Framhaldsskólinn: horfum til framtíðar og finnum lausnir Simon Cramer Larsen skrifar 14. janúar 2026 11:02 Við þekkjum þetta öll. Það er gott að hittast, ræða saman og deila sögum. Oft heyrum við sömu sögurnar aftur og aftur. Í raun má segja hið sama um umræðuna um framhaldsskólann. Vandamálin „í sögunum“ um framhaldsskólann eru síendurtekin. Við þekkjum þau flest og listinn er orðinn kunnuglegur: vanfjármögnun, stytting framhaldsskólans, hár húsaleigukostnaður og ýmislegt fleira. Á þetta hefur margsinnis verið bent áður. Fortíðinni breytum við ekki en við getum brugðist við hér og nú og borið ábyrgð á framtíðinni hvað þetta varðar. Sækjum fram Löngu er kominn tími til að tala minna um vandamálin og meira um lausnir þeirra. Ekki aðeins benda á það sem er að, heldur finna leiðir og vinna áfram að þeim saman. Lausnir verða ekki til í skýrslum gerðum af fólki sem aldrei hefur unnið í framhaldsskólum. Þær verða til í samtali við fólkið sem vinnur á gólfinu á hverjum degi, þ.e.a.s. kennara, náms- og starfsráðgjafa og annað starfsfólk. Í stað þess að vera stöðugt í varnarbaráttu þurfum við að sækja fram með skýrri sýn og raunhæfum skrefum. Sóknarfæri hafa lengi verið til staðar en aldrei verið nýtt. Launamálin eru grundvallaratriði í því samhengi. Kennarar eiga ekki að þurfa að vera í tveimur störfum til að ná endum saman. Launin verða að endurspegla ábyrgðina, menntunina og það samfélagslega hlutverk sem starfinu fylgir. En hagur félagsmanna snýst ekki aðeins um laun heldur einnig um álag, starfsaðstæður og virðingu fyrir fagmennsku. Hérna höfum við tækifæri til að gera miklu betur. Eitt skýrasta dæmið er 7. grein kjarasamninga framhaldsskólakennara sem hefur verið hluti af samningunum frá árinu 2016 en aldrei fengist fjármagn fyrir. Greinin á að skapa svigrúm til nýrra verkefna, betri starfsaðstæðna og taka tillit til stærðar og samsetningar nemendahópsins svo eitthvað sé nefnt. Þetta er úrræði sem þegar hefur verið samið um og viðurkennt en aldrei hefur verið staðið við. Hvers vegna, spyr maður sig? Hérna liggur skýrt tækifæri til sóknar, ef vilji er til að fylgja samningum eftir af fullri alvöru. Önnur dæmi um raunæf skref sem hægt væri að taka: koma á réttlátu vinnumati fyrir iðn- og verkgreinakennara sem endurspeglar raunverulegt álag og ábyrgð í starfi fækka nemendum í hópum, laga hópastærðir og aðlaga vinnumati svo það bitni ekki á launum kennara innleiða mannúðleg úrræði, eins og t.d. aðstandendaleyfi, sem styður fólk á ólíkum skeiðum lífsins og getur dregið úr álagi og jafnvel kulnun stytta vinnuvikuna sem gæti stuðlað að bættri líðan kennara og starfsfólks auk þess að færa skólaumhverfið nær þeim breytingum sem hafa átt sér stað á vinnumarkaðinum á síðustu árum greina styttingu framhaldsskólans, þ.e.a.s. áhrif hennar á vinnutíma, nám o.fl. Gæðamenntun felst ekki í áramótaheitum Umræðan um vellíðan, kulnun og starfsaðstæður hefur setið á hakanum of lengi. Ef við viljum gæðamenntun þurfum við að opna fyrir umræðuna um starfsumhverfi kennara og náms- og starfsráðgjafa. Um líðan þeirra í starfi og hvernig við tryggjum umhverfi innan skólanna þar sem fólk hefur svigrúm til að sinna starfi sínu af fagmennsku og nemendur fá raunverulegan stuðning. Þetta eru ekki róttækar kröfur. Þetta eru skynsamleg skref sem byggja á gildandi samningum, reynslu starfsfólks og þeirri staðreynd að ef við viljum sterkt framhaldsskólakerfi verðum við að fjárfesta í fólkinu sem ber það uppi. Þannig leggjum við grunn að gæðamenntun. Ekki með áramótaheitum sem gleymast eftir því sem á árið líður. Tökum samtalið Ef við ætlum að horfa til framtíðar af alvöru þurfum við að tala saman. Ekki með því að endurtaka umræðu um vandamálin, heldur með skýra sýn, raunhæfar lausnir og sameiginlega ábyrgð að leiðarljósi. Það vita flestir að Félag framhaldsskólakennara er tilbúið í samtal og samvinnu en það er löngu tímabært að raungera slíkar samræður og komast að haldbærum niðurstöðum. Til þess að taka skynsamlegar ákvarðanir þarf líka að hlusta. Það er mikilvægt að heimsækja skóla landsins og ræða við kennara, náms- og starfsráðgjafa og