Valkvætt minnisleysi ofbeldismanna Guðný S. Bjarnadóttir skrifar 13. janúar 2026 08:15 Þolendur kynferðisofbeldis og ofbeldis í nánu sambandi kannast mörg við að gerendur segist þjást af minnisleysi þegar kemur að því að útskýra gjörðir sínar fyrir lögreglu eða dómi. Þetta er sígild aðferð til að firra sig ábyrgð sem oft er gripið til þegar viðkomandi á sér enga málsvörn. Það er einfaldlega miklu erfiðara að sanna ásetning geranda ef hann man hreinlega ekki eftir því að hafa beitt ofbeldi, hvað þá að hafa ætlað sér það. Það gengur illa upp að þjást af minnisleysi um brot og segjast saklaus af því á sama tíma. Enn og aftur birtist þessi þversögn almenningi í yfirlýsingu sakbornings í nýlegu nauðgunarmáli gegn barni sem er nú til rannsóknar. Á sama tíma og yfirvöld reyna ítrekað að koma sakborningnum í gæsluvarðhald gefur hann út yfirlýsingu um meint sakleysi sitt. Meðal þess sem kemur fram í yfirlýsingunni er kunnuglegt stef um minnisleysi þegar kemur að helstu atriðum brotsins. Hvers vegna ætti að reyna að koma manninum í gæsluvarðhald ef hann er ekki talinn hættulegur samfélaginu og talið líklegt að hann framdi brotin sem hann er sakaður um? Ofbeldismenn eru alltaf hættulegir og aðfinnsluvert hversu sjaldan gæsluvarðhaldi er beitt á íslenska borgara og ekki síður hitt hversu langan tíma ofbeldismál taka nær undantekningalaust í kerfinu. Brotaþolar sviptir frelsi Það hefur ítrekað verið bent á að þolendur eru ekki frjálsir á meðan mál þeirra velkjast um í kerfinu. Gerandinn er jú ,,saklaus uns sekt er sönnuð” og frjáls ferða sinna. Það kallast víst ,,slaufunarmenning” að halda öðru fram. Sjálf mátti ég bíða í tvö angistarfull ár eftir að fá að vita hvort ákæra yrði gefin út í máli þar sem ég kærði nauðgun og var stöðugt með það yfirvofandi að mæta gerandanum hvar sem var og hvenær sem var. Ekkert nálgunarbann, ekkert öryggi og engin svör um hvað tæki við næst. Í tvígang mætti ég gerandanum þar sem hann sýndi mér ógnandi hegðun. Í bæði skiptin var ég valdalaus í aðstæðum sem kerfið skapaði. Í sakamálum sem þessum er merkilegt að þó enginn vafi leiki á að brotaþoli hafi orðið fyrir ofbeldi hvílir á ákæruvaldinu að sanna að ásetningurinn til að fremja brot hafi verið til staðar. Ég má til með að benda á að enginn beitir ofbeldi óvart og enginn nauðgar óvart. Brotaþolar eru ekki að tilkynna ímynduð brot, þau eru að leita að réttlæti sem því miður er sárasjaldgæft að finna í réttarkerfinu. Sakborningum nægir oftast að bera fyrir sig minnisleysi og neita fyrir brotin og til vara að þetta hafi verið með vilja hlutaðeigandi. Réttur þeirra til að vera hvergi ásakaðir hvorki í ræðu eða riti er miklu ríkari en réttur brotaþola til að tjá sig. Það er tími til kominn að uppfæra löggjöfina og nýta hana til hins ýtrasta þegar heimildir bjóða upp á það. Við þurfum að bæta við nauðgun af gáleysi í refsilöggjöfina okkar. Minnisleysi og neitun gerenda á ekki að vega þyngra en framburður brotaþola og öll þau gögn sem styðja við þá frásögn. Hvað þá valkvætt minnisleysi gerenda. Höfundur er stjórnarformaður Vitundar, samtaka gegn kynbundnu ofbeldi. Heimildir: https://www.visir.is/g/20262827715d/-mar-trod-sem-eg-mun-bera-med-mer-alla-aevi- https://heimildin.is/pistill/ad-taka-upp-naudgun-af-galeysi-i-islenskum-retti/ https://www.stjornarradid.is/library/02-Rit--skyrslur-og-skrar/12.