Bær atvinnulífsins Orri Björnsson skrifar 19. janúar 2026 09:30 Hafnfirðingar hafa á síðustu árum upplifað mikinn uppgang í atvinnulífinu í bænum. Á þessu kjörtímabili fjölgar skráðum atvinnueignum um á annað þúsund. Fjölmörg fyrirtæki hafa flutt til bæjarins og önnur stóraukið við umsvif sín. Ágætt dæmi um þetta er Icelandair, stærsta fyrirtæki landsins, sem flutti höfuðstöðvar sínar nýverið til Hafnarfjarðar. Það er ánægjuefni að fylgjast með þessari þróun og fátt sem bendir til annars en að hún haldi áfram. Framboð lóða Stöðugt framboð góðra lóða er auðvitað forsenda þess að hér verði áfram kraftmikil uppbygging og fjölgun fyrirtækja. Á þessu ári mun Hafnarfjarðarbær halda áfram á sömu braut og undanfarin ár og úthluta tugum lóða undir verðmætaskapandi fyrirtæki. Bygging mun hefjast á yfir eitt hundrað þúsund fermetrum af atvinnuhúsnæði og mikill fjöldi starfa flyst í bæinn. Þetta er ánægjuefni og styður auðvitað við samfélagið á marga vegu. Kostirnir við að starfa í Hafnarfirði Það fylgja því margir kostir fyrir fyrirtæki að starfa í bænum, ekki bara fyrir okkur Hafnfirðinga. Eins og flestir vita þá getur ferðatími verið leiðinlega langur á höfuðborgarsvæðinu og ekki bætir stefna vinstri manna í Reykjavík þá stöðu. Þrengingar á götum, tregða við að auka afköst á gatnamótum, ótrúleg árátta að fækka bílastæðum um alla borg og þrengja almennt að fjölskyldubílnum. Þeir sem sækja vinnu til Hafnarfjarðar komast hraðar yfir þar sem þeir aka almennt í öfuga átt við megin umferðarþungann. Það styttir ferðatíma og léttir á gatnakerfinu fyrir hina sem ekki eru svo heppnir að vinna í Hafnarfirði. Svo má ekki gleyma því að við leggjum mikla áherslu á að hafa næg bílastæði hvort sem er á atvinnu- eða íbúðasvæðum bæjarins. Áfram með atvinnulífinu Sjálfstæðisflokkurinn hefur alltaf verið flokkur atvinnulífsins og þannig verður það áfram. Við munum stilla gjöldum í hóf, hér eftir sem hingað til, og tryggja með öllum ráðum að áfram verði gott framboð lóða fyrir fyrirtæki. Ég legg mikla áherslu á að við aukum framboð af hágæða skrifstofuhúsnæði og lóðum fyrir höfuðstöðvar stærri fyrirtækja. Með því aukum við enn á fjölbreytni atvinnulífsins og gerum fleirum kleift að starfa í bænum. Þannig munum við vinna áfram fyrir Hafnarfjörð. Höfundur er oddviti Sjálfstæðisflokksins í Hafnarfirði. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Skoðun: Sveitarstjórnarkosningar 2026 Orri Björnsson Mest lesið Hver á arfinn? Gunnar Ármannsson Skoðun Í hvaða vitleysu erum við stödd? Ragnheiður Stephensen Skoðun Skuggamansal á Íslandi Sævar Þór Jónsson Skoðun Landsleikar RÚV! Sigurlín Margrét Sigurðardóttir Skoðun Grateful Dead á Sæbrautinni Júlíus Valsson Skoðun Skattlagning til velsældar Hannes Lúðvíksson Skoðun Hvar eru þingmenn NV-kjördæmis? Sigurður Páll Jónsson Skoðun Noregur styrkir EES – Ísland verður að fylgja Rögnvaldur Guðmundsson Skoðun Við erum ekki jafn ömurleg og við höldum Þorsteinn Tjörvi Sigurðsson Skoðun Baráttan er ekki búin Mordekaí Elí Esrason Skoðun Skoðun Skoðun Opið bréf til Húnboga Þórs Árnasonar Margrét Rut Eddudóttir skrifar Skoðun Hvar eru þingmenn NV-kjördæmis? Sigurður Páll Jónsson skrifar Skoðun Noregur styrkir EES – Ísland verður að fylgja Rögnvaldur Guðmundsson skrifar Skoðun Landsleikar RÚV! Sigurlín Margrét Sigurðardóttir skrifar Skoðun Við erum ekki jafn ömurleg og við höldum Þorsteinn Tjörvi Sigurðsson skrifar Skoðun Bjórinn sem slapp við suðurferðina Elís Pétur Elísson skrifar Skoðun Í hvaða vitleysu erum við stödd? Ragnheiður Stephensen skrifar Skoðun Skattlagning til velsældar Hannes Lúðvíksson skrifar Skoðun Baráttan er ekki búin Mordekaí Elí Esrason skrifar Skoðun Hver á arfinn? Gunnar Ármannsson skrifar Skoðun Að tala um dauðann er að tala um lífið Ingrid Kuhlman skrifar Skoðun Til hamingju Reykjanesbær með leikskólana okkar Guðný Birna Guðmundsdóttir skrifar Skoðun Skuggamansal á Íslandi Sævar Þór Jónsson skrifar Skoðun Grateful Dead á Sæbrautinni Júlíus Valsson skrifar Skoðun Þjóðarsjúkrahúsið seinkar Sigurður Sigurðsson skrifar Skoðun Er gervigreindin spegill mannkyns Kristján Logason skrifar Skoðun Er Þórarinn Tyrfings nýja framtíð Vogs? Bergþóra Haralds Eiðsdóttir skrifar Skoðun Tólf ára ákvað ég að gera bíó Arnar Benjamín Kristjánsson skrifar Skoðun Hvað segja gögnin í raun um ásakanir á hendur séra Friðriki Theódór S. Halldórsson skrifar Skoðun Það er sárt að tapa kosningum Heimir Már Pétursson skrifar Skoðun Er enn þess virði að leggja á sig langt háskólanám? Gunnar Alexander Ólafsson skrifar Skoðun Engin fjölskylda á að þurfa að standa ein Eydís Ásbjörnsdóttir skrifar Skoðun Þegar reglurnar gilda ekki jafnt Ágúst Karlsson skrifar Skoðun Utanríkisstefna án ábyrgðar? Erna Bjarnadóttir skrifar Skoðun Heiður hússins: Um kynferðisofbeldi í nánum samböndum Hrafnhildur Kjerúlf Sigmarsdóttir skrifar Skoðun PISA-skellur en hvað svo? Inga Sæland skrifar Skoðun Hver verndar velferð barna þegar náttúran blandar kynjunum? Jón Þór Ólafsson skrifar Skoðun Einhliða bergmálshellir og heimildir sem hrynja Lilja Benatov Hjartar skrifar Skoðun KEMUR TÓLFAN? Hilmar Jökull Stefánsson skrifar Skoðun Ábyrgðinni má ekki útvista til tækninnar Karen Ósk Nielsen Björnsdóttir skrifar Sjá meira
Skoðun Heiður hússins: Um kynferðisofbeldi í nánum samböndum Hrafnhildur Kjerúlf Sigmarsdóttir skrifar