Funda í janúar í kjaraviðræðum flugstétta Lovísa Arnardóttir skrifar 2. janúar 2026 14:48 Jón Þór Þorvaldsson, formaður FÍA, og Berglind Kristófersdóttir, formaður FÍ. Samsett Jón Þór Þorvaldsson, formaður Félags íslenskra atvinnuflugmanna, FÍA, og Berglind Kristófersdóttir, formaður Flugfreyjufélags Íslands, FÍ, segja lítið að frétta í kjarasamningsviðræðum þeirra við Icelandair. Samningar félaganna við félagið losnuðu í haust og flugvirkja nú um áramót. „
Það er ekki búið að setja niður fund en það er yfirleitt gert með stuttum fyrirvara,“ segir Jón Þór um næsta fund samninganefndanna. Flestir séu í vaktavinnu og því henti yfirleitt betur að skipuleggja með stuttum fyrirvara. Hann segir allan kjarasamninginn til umræðu í samningaviðræðunum. Hlé var gert á viðræðum Icelandair og FÍA í september þegar FÍA kærði Icelandair til Félagsdóms fyrir hönd níu flugmanna sem ætluðu að nýta sér rétt til starfsloka við sextugt eftir 25 ára starf hjá flugfélaginu. Málinu var vísað frá dómi þar sem dómurinn taldi þau ákvæði sem kröfur flugmannanna voru reistar á ekki hluta af kjarasamningi. Því féll úrslausn utan valdsviðs dómsins. Flugfreyjur funda líka í janúar Berglind Kristófersdóttir formaður FÍ segir umræður ekki komnar langt á veg. Næsti fundur samninganefndanna sé í janúar. Hún segir sömuleiðis allan samninginn undir í viðræðunum. Fjölda fólks var sagt upp seint á síðasta ári hjá Icelandair. Forstjóri félagsins sagði það gert í hagræðingarskyni til að snúa við rekstri fyrirtækisins. Flestir sem misstu vinnuna voru starfsfólk á skrifstofu félagsins í Hafnarfirði. Bogi Nils Bogason forstjóri Icelandair sagði þá aðstæður í flugrekstri verulega krefjandi. Í afkomutilkynningu félagsins í október sagði hann yfirvofandi kjaraviðræður við flugstéttirnar hafa áhrif á framtíð Icelandair.
Kjaramál Fréttir af flugi Icelandair Mest lesið Stjórnandi hjá New York Times myrtur af tengdaforeldrum sínum Erlent Vinnuvél var ekið upp undir Bústaðavegsbrú Innlent „Sorglegt að þetta sé staðan“ Innlent Hlýtur ríflega sjötíu svipuhögg fyrir að koma fram án höfuðslæðu Erlent Gætir fengið allt rétt á prófi en átta í einkunn Innlent Talsvert fleiri karlar en konur teknir fyrir akstur undir áhrifum Innlent Sjö sakaðir um að nauðga samnemanda klukkustundum saman Erlent Mannasaur og hanskar um allar koppagrundir Innlent Gagnrýna harðlega fyrirhugaðar skatta- og gjaldahækkanir Innlent Tók stúlku kverkataki og nauðgaði Innlent Fleiri fréttir Vinnuvél var ekið upp undir Bústaðavegsbrú Talsvert fleiri karlar en konur teknir fyrir akstur undir áhrifum „Sorglegt að þetta sé staðan“ Gætir fengið allt rétt á prófi en átta í einkunn Einum sleppt úr gæsluvarðhaldi og tveir eftir Gagnrýna harðlega fyrirhugaðar skatta- og gjaldahækkanir Ekið á hjólreiðamann í Kópavogi Reykjanesbraut verður lokað vegna framkvæmda Fella niður rannsókn vegna E. coli-sýkingar á Mánagarði Ný göngubrú vígð Íslenskar jökulár úr geimnum Tók stúlku kverkataki og nauðgaði Fluttur með þyrlu á slysadeild eftir slys í tengivirki Ekki ákveðið hvort lagareldisfrumvarpið verði endurflutt Símafrí sett en PISA sýnir engin skýr tengsl við betri námsárangur Furðar sig á tali um taktík með gjaldahækkanir „Við erum ekki að mismuna eftir þjóðerni með þessum hætti“ Svindlaði ítrekað í sjálfsafgreiðslu og fékk dóm Harðari tónn en áður hafi verið sleginn Uppsagnir, undarleg taktík og umtöluð ræða Ekið á fimm ára barn á hjóli Mannasaur og hanskar um allar koppagrundir „Aðgerðaleysið og getuleysið er algjört hjá stjórnvöldum“ Farþegi handtekinn í Hollandi vegna skemmdarverka Skil næstu lægðar nálgast Tilkynnt um tvær líkamsárásir Bregðast við skipulögðum árásum og hótunum Góðkunningi lögreglunnar grunaður um líkamsárás Stutt geti verið í kosningar Boðar fyrstu lögin og reglurnar gagnvart gervigreind Sjá meira