%20Ger%C3%B0ur%20Gu%C3%B0mundsd%C3%B3ttir%20-%20R%C3%A9tturinn%20til%20a%C3%B0%20fella%20ekki%20%C3%A1%20sig%20s%C3%B6k%20%C3%AD%20stj%C3%B3rns%C3%BDslunni.%20Almenni%20hlutinn.pdf Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Guðný S. Bjarnadóttir Mest lesið Hver á arfinn? Gunnar Ármannsson Skoðun Í hvaða vitleysu erum við stödd? Ragnheiður Stephensen Skoðun Skuggamansal á Íslandi Sævar Þór Jónsson Skoðun Landsleikar RÚV! Sigurlín Margrét Sigurðardóttir Skoðun Grateful Dead á Sæbrautinni Júlíus Valsson Skoðun Skattlagning til velsældar Hannes Lúðvíksson Skoðun Baráttan er ekki búin Mordekaí Elí Esrason Skoðun Við erum ekki jafn ömurleg og við höldum Þorsteinn Tjörvi Sigurðsson Skoðun Til hamingju Reykjanesbær með leikskólana okkar Guðný Birna Guðmundsdóttir Skoðun Er Þórarinn Tyrfings nýja framtíð Vogs? Bergþóra Haralds Eiðsdóttir Skoðun Skoðun Skoðun Opið bréf til Húnboga Þórs Árnasonar Margrét Rut Eddudóttir skrifar Skoðun Hvar eru þingmenn NV-kjördæmis? Sigurður Páll Jónsson skrifar Skoðun Noregur styrkir EES – Ísland verður að fylgja Rögnvaldur Guðmundsson skrifar Skoðun Landsleikar RÚV! Sigurlín Margrét Sigurðardóttir skrifar Skoðun Við erum ekki jafn ömurleg og við höldum Þorsteinn Tjörvi Sigurðsson skrifar Skoðun Bjórinn sem slapp við suðurferðina Elís Pétur Elísson skrifar Skoðun Í hvaða vitleysu erum við stödd? Ragnheiður Stephensen skrifar Skoðun Skattlagning til velsældar Hannes Lúðvíksson skrifar Skoðun Baráttan er ekki búin Mordekaí Elí Esrason skrifar Skoðun Hver á arfinn? Gunnar Ármannsson skrifar Skoðun Að tala um dauðann er að tala um lífið Ingrid Kuhlman skrifar Skoðun Til hamingju Reykjanesbær með leikskólana okkar Guðný Birna Guðmundsdóttir skrifar Skoðun Skuggamansal á Íslandi Sævar Þór Jónsson skrifar Skoðun Grateful Dead á Sæbrautinni Júlíus Valsson skrifar Skoðun Þjóðarsjúkrahúsið seinkar Sigurður Sigurðsson skrifar Skoðun Er gervigreindin spegill mannkyns Kristján Logason skrifar Skoðun Er Þórarinn Tyrfings nýja framtíð Vogs? Bergþóra Haralds Eiðsdóttir skrifar Skoðun Tólf ára ákvað ég að gera bíó Arnar Benjamín Kristjánsson skrifar Skoðun Hvað segja gögnin í raun um ásakanir á hendur séra Friðriki Theódór S. Halldórsson skrifar Skoðun Það er sárt að tapa kosningum Heimir Már Pétursson skrifar Skoðun Er enn þess virði að leggja á sig langt háskólanám? Gunnar Alexander Ólafsson skrifar Skoðun Engin fjölskylda á að þurfa að standa ein Eydís Ásbjörnsdóttir skrifar Skoðun Þegar reglurnar gilda ekki jafnt Ágúst Karlsson skrifar Skoðun Utanríkisstefna án ábyrgðar? Erna Bjarnadóttir skrifar Skoðun Heiður hússins: Um kynferðisofbeldi í nánum samböndum Hrafnhildur Kjerúlf Sigmarsdóttir skrifar Skoðun PISA-skellur en hvað svo? Inga Sæland skrifar Skoðun Hver verndar velferð barna þegar náttúran blandar kynjunum? Jón Þór Ólafsson skrifar Skoðun Einhliða bergmálshellir og heimildir sem hrynja Lilja Benatov Hjartar skrifar Skoðun KEMUR TÓLFAN? Hilmar Jökull Stefánsson skrifar Skoðun Ábyrgðinni má ekki útvista til tækninnar Karen Ósk Nielsen Björnsdóttir skrifar Sjá meira
Skoðun Heiður hússins: Um kynferðisofbeldi í nánum samböndum Hrafnhildur Kjerúlf Sigmarsdóttir skrifar