„Þetta leit kannski þægilega út því við gerðum þetta hrikalega vel“ Ingvi Þór Sæmundsson skrifar 16. janúar 2026 19:36 Gísli Þorgeir Kristjánsson og félagar í íslenska landsliðinu í handbolta fara vel af stað á EM. epa/Johan Nilsson Vel lá á Gísla Þorgeiri Kristjánssyni eftir sigur Íslands á Ítalíu, 39-26, í fyrsta leik á EM í handbolta í dag. Leikstjórnandinn var ánægður með hvernig til tókst hjá íslenska liðinu gegn því ítalska. „
Þetta leit kannski þægilega út því við gerðum þetta hrikalega vel,“ sagði Gísli í samtali við Val Pál Eiríksson eftir leikinn í Kristianstad í dag. Klippa: Viðtal við Gísla Þorgeir Mikið var talað um óhefðbundinn leikstíl Ítalíu í aðdraganda leiksins. Gísli hrífst af því sem Ítalir gera en segir að Íslendingar hafi leyst það vel í leiknum í dag. „Það er ákveðin fegurð í því að láta þetta líta einfalt út þegar þetta er það svo sannarlega ekki. Fyrir mína parta gera Ítalarnir þetta hrikalega vel og það verður að hrósa þeim fyrir hvað þeir gera þetta viðstöðulaust allan tímann. Óhefðbundið eða ekki óhefðbundið? Þú spilar bara handbolta eins og þú vilt spila handbolta. Ef það er árangursríkt er það gott en ef það er ekki þannig er það bara þannig,“ sagði Gísli. „Við gerðum lítið af tæknimistökum. Það er stór plús þegar þeir spila svona framarlega, að við séum ekki að missa boltann og fá einföld mörk í bakið. Þetta var mjög agaður leikur af okkar hálfu. Við vorum með gott leikplan. Auðvitað var smá stress og fiðringur fyrir leik og í byrjun en það var mikilvægt að við héldum okkar striki og héldum áfram samkvæmt leikplani og gerðum þetta hrikalega vel.“ Gísli segir að biðin eftir fyrsta leik á EM hafi verið löng. „Svo sannarlega. Maður vildi byrja þetta. Þetta er byrjað núna og byrjar vel en núna tekur við endurheimt, horfa á leikinn hjá þeim (Pólverjum) og vera klárir í aðra baráttu ekki á morgun heldur hinn,“ sagði Gísli. Hann bar sig vel eftir leikinn, þrátt fyrir mikil átök. „Ég er þreyttur en þetta er bara partur af stórmótum. Maður er orðinn vanur þessu. Maður er bara í takti hvað varðar endurheimt, hugsa vel um skrokkinn, borða vel og allar þessar klisjur. Núna er það bara næst á dagskrá,“ sagði Gísli. Viðtalið við Gísla má sjá í spilaranum hér fyrir ofan.
EM karla í handbolta 2026 Landslið karla í handbolta Tengdar fréttir Tölfræðin á móti Ítalíu: Þrír í íslenska liðinu með yfir 9,55 af tíu í sóknareinkunn Íslenska karlalandsliðið í handbolta vann afar sannfærandi þrettán marka sigur á Ítalíu, 39-26, í fyrsta leik sínum á Evrópumótinu í handbolta 2026. 16. janúar 2026 19:09 „Höllin var æðisleg“ Janus Daði Smárason átti mjög góðan leik með íslenska landsliðinu í kvöld og var valinn besti maður leiksins af mótshöldurum. Janus Daði kom inn af bekknum og skilaði átta mörkum úr níu skotum og bætti við fimm stoðsendingum. 16. janúar 2026 19:29 „Átti alveg von á því að þetta tæki lengri tíma“ „Ég er bara mjög ánægður með liðið. Mér fannst þetta frábær leikur og góður sigur af okkar hálfu“ sagði landsliðsþjálfarinn Snorri Steinn Guðjónsson eftir mjög öruggan 39-26 sigur gegn Ítalíu í fyrsta leik Íslands á EM. Hann byrjar nú að undirbúa liðið fyrir næsta leik gegn Póllandi en það verður eilítið erfitt. 16. janúar 2026 19:23 Einkunnir Strákanna okkar á móti Ítalíu: Her Napóleons gjörsigraður Íslenska karlalandsliðið í handbolta hóf keppni á EM 2026 með því rúlla yfir Ítalíu, 39-26, í F-riðli. Frammistaða Íslands var stórgóð á öllum sviðum. 