjan seinni hálfleik. Hörður, sem sneri aftur inn í íslenska landsliðið fyrr í þessum mánuði, og Hjörtur léku báðir allan leikinn í kvöld. Levadiakos er nú í 4. sæti grísku deildarinnar með 21 stig, sjö stigum frá toppliði Olympiacos, og hefur nú unnið síðustu þrjá deildarleiki sína í röð eftir að Hörður kom af fullum krafti inn í liðið. Hann var í afar langan tíma frá keppni eftir krossbandsslit haustið 2023, og bakslag í þeim meiðslum, en gekk í raðir Levadiakos frá Panathinaikos í sumar og er nú kominn á fulla ferð. Volos, sem fékk Hjört frá Ítalíu í byrjun þessa árs, er í 6. sæti með 18 stig eftir 11 leiki.
Gríski boltinn Mest lesið Aníta Ýr slær í gegn í Yale háskólanum Fótbolti Spilað ofan í úrslitaleik kvenna: „Ha?! Ég þurfti að athuga þetta tvisvar“ Íslenski boltinn Sjáðu mörk Haalands, asnaskap Mbappé og sjálfsmörkin í Þýskalandi Fótbolti Hné niður og var fluttur á sjúkrahús Fótbolti Ósammála Einari sem lét gamminn geisa í gær Íslenski boltinn Laskaður á líkama og sál eftir þungt högg Formúla 1 Vitna í bíl sem Bin Laden styrkti Formúla 1 „Eru og voru ekki mínir bestu vinir“ Handbolti Átti ekki að dæma víti á Liverpool en ekki heldur að líta á skjáinn Enski boltinn Fyrrverandi leikmaður Liverpool leitar liðs á LinkedIn Enski boltinn Fleiri fréttir Söguleg stund fyrir Viking í kvöld Átti ekki að dæma víti á Liverpool en ekki heldur að líta á skjáinn „Enginn með heljarinnar tak á Heimi Guðjóns“ Fyrrverandi leikmaður Liverpool leitar liðs á LinkedIn Spilað ofan í úrslitaleik kvenna: „Ha?! Ég þurfti að athuga þetta tvisvar“ Segir að Haaland muni verða besti markaskorari allra tíma Messi að kaupa hundrað prósent hlut í spænsku félagi Sjáðu mörk Haalands, asnaskap Mbappé og sjálfsmörkin í Þýskalandi Aníta Ýr slær í gegn í Yale háskólanum Hné niður og var fluttur á sjúkrahús Ósammála Einari sem lét gamminn geisa í gær Hull tapaði úrvalsdeildarslag í deildarbikarnum Haaland sýndi enga miskunn og sótti stigin þrjú í Portúgal Súr endir á Meistaradeildarkvöldi Hákonar og Lille Gjafir Inter urðu þeim að falli gegn Real Madrid Fyrsti sigur Aston Villa á tímabilinu kom í Meistaradeildinni Stór varða í langþráðri endurkomu Patriks: „Eitt skref í einu“ Mac Allister svekktur að fá ekki nýjan samning Hjartaaðgerð McTominay gekk vel Mourinho fékk úðara að gjöf Ósanngjörn barátta um Gullskóinn Spurður um íslenska dómarann og hellti þá úr skálum reiði sinnar Treyjur Liverpool taka breytingum Ancelotti dásamar Hákon fyrir stórt kvöld Sjáðu mörkin í Dalnum og í höllinni sem „KSÍ ætti ekki að leyfa“ Furðu lostinn og reiður Nökkvi laus við bann Ekki sést á leikjum Nottingham Forest síðan í febrúar Ekkert benti til brottfarar Howe en félagið var með plan Dagskráin í dag: Meistaradeildin hefst og Hákon er þar í eldlínunni Árni Gautur heiðraður af ÍA Sjá meira