Sjáðu hvernig United vann City og öll mörkin úr enska í gær Ingvi Þór Sæmundsson skrifar 18. janúar 2026 10:00 Markaskorarar Manchester United gegn Manchester City, Bryan Mbeumo og Patrick Dorgu. getty/Copa Michael Carrick fékk draumabyrjun í starfi þjálfara Manchester United, Liverpool gerði jafntefli í fjórða leiknum í röð, enn hitnar undir Thomas Frank hjá Tottenham og Arsenal mistókst að skora annan leikinn í röð.
United lagði Manchester City að velli, 2-0, í borgarslagnum í 22. umferð ensku úrvalsdeildarinnar í gær. Bryan Mbeumo og Patrick Dorgu gerðu mörk Rauðu djöflanna sem skoruðu einnig þrjú mörk sem voru dæmd af. Florian Wirtz kom Liverpool yfir gegn Burnley á Anfield en Marcus Edwards jafnaði fyrir nýliðana og þar við sat, 1-1. Dominik Szoboszlai skaut í slá úr vítaspyrnu í fyrri hálfleik. Chelsea vann 2-0 sigur á Brentford í fyrsta deildarleiknum undir stjórn Liams Rosenior. Joao Pedro og Cole Palmer (víti) skoruðu mörk Chelsea. Eftir tíu leiki í röð án sigurs vann West Ham United 1-2 sigur á Tottenham. Crysencio Summerville kom Hömrunum yfir, Cristian Romero jafnaði fyrir Spurs en Callum Wilson skoraði svo sigurmark heimamanna þegar þrjár mínútur voru komnar fram yfir venjulegan leiktíma. Tottenham hefur gengið illa að undanförnu og staða Frank þykir ótrygg. Lukas Nmecha tryggði Leeds United sigur á Fulham á Elland Road, 1-0, með marki í uppbótartíma. Nýliðar Sunderland halda áfram að gera það gott en í gær sigruðu þeir Crystal Palace, 2-1. Enzo Le Fée og Brian Brobbey skoruðu mörk Sunderland en Yeremy Pino mark Palace. Þá gerðu Nottingham Forest og Arsenal markalaust jafntefli á City Ground. Skytturnar eru með sjö stiga forskot á toppi deildarinnar. Öll mörkin úr leikjum gærdagsins í ensku úrvalsdeildinni má sjá hér fyrir ofan.
Enski boltinn Tengdar fréttir Mætti brjálaður í viðtal og hjólaði í stjórnina Oliver Glasner, knattspyrnustjóri enska úrvalsdeildarfélagsins Crystal Palace er allt annað en sáttur við forráðamenn félagsins og lét óánægju sína í ljós í viðtali eftir tap gegn Sunderland í dag. 17. janúar 2026 19:50 Pirrandi kvöld fyrir topplið Arsenal í Skírisskógi Topplið ensku úrvalsdeildarinnar í fótbolta, Arsenal, þurfti að sætta sig við markalaust jafntefli við Nottingham Forest í lokaleik dagsins. 17. janúar 2026 19:27 Kærkominn sigur í fyrsta deildarleik Rosenior með Chelsea Chelsea hafði betur gegn Brentford með tveimur mörkum gegn engu þegar að liðin mættust á Stamford Bridge í Lundúnum í dag í 22.umferð ensku úrvalsdeildarinnar í fótbolta. 17. janúar 2026 16:58 Dagar Frank hjá Tottenham taldir? West Ham United vann Lundúnaslag dagsins í ensku úrvalsdeildinni gegn Tottenham í leik sem gæti markað endalok stjóratíðar Thomas Frank hjá Tottenham. Lokatölur 2-1 sigur West Ham. 17. janúar 2026 17:03 Víti í súginn í fjórða jafntefli Liverpool í röð Englandsmeistarar Liverpool gerðu 1-1 jafntefli við nýliða Burnley á Anfield í ensku úrvalsdeildinni í dag. Þetta var fjórða jafntefli Rauða hersins í röð. 17. janúar 2026 16:55 Markaskorarinn Mbeumo: „Old Trafford var ótrúlegur í dag“ Bryan Mbeumo, sem kom Manchester United á bragðið í 2-0 sigrinum á Manchester City, var að vonum hæstánægður eftir leikinn á Old Trafford. Hann segir margt hafa breyst hjá United síðan hann fór í Afríkukeppnina í skömmu fyrir jól. 17. janúar 2026 15:46 Draumabyrjun hjá Carrick Michael Carrick fékk sannkallaða draumabyrjun sem þjálfari Manchester United en liðið lagði Manchester City að velli, 2-0, í fyrsta leik dagsins í ensku úrvalsdeildinni. Bryan Mbeumo og Patrick Dorgu skoruðu mörkin í seinni hálfleik. 