Fagnaði afmælinu með sínum kærustu vinkonum Magnús Jochum Pálsson skrifar 9. desember 2025 17:33 Gleðin var við völd á Kringlukránni í hádeginu. Það er nóg um að vera þessi dægrin hjá hlaðvarpsstjórnandanum Helga Jean Claessen. Um helgina hélt hann útgáfuhóf fyrir nýútkomna bók sína, Helga hjartað, og í dag fagnaði hann 44 ára afmæli með hádegisverði á Kringlukránni með kærum vinkonum sínum og helsta samstarfsfélaga.
Helgi opnaði sig í hlaðvarpsþættinum Fullorðins fyrr á árinu um reynslu sína af hefðbundnum ástarsamböndum og hvernig hann fann ástina í gegnum fjölástir (e. polygamy). Viðtalið vakti mikla athygli enda er fólk alltaf forvitið um þá sem fara ótroðnar slóðir í ástarmálum og hafna einkvænislífinu. Hjálmar Örn Jóhannsson, grínisti sem stýrir hlaðvarpinu HæHæ með Helga, birti svo í dag myndband á Instagram frá afmælishádegisverði Helga á Kringlukránni. Helgi og Hjálmar voru þar ásamt þremur af konunum í lífi Helga. Þar á meðal var Þórhildur Magnúsdóttir, sambandsþjálfi og jógakennari, sem hefur vakið athygli á undanförnum árum fyrir opinskáa umræðu um opið hjónaband sitt. Eins og vill gerast á Íslandi þá hefur myndbandið vakið athygli, ekki síst vegna þess að Helgi og konurnar kvöddust með kossum á munn. Stutt á milli kærustu og vinkonu Vísir heyrði því hljóðið í Helga til að forvitnast út í hádegisverðinn og hvort þar væru samankomnar kærustur hans til að fagna með honum. Aðspurður sagði hann enga stimpla liggja fyrir, hann væri ekki í einu lokuðu sambandi. „Vinkonur mínar, kærustur mínar, fyrir mér er ekki langt þar á milli. Oft er verið að gera grín með kærustur, að eiga fjórar kærustur eða átta kærustur,“ segir Helgi. Sagði hann þessi sambönd ekki rúmast innan hefðbundinnar skilgreiningar á samböndum heldur sé fólk sem hann tengir við. View this post on Instagram A post shared by Helgi Jean Claessen (@helgijean) Fyrir utan afmælið þá sagði Helgi fleira um að vera í lífu sínu: „Ég var að gefa út bók, Helga hjartað, og hélt útgáfuhóf um helgina.“ „Þetta er bók um andlega ferðalagið sem ég er búinn að vera á. Ég er að rekja það frá því ég sneri við lífi mínu 2013. Breytingarnar frá því ég var atvinnulaus heima hjá pabba mínum og lét drauma mína rætast. Allt þetta andlega ferðalag, samtalsmeðferðir, þerapíur, hugvíkkandi efni og allt þetta dót sem maður er búinn að ganga í gegnum,“ sagði hann. Um væri að ræða sjálfshjálparbók sem gengi út á að finna hver maður væri og hvernig maður yrði ekta og sá sem maður vill verða. Þorgrímur Þráins, Arnaldur, Jón Stóri og andlega ferðalagið Bókin er hreint ekki sú fyrsta sem Helgi skrifar. Hann skaust fyrst fram á sjónarsviðið 2007 þegar hann og Hjálmar Örn, þá starfsmenn Brimborgar, gáfu út ádeilubókina Konur eru aldrei hamingjusamar því þær eru með svo litlan heila - og karlar rosa pirrandi. Helgi hefur gefið út þó nokkrar bækur. Helgi fylgdi henni eftir með Kjammi: bara krútt sem þarf knús árið 2009 þar sem hann tók glæpasögur Arnaldar Indriðasonar fyrir. Næstu ár gaf hann út Jóns sögu stóra, Flottastur@Facebook og Fantasíur karla: og hvernig konur geta flengt þá til hlýðni. Samhliða útgáfunni ritstýrði Helgi fjölmiðlinum Menn.is og keypti hann af Pressunni árið 2012. Það hafi einmitt verið ákveðinn vendipunktur. „Menn.is var eiginlega ástæðan fyrir því að ég þurfti að breyta lífi mínu því þá var ég búinn að eignast fyrirtækið og þurfti að fara að láta það ganga. Ég var fastur í einhverju rugli og var að detta í það. Þannig ég tók mataræðið í gegn og áfengið,“ segir hann. Hann hafi verið á andlegu ferðalagi síðan og kortleggur það í bókinni. „Maður hættir aldrei að uppgötva sig, það eru mikil verðlaun sem fylgja því að feta þessa ótroðnu slóð og mikið frelsi.“
Ástin og lífið Tímamót Mest lesið Fundu hvor aðra á ný eftir erfiða reynslu Lífið Elegans í hæstu hæðum í fimmtugsafmæli ársins Lífið Stjörnulífið: „Heppnasta stelpa allra tíma“ Lífið Seyfried syrgir Finn sinn Lífið Japanskir sjóliðar troða upp fyrir utan Hörpu Lífið Edda Falak og Kristján Helgi selja íbúð í 101 Lífið Daði og Árný eiga von á sínu þriðja barni Lífið „Maður getur ekki falið sig á sama hátt þegar allt hárið er farið“ Lífið Gosling verður Skrattakollur Bíó og sjónvarp Einar Örn og Birna selja einbýlishúsið Lífið Fleiri fréttir Carly Simons lærir að lifa með Parkinson Daði og Árný eiga von á sínu þriðja barni Japanskir sjóliðar troða upp fyrir utan Hörpu Edda Falak og Kristján Helgi selja íbúð í 101 Seyfried syrgir Finn sinn Elegans í hæstu hæðum í fimmtugsafmæli ársins Stjörnulífið: „Heppnasta stelpa allra tíma“ Fundu hvor aðra á ný eftir erfiða reynslu Emma Roberts gengin í það heilaga „Maður getur ekki falið sig á sama hátt þegar allt hárið er farið“ Krakkatía vikunnar: Rottur, froða og þyrnihrós Einar Örn og Birna selja einbýlishúsið Ekki ósanngjarnt gagnvart sjálfri sér heldur börnunum Vilja láta svipta ekkju leikarans yfirráðum yfir dánarbúinu Gagnrýni á John Snorra ómálefnaleg og slitin úr öllu samhengi Fréttatía vikunnar: Infantino, hvítt efni og svikahrina Diddy í einangrun eftir slagsmál við samfanga Chris Brown játaði ofbeldisfulla hegðun Afþakkaði milljón Bandaríkjadala fyrir eitt uppistand Upplýsingafulltrúar sem flúðu fréttirnar Fyrrverandi mágkonur selja til að kaupa „draumakommúnu“ Biðst afsökunar á óviðeigandi sketsi með sautján ára Stodden „La La Höndin“ úr sögunni Úlfar dauðvona en líður ljómandi vel Hvað veistu um… Mosfellsbæ? Olivia Rodrigo hljóp í rigningunni og keypti sér plötur Elín Hall opnar sig um brjóstaminnkunina Enn eitt barnið vill losna við Pitt-nafnið „Svo setti hann á sig sítrusilminn og þá máttu jólin koma“ Barnastjarnan Kaylee Hottle látin Sjá meira