Selur Ólympíugullverðlaunin eftir skilnað við eiginkonuna Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 7. janúar 2026 09:31 Ryan Lochte með eitt af gullverðlaunum sem hann vann á Ólympíuleikunum en þessi mynd er frá leikunum í Ríó 2016. Getty/Harry How Bandaríska sundgoðsögnin Ryan Lochte hefur selt þrjú af sex Ólympíugullverðlaunum sínum á uppboði fyrir meira en 385 þúsund bandaríkjadali eða næstum því 49 milljónir króna.
Lochte seldi áður sex brons- og silfurverðlaun frá Ólympíuleikum fyrir 166 þúsund dollara árið 2022. Hann hefur nú losað sig við gullverðlaun sín úr 4x200 metra skriðsundsboðsundi frá Sumarólympíuleikunum í Peking 2008 (183.000 dollarar, 23,1 milljón króna), sem hann vann með Michael Phelps, auk gullverðlauna sinna úr 4x200 metra boðsundi frá Sumarólympíuleikunum í Aþenu 2004 (80.000 dollarar, 10,1 milljón króna) og gullverðlauna sinna úr 4x200 metra skriðsundsboðsundi frá Sumarólympíuleikunum í Ríó 2016 (122.000 dollarar, 15,4 milljónir króna). Sótti um skilnað eftir sjö ára hjónaband Salan á sér stað í kjölfar skilnaðar Lochte og eiginkonu hans, Reid, sem nýlega sótti um skilnað eftir sjö ára hjónaband. Skilnaður þeirra hefur vakið mikla athygli vestan hafs. Ryan Lochte: “I never swam for the gold medals” https://t.co/lSgkufj5Jg— SwimSwam (@swimswamnews) December 18, 2025 Í fyrstu kallaði fyrrverandi Playboy-fyrirsætan skilnaðinn „sársaukafullan“ á meðan Lochte sagðist vera „innilega þakklátur fyrir lífið sem við byggðum upp saman“. Í síðasta mánuði varpaði Lochte frekara ljósi á stöðuna þegar hann útskýrði ákvörðun sína um að selja verðlaunin. Of tilfinningaþrunginn til að tjá sig Hinn 41 árs gamli tólffaldi verðlaunahafi sendi frá sér yfirlýsingu á samfélagsmiðlum þar sem hann játaði að hann væri „of tilfinningaþrunginn til að tjá sig“ eftir að hafa mætt hörðum viðbrögðum almennings vegna nýlegra ummæla. Um Ólympíuverðlaunin sín sagði Lochte, sem nýlega var orðinn edrú: „Ég synti aldrei fyrir gullverðlaunin“ „Ég vil líka taka það skýrt fram varðandi sölu verðlaunanna minna. Ég synti aldrei fyrir gullverðlaunin. Ástríða mín hefur alltaf snúist um að vera einn af bestu sundmönnum í heimi,“ skrifaði Lochte. „Þessi verðlaun? Þau voru bara rúsínan í pylsuendanum á ótrúlegu ferðalagi. Með níutíu alþjóðleg verðlaun, þar á meðal frá Ólympíuleikum, heimsmeistaramótum, Pan Pacs og Pan Am leikum, hef ég verið svo heppinn að ná meiri árangri en nokkur annar sundmaður,“ skrifaði Lochte. Fyrr í vikunni birtist sundmaðurinn í myndbandi frá Goldin-uppboðshúsinu þar sem hann tilkynnti að þrjú af sex gullverðlaunum sem hann vann yrðu fáanleg til kaups. Vann alls sex gullverðaun Á ferli sínum í lauginni vann Lochte sex gullverðlaun alls, auk sex annarra, annaðhvort silfur- eða bronsverðlauna. Sjö þeirra voru í einstaklingsgreinum. Lochte ræddi einnig skilnað sinn við Reid og viðurkenndi eigin mistök í hjónabandinu en sagði að „við þekktumst ekki að fullu“. „Það er mikið í gangi á bak við tjöldin sem ég hef kosið að halda fyrir mig til að vernda börnin mín. Ég geri mér samt grein fyrir því að Kayla hefur deilt hjúskaparheitum okkar á síðunni sinni,“ sagði Lochte. View this post on Instagram A post shared by Daily Mail Sport USA (@dailymailsportusa)
Sund Ólympíuleikar Ólympíuleikar 2016 í Ríó Mest lesið Marcus Rashford búinn að fá nóg Enski boltinn Mætti með seðlabúntin inn í klefa í sigurvímu Fótbolti Kjartan svarar gamla stjóra sínum: „Ekki ánægjulegt að spila undir hans stjórn“ Fótbolti Messi skoraði en allt varð vitlaust í lokin Fótbolti Sjáðu upphitunarþáttinn fyrir enska boltann Enski boltinn „Það koma klárlega dagar sem ég er hrædd“ Fótbolti Eiður Smári þjálfar KA Íslenski boltinn „Takk fyrir mig körfubolti“ Körfubolti Kane gerir lítið úr mögulegri endurkomu í ensku úrvalsdeildina Enski boltinn Víkingur berst fyrir sæti í Sambandsdeildinni í beinni Fótbolti Fleiri fréttir Heimavöllur PSG ónothæfur eftir hitabylgjur sumarsins Verstappen skrifaði undir nýjan samning Áfram ofsótt og eltihrellirinn ákærður að nýju Kjartan svarar gamla stjóra sínum: „Ekki ánægjulegt að spila undir hans stjórn“ Messi skoraði en allt varð vitlaust í lokin Mætti með seðlabúntin inn í klefa í sigurvímu Marcus Rashford búinn að fá nóg Víkingur berst fyrir sæti í Sambandsdeildinni í beinni Tijjani Reijnders farinn Kane gerir lítið úr mögulegri endurkomu í ensku úrvalsdeildina „Takk fyrir mig körfubolti“ Atlético Madrid fagnaði sigri á nýliðum Málaga Landsliðskona í Val Einn af varaforsetum FIFA dregur stuðning sinn við Infantino til baka „Það koma klárlega dagar sem ég er hrædd“ Fanney í markinu fyrstu tvo leikina og sex stig komin í hús Sjáðu upphitunarþáttinn fyrir enska boltann Eiður Smári þjálfar KA Gæti misst af byrjun tímabilsins eftir að stuðningsmaður tæklaði hann Pablo Bertone aftur í Val Lík fannst á leikvangi Charlton Monaco riftir samning við Pogba Keflavík heldur áfram að styrkja sig Mögnuð þrenna Köru í Keflavík Daníel Guðjohnsen úr frystinum til Þýskalands Breki nýtir sér ráð Viktors og er klár í harðan slag í Portúgal Myndi taka kúlu fyrir Infantino Algjört risastökk Ólivers á heimslistanum Baleba færist nær United Mun Guðmundur reisa Holland við? Sjá meira