Samherji gæti tvöfaldast Berghildur Erla Bernharðsdóttir skrifar 27. desember 2025 12:10 Baldvin Þorsteinsson forstjóri Samherja. Vísir/Vilhelm Samherji gæti tvöfaldast að stærð nái áform í landeldi fram að ganga að sögn forstjóra félagsins. Félagið hyggist ráðast í þrjátíu milljarða króna fjárfestingu í greininni á næstu misserum með innlendum og erlendum fjárfestum.
Dótturfélag Samherja, Samherji fiskeldi, rekur sex fiskeldisstöðvar fyrir bleikju og lax hér á landi. Þar á meðal er landeldisstöð í Öxarfirði, tvær stöðvar fyrir bleikju á Suðurnesjum og bleikjuvinnsla í Sandgerði. Þá er verið að byggja nýja landeldisstöð, Eldisgarð, fyrir lax á Reykjanesi sem er stærsta fjárfestingarverkefni í sögu Samherja. Baldvin Þorsteinsson forstjóri Samherja segir að gert sér ráð fyrir gríðarlegum fjárfestingum þar á næstu misserum. „Þar fer fram ótrúlega spennandi uppbygging. Það er gríðarlega stórt verkefni sem við eigum þar fyrir höndum. Þetta er þrjátíu milljarða fjárfesting á næstu 18 mánuðum,“ segir Baldvin. Hann segir að hlutafjáraukningu sé lokið þar sem Samherji lagði til fimmtán milljarða króna á móti utanaðkomandi fjárfestum. „Svo auðvitað fyrir okkur í Samherja var mikill áfangi að ljúka við stóra hlutafjáraukningu í tengslum við landeldisáformin. Við fengum til liðs við okkur sterka fjárfesta, erlenda og innlenda,“ segir hann. „Ef það verkefni verður að veruleika erum við að tala um fyrirtæki sem verður næstum tvöfalt að umfangi miðað við Samherja í dag. Þannig að þetta er mikil fjárfesting og mjög spennandi ef vel tekst til.“ Eldisgarður sem er staðsettur í auðlindagarði HS Orku við Reykjanesvirkjun. verður byggður í þremur áföngum. Stefnt er á að vígja fyrsta áfanga vorið 2027. Samkvæmt ársskýrslu Samherja mun fullbúin stöð geta framleitt 36.000 tonn árlega af óslægðum laxi. Til samanburðar voru framleidd um 49 þúsund tonn af laxi á öllu landinu á síðasta ári. „Það eru margir sem sjá möguleika í þessu sem er spennandi og ef vel tekst til þá er þetta orðið nánast að nýrri burðarás í útflutningstekjum fyrir Íslendinga.“
Landeldi Fiskeldi Sjávarútvegur Akureyri Dalvíkurbyggð Reykjanesbær Mest lesið Fimm frumkvöðlar: Afarnir, pabbarnir og nú 10 ára sonurinn Atvinnulíf „Bað maðurinn minn þig um að spyrja mig að þessu?“ Atvinnulíf Uppsagnir hjá Bláa lóninu Viðskipti innlent Atvinnuleysi lækkar en óvissa eykst Viðskipti innlent Kaupa Sóma og Þykkvabæ Viðskipti innlent Prentmet Oddi kaupir Ísafoldarprentsmiðju Viðskipti innlent ESB sektar Temu um 28,7 milljarða króna Viðskipti erlent Greiða sér rúmlega tvo milljarða í arð Viðskipti innlent Land Rover veisla á laugardaginn Samstarf Verslunin Air lokar í Kringlunni Viðskipti innlent Fleiri fréttir Atvinnuleysi lækkar en óvissa eykst Prentmet Oddi kaupir Ísafoldarprentsmiðju Kaupa Sóma og Þykkvabæ Ákvörðun um næsta fund tekin yfir helgina Eftir sumarið tekur við óvissa Yrði fjórði stærsti lífeyrissjóðurinn Kjörin formaður SÍA Sendir flugmönnum tóninn: „Maður mjólkar ekki dauða kú“ Meira atvinnuleysi og fjöldauppsagnir í maí Hásetar fengu tæpar níu milljónir fyrir fimmtán daga Flugrisi eignast allan flugflota Air Atlanta Greiða sér rúmlega tvo milljarða í arð Fá að kaupa Pei og Motus „Við þurfum að fara að spýta í lófana“ Gervigreindargjöf til lýðræðisins Hópuppsögn hjá Rapyd á Íslandi Helmingur Air Atlanta seldur úr landi Uppsagnir hjá Bláa lóninu Segir vanda Icelandair djúpstæðari en samningar flugmanna Fljúga til Færeyja árið um kring Verðbólga hjaðnar minna en vonir stóðu til Verslunin Air lokar í Kringlunni Fundi frestað til morguns Beina því til Storytel að gæta varúðar í markaðssetningu Skipulagsbreytingar hjá Símanum Advania lýkur kaupum á Evolv Stjórn Icelandair með fullt traust til Boga Hyggja á hóteluppbyggingu á milli Hveragerðis og Selfoss Vilja að frítekjumörk örorkulífeyris verði endurskoðuð Klíník og klíník í eina sæng Sjá meira