nemendur. Ekki í stuttum eða yfirborðslegum kynningarheimsóknum, heldur með raunverulegan vilja í farteskinu til að skilja aðstæður og bregðast við þegar þörf krefur. Við eigum ekki að bíða eftir að aðrir móti umræðuna. Félag framhaldsskólakennara ásamt grasrótinni á að leiða hana og félagið á ekki aðeins að taka þátt, heldur móta dagskrána, koma fram með lausnir og krefjast þess að mark sé á þeim tekið. Munum að framtíðin er mótuð með okkur, ekki án okkar, því enginn þekkir þarfir framhaldsskólans betur en fólkið sem starfar þar á gólfinu á hverjum degi. Þannig skiljum við fortíðina eftir til að læra af og færum framhaldsskólann inn í framtíðina. Höfundur er framhaldsskólakennari við Fjölbrautaskólann við Ármúla, formaður skólamálanefndar Félags framhaldsskólakennara og frambjóðandi til formanns Félags framhaldsskólakennara. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Skóla- og menntamál Framhaldsskólar Stéttarfélög Mest lesið Gleðilegan dag læsis Auður Soffíu Björgvinsdóttir Skoðun Hjartaendurhæfing er fjárfesting Kristín E. Hólmgeirsdóttir,María Barbara Árnadóttir Skoðun Hvenær hættum við að vera þjóð? Jón Pétur Zimsen Skoðun Engin miskunn hjá Reykjavíkurborg Kolbrún Áslaugar Baldursdóttir Skoðun Stækkum kökuna í stað þess að sneiða hana þynnra Rannveig Grétarsdóttir Skoðun Fjárfestum í heilsu – Alþjóðlegur dagur sjúkraþjálfunar Gunnlaugur Már Briem Skoðun Hvaða gervigreind og skýjaþjónustur mega opinberir aðilar nota? Karl Thoroddsen Skoðun Þrautseigja í framlínunni Sigríður Björk Þormar Skoðun Sjálfbærni í heimi glötunar Kristján Logason Skoðun Öryggisnet í 90 ár! Unnur Sverrisdóttir Skoðun Skoðun Skoðun Við vissum að þetta myndi gerast Íris E. Gísladóttir skrifar Skoðun Betri gögn, minni stjórnsýsla? Karl Steinar Óskarsson skrifar Skoðun Eru tómstundir allra? Margrét Júlía Rafnsdóttir skrifar Skoðun Öryggisnet í 90 ár! Unnur Sverrisdóttir skrifar Skoðun Þrautseigja í framlínunni Sigríður Björk Þormar skrifar Skoðun Hjartaendurhæfing er fjárfesting Kristín E. Hólmgeirsdóttir,María Barbara Árnadóttir skrifar Skoðun Hvaða gervigreind og skýjaþjónustur mega opinberir aðilar nota? Karl Thoroddsen skrifar Skoðun Hvenær hættum við að vera þjóð? Jón Pétur Zimsen skrifar Skoðun Hver ertu þegar yfirmaðurinn fer út úr herberginu? Valerio Gargiulo skrifar Skoðun Fjárfestum í heilsu – Alþjóðlegur dagur sjúkraþjálfunar Gunnlaugur Már Briem skrifar Skoðun Varnir frá 2019, ógnir frá 2026 Sigvaldi Einarsson skrifar Skoðun Hvað varð um það að vilja betri heim? Indriði Þröstur Gunnlaugsson skrifar Skoðun Sjálfbærni í heimi glötunar Kristján Logason skrifar Skoðun Ert þú kannski frábær í ofbeldisforvörnum barna? Alfa Dröfn Jóhannsdóttir skrifar Skoðun Bókun 35, ESA og stjórnarskrá Íslands — hvenær verður EES samningurinn stjórnarskrárlega ólýðræðislegur? Eggert Guðmundsson skrifar Skoðun Gleðilegan dag læsis Auður Soffíu Björgvinsdóttir skrifar Skoðun Engin miskunn hjá Reykjavíkurborg Kolbrún Áslaugar Baldursdóttir skrifar Skoðun Brjóstagjöf er svoddan streð… Íris Erlingsdóttir skrifar Skoðun Stækkum kökuna í stað þess að sneiða hana þynnra Rannveig Grétarsdóttir skrifar Skoðun Er þetta ásættanleg frammistaða íslenskrar stjórnsýslu? Þorsteinn Narfason skrifar Skoðun Forsjálni því þetta reddast ekki Gunnar Hersveinn skrifar Skoðun Flokkur fólksins og fjárlögin Sigurjón Þórðarson skrifar Skoðun Svargrein við grein Hauks Arnþórssonar Jón Sigurgeirsson skrifar Skoðun Sjálfstæðisflokkurinn og Bókun 35. Fullveldi eftir hentugleikum? Júlíus Valsson skrifar Skoðun Hvar er náungakærleikurinn? Steindór J. Erlingsson skrifar Skoðun Það sem gerist þegar við segjum frá Olga Björt Þórðardóttir skrifar Skoðun Brýtur innviðaráðherra lög, aftur? Örvar Marteinsson skrifar Skoðun Ekkert okkar á að ganga þennan veg eitt Hólmfríður Jennýjar Árnadóttir skrifar Skoðun Kerfið sem sýndarveruleiki Sigurður Sigurðsson skrifar Skoðun Erum við að grafa undan lýðræðinu? Þorvaldur Ingi Jónsson skrifar Sjá meira
Skoðun Bókun 35, ESA og stjórnarskrá Íslands — hvenær verður EES samningurinn stjórnarskrárlega ólýðræðislegur? Eggert Guðmundsson skrifar