17. janúar 2026 14:25 Mest lesið Sagði frá því hvernig hann kom upp um hneyksli Infantino Fótbolti Jón Daði kvaddi á sama degi og Viðar skoraði fimm Íslenski boltinn Ætlaði bara að vinna systur sína í Fantasy en vann svo alla í heiminum Enski boltinn „Engar afsakanir“ hjá Carrick eftir tapið á móti Amorim Enski boltinn The Weeknd um að kenna að Arsenal og City mætast ekki á Wembley Enski boltinn Enn engin skýring á dauðaslysi hjólreiðakappans Sport Táningur sló 470 metra högg á DP World Tour Golf Selfoss og Jón Daði semja um starfslok Íslenski boltinn Stjarnan fær 208 sentímetra miðherja Körfubolti Strákarnir sekúndum frá gullinu eftir frábæra frammistöðu Körfubolti Fleiri fréttir Liverpool og Como skildu jöfn í markalausum leik West Ham kaupir Arne Engels The Weeknd um að kenna að Arsenal og City mætast ekki á Wembley Ætlaði bara að vinna systur sína í Fantasy en vann svo alla í heiminum „Engar afsakanir“ hjá Carrick eftir tapið á móti Amorim Ruben Amorim fagnaði sigri á móti Manchester United Orri Steinn byrjaði í tapleik gegn Chelsea Romero yfirgefur Tottenham og fer til Atlético Madrid Setti sjálfan sig á lista yfir hörmulegustu félagaskiptin Nýliðarnir eyða meira en Manchester United Segir kominn tíma fyrir John Terry að fara að læra leikreglurnar Er Enzo Fernandez tveggja Rodri virði? Víti í blálokin kom í veg fyrir að mark Andra væri sigurmark Sancho neitar liðum á Englandi og vill fara erlendis Jeff Bezos kaupir hlut í Liverpool Ætla ekki að bjóða í Enzo Fernández í dag Arsenal á eftir fyrrverandi leikmanni Liverpool Á leið til Sádi-Arabíu eftir aðeins eitt ár hjá City Carrick vill fá fleiri nýja leikmenn í Man United Neville svarar Lineker: Disney+ kaupir réttinn að The Overlap Orðaður við Chelsea og Manchester United en vill ekki fara Tielemans biðst afsökunar Þurfti að bíða í 212 daga eftir fyrsta leik með Villa: „Haaland í mótun“ Spurs samþykkir tilboð Atlético í Romero Fékk rautt, tók liðið út af og gaf skít í vítakeppni Arteta segir að Arsenal vilji gera meira á markaðnum Segir lykilatriði fyrir titilvonir Liverpool að ná í Barcola Fabrizio Romano að hætta Arsenal og Man. United unnu bæði í vító Chelsea heldur áfram að bæta við sig „gömlum“ leikmönnum Sjá meira
Mætti brjálaður í viðtal og hjólaði í stjórnina Oliver Glasner, knattspyrnustjóri enska úrvalsdeildarfélagsins Crystal Palace er allt annað en sáttur við forráðamenn félagsins og lét óánægju sína í ljós í viðtali eftir tap gegn Sunderland í dag. 17. janúar 2026 19:50
Pirrandi kvöld fyrir topplið Arsenal í Skírisskógi Topplið ensku úrvalsdeildarinnar í fótbolta, Arsenal, þurfti að sætta sig við markalaust jafntefli við Nottingham Forest í lokaleik dagsins. 17. janúar 2026 19:27
Kærkominn sigur í fyrsta deildarleik Rosenior með Chelsea Chelsea hafði betur gegn Brentford með tveimur mörkum gegn engu þegar að liðin mættust á Stamford Bridge í Lundúnum í dag í 22.umferð ensku úrvalsdeildarinnar í fótbolta. 17. janúar 2026 16:58
Dagar Frank hjá Tottenham taldir? West Ham United vann Lundúnaslag dagsins í ensku úrvalsdeildinni gegn Tottenham í leik sem gæti markað endalok stjóratíðar Thomas Frank hjá Tottenham. Lokatölur 2-1 sigur West Ham. 17. janúar 2026 17:03
Víti í súginn í fjórða jafntefli Liverpool í röð Englandsmeistarar Liverpool gerðu 1-1 jafntefli við nýliða Burnley á Anfield í ensku úrvalsdeildinni í dag. Þetta var fjórða jafntefli Rauða hersins í röð. 17. janúar 2026 16:55
Markaskorarinn Mbeumo: „Old Trafford var ótrúlegur í dag“ Bryan Mbeumo, sem kom Manchester United á bragðið í 2-0 sigrinum á Manchester City, var að vonum hæstánægður eftir leikinn á Old Trafford. Hann segir margt hafa breyst hjá United síðan hann fór í Afríkukeppnina í skömmu fyrir jól. 17. janúar 2026 15:46
Draumabyrjun hjá Carrick Michael Carrick fékk sannkallaða draumabyrjun sem þjálfari Manchester United en liðið lagði Manchester City að velli, 2-0, í fyrsta leik dagsins í ensku úrvalsdeildinni. Bryan Mbeumo og Patrick Dorgu skoruðu mörkin í seinni hálfleik. 17. janúar 2026 14:25