Kveður fasteignir fyrir kroppa Magnús Jochum Pálsson skrifar 5. desember 2025 11:30 Árni Björn ásamt leiðbeinendum úr markþjálfunarskólanum Virkja við útskrift úr markþjálfun. Árni Björn Kristjánsson, áhrifavaldur, hlaðvarpsstjórnandi og einkaþjálfari, hefur ákveðið að láta af störfum sem fasteignasali til að einbeita sér að þjálfun, bæði mark- og einkaþjálfun.
Árni Björn greindi frá fregnunum í Instagram-færslu í gær. Árni og kona hans, Guðrún Ósk Maríasdóttir, hafi vakið mikla athygli með hlaðvarpi sínu, Taboo, þar sem ræða tæpitungulaust um kynlíf, sambönf og swing-lífstílinn sem þau stunda. „Það er komið að tímamótum í mínu lífi en ég hef látið af störfum sem fasteignasali. Ég er óendanlega þakklátur fyrir þann tíma og þá sérstaklega fyrir allt dásamlega fólkið sem ég aðstoðaði við að selja og kaupa draumaeignina sína,“ segir Árni í færslunni. Hann segist sérstaklega þakklátur Páli Pálssyni og Hafdísi Sveinbjörnsdóttur sem reyndust frábærir lærimeistarar og kenndu honum allt. „Ég er ennþá að klára nokkrar eignir og loka ýmsum endum en á nýju ári mun nýr kafli byrja. Aldrei að vita hvort ég snúi aftur að fasteignasölunni en eins og er þá er ég ótrúlega spenntur fyrir nýjum tímum,“ segir hann. Tilbúinn að betrumbæta heilsu fólks Árni segist hafa ákveðið að snúa sér aftur að einkaþjálfun sem er hans ástríða í lífinu. Hann brenni fyrir það að hjálpa fólki að betrumbæta heilsu þeirra. Árni Björn er duglegur að lyfta. „Ég er nú þegar byrjaður að markþjálfa og það gengur frábærlega! Andlega hliðin er eitthvað sem heillaði mig alltaf mjög mikið í þau 12 ár sem ég þjálfaði Crossfit og lyftingar og það er ótrúlega gaman að vera kominn með fleiri verkfæri í verkfæratöskuna mína svo ég geti aðstoðað fólk með þann part líka,“ skrifar hann. Hann muni á nýju ári einnig byrja að bjóða upp á fjarþjálfun og einkaþjalfun. „Með mína reynslu sem spannar yfir áratug tel ég mig í stakk búinn að hjálpa hverjum sem er að bæta heilsu sína, andlega sem og líkamlega,“ skrifar Árni sem hvetur fólk til að hafa samband vilji það hefja ferðalag sitt í átt að bættri heilsu. Færslu Árna má sjá hér að neðan: View this post on Instagram A post shared by Arni Bjorn (@arni_kristjansson)
Tímamót Fasteignamarkaður Ástin og lífið Mest lesið Leikkonan Hayden Panettiere er látin Lífið Barnalán hjá Brynju Dan Lífið Eliza Reid var meðal gesta í brúðkaupinu Lífið Stjörnulífið: Stjörnur í snípstuttu Lífið Salka Sól tekur við af óléttri Jóhönnu Guðrúnu Lífið Bestu hlutverk Hayden Panettiere Bíó og sjónvarp Auðunn tilkynnir nýja kærustu Lífið Þórdís Elva er gengin út Lífið Dorrit vill biðja eigendurna afsökunar Lífið Svana á tímamótum og selur slotið Lífið Fleiri fréttir Nicole er fyrir norðan Egill Heiðar og Kittý selja Garðabæjarslotið Helstu samsæriskenningarnar um Evrópusambandið „Ein miðaldra kona að tala um að hún hefði viljað mæta“ Barnalán hjá Brynju Dan Herra og frú Crivello hamingjusöm hjón Svana á tímamótum og selur slotið Auðunn tilkynnir nýja kærustu Salka Sól tekur við af óléttri Jóhönnu Guðrúnu Stjörnulífið: Stjörnur í snípstuttu Leikkonan Hayden Panettiere er látin Eliza Reid var meðal gesta í brúðkaupinu Þórdís Elva er gengin út Efna til söfnunar í minningu Hennings Dorrit vill biðja eigendurna afsökunar Hunter Schafer alsæl eftir Íslandsför Krakkatía vikunnar: Tinni, flekar og stór augu Þórdís Kolbrún fékk hlýjar móttökur Adam Driver mættur í Marvel-heiminn Fréttatía vikunnar: Björk, Usher og peningaþvætti Barbie-framhald í uppnámi vegna launakrafa Robbie Williams einhverfur Hálfsextugur Hamm að verða pabbi í fyrsta sinn Hjartnæm athöfn þegar Gunnar Þórðarson var jarðsunginn Dorrit sendir rabbínanum tóninn Berskjölduð og óttaslegin eftir skilnaðinn og framtíðin óráðin Jóhanna Guðrún ólétt Útför Gunnars Þórðarsonar Dreymir um að halda næstu Kaleo-tónleika á Vestfjörðum Emmsjé edrú í sjö ár Sjá meira