16. janúar 2026 19:15 „Við vorum búnir að kortleggja þá“ „Mér fannst við tækla þetta mjög vel“ sagði Elvar Örn Jónsson eftir 39-26 sigur gegn óhefðbundnu liði Ítalíu í fyrsta leik Íslands á EM í handbolta. 16. janúar 2026 18:55 Mest lesið Hitti holu í höggi á fyrsta hring ævinnar Golf Hljóp lengra en nokkur annar íslenskur karlmaður hefur gert Sport FH-ingurinn sem er fljótastur í Evrópu: „Góð gen eða eitthvað“ Íslenski boltinn „Persónuleg mál sem ég þurfti að eiga við“ Körfubolti Svaf ekki í margar nætur áður en hann tók ákvörðunina um Arsenal Enski boltinn Veigar Páll í árs bann eftir fall á lyfjaprófi Körfubolti Hverjir eru þessir 19 Íslendingar sem hafa spilað í Meistaradeildinni? Fótbolti Fyrrverandi Stjörnumaður lést fertugur að aldri Handbolti Utan vallar: Sjúklingurinn er að deyja Enski boltinn „Af öllum stöðum þá er KA-heimilið alltaf best“ Sport Fleiri fréttir Fyrrverandi Stjörnumaður lést fertugur að aldri Uppgjörið: KA-Afturelding 32-28 | KA-menn upp í annað sætið Viktor Gísli og Baldur Fritz frábærir í Meistaradeildinni Reynir Þór með fimm marka leik í Meistaradeildinni Íslensku stelpurnar unnu Pólverja eftir flotta endurkomu Þórsarar unnu í fyrsta sinn síðan um miðjan september Topplið Hauka burstaði Fram í Lambhagahöllinni Fyrsta tap Kristianstad kom í Íslendingaslag Viktor Gísli öflugur í sigri Barcelona Gísli og Ómar drógu vagninn í sigri Magdeburgar Elvar markahæstur en Donni fagnaði sigri Reynir markahæstur í sigri Melsungen Kærkominn sigur KA/Þór FH gekk frá Fram í seinni hálfleik Sandra með tíu í sætum sigri á Fram en Haukar halda flugi Níu mörk Jóhannesar ekki nóg Finnur til með Arnari Sætur sigur Selfoss og Gunnar með fullkominn leik KA-menn brotlentu í Garðabæ Tólf marka Dagur kom ÍBV á rétta braut „Ekkert sem ég missti svefn yfir“ Snorri Steinn valdi tuttugu leikmenn fyrir komandi verkefni Átján ára með fjórtán mörk og Haukar fljúga áfram Afturelding í annað sæti Stórleikur Hauks í sáru tapi og Andri náði ekki að mæta pabba Úr leik þrátt fyrir sjö mörk Einars Braga Gísli markahæstur og Bjarki fagnaði stórsigri Nýr styrktaraðili dönsku úrvalsdeildarinnar í handbolta umdeildur Arnór Snær: „Þvílíka veislan“ FH þurfti að þola annan skell í Portúgal Sjá meira
Tölfræðin á móti Ítalíu: Þrír í íslenska liðinu með yfir 9,55 af tíu í sóknareinkunn Íslenska karlalandsliðið í handbolta vann afar sannfærandi þrettán marka sigur á Ítalíu, 39-26, í fyrsta leik sínum á Evrópumótinu í handbolta 2026. 16. janúar 2026 19:09
„Höllin var æðisleg“ Janus Daði Smárason átti mjög góðan leik með íslenska landsliðinu í kvöld og var valinn besti maður leiksins af mótshöldurum. Janus Daði kom inn af bekknum og skilaði átta mörkum úr níu skotum og bætti við fimm stoðsendingum. 16. janúar 2026 19:29
„Átti alveg von á því að þetta tæki lengri tíma“ „Ég er bara mjög ánægður með liðið. Mér fannst þetta frábær leikur og góður sigur af okkar hálfu“ sagði landsliðsþjálfarinn Snorri Steinn Guðjónsson eftir mjög öruggan 39-26 sigur gegn Ítalíu í fyrsta leik Íslands á EM. Hann byrjar nú að undirbúa liðið fyrir næsta leik gegn Póllandi en það verður eilítið erfitt. 16. janúar 2026 19:23
Einkunnir Strákanna okkar á móti Ítalíu: Her Napóleons gjörsigraður Íslenska karlalandsliðið í handbolta hóf keppni á EM 2026 með því rúlla yfir Ítalíu, 39-26, í F-riðli. Frammistaða Íslands var stórgóð á öllum sviðum. 16. janúar 2026 19:15
„Við vorum búnir að kortleggja þá“ „Mér fannst við tækla þetta mjög vel“ sagði Elvar Örn Jónsson eftir 39-26 sigur gegn óhefðbundnu liði Ítalíu í fyrsta leik Íslands á EM í handbolta. 16. janúar 2026 18:55