Þátttökulöndin ekki færri síðan 2003 Atli Ísleifsson skrifar 15. desember 2025 12:50 Austurríski söngvarinn JJ bar sigur úr býtum í Eurovision sem fram fór í Basel í Sviss í maí síðastliðinn. EPA Þrjátíu og fimm lönd verða með fulltrúa í Eurovision sem fram fer í Vín í Austurríki í maí á næsta ári. Það eru tveimur færri en í Basel í Sviss fyrr á þessu ári.
EBU staðfesti í dag að 35 lönd hefðu staðfest þátttöku í Eurovision á næsta ári, en svo fá lönd hafa ekki tekið þátt síðan 2003. Flest hafa þátttökuríkin verið 43, fyrst árið 2008 og aftur 2011 og 2018. Ríkisútvarpið greindi frá því í síðustu viku að Ísland myndi ekki taka þátt í Eurovision í maí. Ákvörðunin hafi verið tekin á dagskrárlegum forsendum þar sem ljóst væri miðað við opinbera umræðu hér á landi og viðbrögð við ákvörðun EBU um að leyfa þátttöku Ísraels að hvorki mun ríkja gleði né friður um þátttöku RÚV í Eurovision. Áður höfðu Hollendingar, Spánverjar, Írar og Slóvenar tilkynnt að þeir myndu ekki taka þátt vegna þátttöku Ísraela. Þó að fimm lönd hafi tilkynnt um sniðgöngu eru þátttökulöndin árið 2026 einungis tveimur færri en á síðasta ári. Ástæða þess að þrjú lönd, sem ekki tóku þátt í Sviss fyrr á þessu ári, hafa tilkynnt að þau muni nú snúa aftur til leiks. Um er að ræða Rúmena, Búlgara og Moldóva. Búlgaría tók síðast þátt fyrir þremur árum, Rúmenía fyrir tveimur árum og Moldóva fyrir rúmu ári. Eurovision fagnar sjötíu ára afmæli í maí á næsta ári en keppnin mun fara fram í Vín dagana 12. til 16. maí. Þetta er í þriðja sinn sem Eurovision fer fram í austurrísku höfuðborginni en áður fór keppnin þar fram 1967 og svo aftur 2015. Þau ríki sem munu taka þátt að þessu sinni eru Albanía, Armenía, Ástralía, Austurríki, Aserbaídsjan, Belgía, Búlgaría, Króatía, Kýpur, Tékkland, Danmörk, Eistland, Finnland, Frakkland, Georgía, Þýskaland, Grikkland, Ísrael, Ítalía, Lettland, Litáen, Lúxemborg, Malta, Moldóva, Svartfjallaland, Rúmenía, Noregur, Pólland, Portúgal, San Marínó, Serbía, Svíþjóð, Sviss, Úkraína og Bretland.
Eurovision 2026 Eurovision Mest lesið Megas er látinn Lífið Næringarfræðingi brá þegar Simmi Vill tók upp nestið Lífið Guðrún Sóley gengin út Lífið „Þurfti hann að detta niður dauður til að vera spilaður?“ Lífið „Einn af fáum lögfræðingum sem heldur upp á siðfræðina“ Lífið Lauren Bennett látin 37 ára að aldri Lífið Skvísur og töffarar fögnuðu með Elvari Tónlist Harry Styles setti heimsmet Lífið Stórbrotinn stíll Zendayu Tíska og hönnun Hvarf vegna athyglisbrests á hæsta stigi Tónlist Fleiri fréttir „Þurfti hann að detta niður dauður til að vera spilaður?“ Megas er látinn Guðrún Sóley gengin út „Einn af fáum lögfræðingum sem heldur upp á siðfræðina“ Harry Styles setti heimsmet Næringarfræðingi brá þegar Simmi Vill tók upp nestið Það allra besta að gráta í gufu Lauren Bennett látin 37 ára að aldri Listabarn á leiðinni Kenningin um útskiptin miklu sem umbreytti vestrænum stjórnmálum Snæfríður og Högni selja útsýnisíbúð í 101 Baðst afsökunar á að hafa sagst vilja ríða Minogue Pétur Jóhann á von á öðru barnabarni Birtu fyrstu myndina af Mette-Marit eftir aðgerðina Stjörnulífið: Bátsferðir og brjóst Rauðhærðasti Íslendingurinn fundinn Stjörnum prýddur gestalisti Swift og Kelce Krakkatía vikunnar: Tindur, stríð og letibikkja Melabúðin fagnar sjötíu árum „Þú ert greinilega manneskja sem hefur strögglað mikið andlega“ „Það er gaman að gera erfiða hluti“ Taylor Swift og Travis Kelce eru gift Eins og að vera með kláða sem hverfur aldrei „Erum enn að ná utan um allt sem gerðist“ Fréttatía vikunnar: EBU, aftaka og Love Island „Klukkan er fimm einhvers staðar“ „Þegar þið eignist ykkar fyrsta barn, má ég þá fá það?“ Snæddi með furstanum af Mónakó Kyssti ekki Maguire heldur tottaði rafrettu Allir og amma þeirra á Ítalíu Sjá meira