Sjávarútvegur

Sjávarútvegur

Fréttamynd

Agnar kemur nýr inn í stjórn Ís­félagsins

Á aðalfundi Ísfélagsins síðar í vikunni verður gerð ein breyting á stjórn félagsins og þá er jafnframt lagt til að greiða arð til hluthafa sem nemur um 76 prósent af hagnaði síðasta árs, nokkuð lægra hlutfall en í fyrra.

Innherjamolar

Fréttir í tímaröð

Fréttamynd

Hver borgar fyrir auknar strand­veiðar?

Í dag mælir innviðaráðherra, Eyjólfur Ármannsson, fyrir frumvarpi sem á að tryggja 48 daga á strandveiðum. Í frumvarpinu er lagt til að fella niður línuívilnun og skel- og rækjubætur og nýta þær aflaheimildir til að auka strandveiðar.

Skoðun
Fréttamynd

Þeir fiska sem róa

Við erum stórþjóð þegar kemur að fiskveiðum. Íslenskur sjávarútvegur er öðrum þjóðum fyrirmynd, ekki síst vegna þeirra kerfisbreytinga sem ráðist var í á síðustu öld.

Skoðun
Fréttamynd

Að mala eða mala ekki gull

Í Kauphöllinni er eitt fyrirtæki sem malar gull í bókstaflegri merkingu hvað sem segja má um öll hin. Nú hafa sjávarútvegsfyrirtækin þrjú sem skráð eru á markaði – Brim, Ísfélagið og Síldarvinnslan – skilað uppgjöri fyrir síðasta ár og þá vaknar spurningin hvort þau mali gull eins og mörgum hefur verið tíðrætt um.

Umræðan
Fréttamynd

Sjö af hverjum tíu fýlum með plast í maganum

Nær sjö af hverjum tíu íslenskum fýlum eru með plast í meltingarveginum. Þetta kemur fram í niðurstöðum vöktunar Umhverfis- og orkustofnunar á magni plasts í meltingarvegi fýla árið 2025. Sjómenn söfnuðu fuglunum fyrir vöktunina. Allir höfðu þeir drukknað.

Innlent
Fréttamynd

Áhættu­stjórnun í fisk­eldi

Fiskeldi er í örum vexti um allan heim þar sem eftirspurn eftir sjálfbærum sjávarafurðum eykst og villtir fiskistofnar eru undir miklu veiðiálagi.

Skoðun
Fréttamynd

Steinn í vegi aðildar að ESB

Umræðan um að Ísland geti gengið í Evrópusambandið en samt haldið sjávarútveginum utan við sameiginlegu sjávarútvegsstefnuna minnir á dæmisöguna um manninn sem ætlaði að færa stóran stein úr veginum. Vinur hans benti honum á að steinninn væri óhreyfanlegur sökum stærðar og hélt áfram göngu sinni, en sá þrjóski hélt áfram að lemja steininn og berja, ýta við honum og bölva en allt kom fyrir ekki.

Umræðan
Fréttamynd

Pearl Jam á móti sjókvíaeldi á Ís­landi

Hljómsveitin Pearl Jam segist standa með íslensku þjóðinni í baráttunni fyrir því að binda enda á laxeldi í opnum sjókvíum. Í færslu á Instagram hvetur hljómsveitin aðdáendur til að skrifa undir undirskriftalista þess efnis.

Lífið
Fréttamynd

Kvótahopp og ESB

Í nýlegri grein hér á Vísi fjallar ágætur maður um sjávarauðlindina og hugsanlega ESB-aðild. Hann hafnar þeirri fullyrðingu að við inngöngu myndu erlendir aðilar kaupa upp íslensk skip, leggja niður sjávarpláss og flytja aflann óunninn úr landi. Hann segist hafa „aðeins“ kynnt sér málið og komist að þeirri niðurstöðu að þetta sé einfaldlega ekki rétt. Því miður virðist rannsóknarvinna þessa ágæta manns hafa stoppað áður en komið er að raunverulegum kjarna málsins: Grunnsáttmálum Evrópusambandsins.

Skoðun
Fréttamynd

Ís­land sé í sterkari stöðu en áður fyrir aðildar­við­ræður

Þjóðaratkvæðagreiðsla um áframhaldandi viðræður við Evrópusambandið um inngöngu Íslands fer fram 29. ágúst. Það tilkynnti ríkisstjórnin á blaðamannafundi fyrr í dag. Forsætisráðherra sagði tilefni til viðræðna núna. Samningsstaða Íslendinga væri góð, betri en áður, auk þess sem mikið rót væri í alþjóðamálum.

Innlent