Mega Birta og Stein sitja við fullorðinsborðið? Dagbjört Hákonardóttir og Gunnar Örn Stephensen skrifa 20. janúar 2026 13:30 Það eru sveitarstjórnarkosningar í aðsigi og það þýðir aðeins eitt: Ungt fólk kemst loksins á dagskrá hjá stjórnmálafólki og það er bitist um athyglina. Þessu sama dagskrárvaldi fólksins sem á að erfa landið lýkur hins vegar oftar en ekki um leið og talið er upp úr kjörkössunum. Þetta verða allir stjórnmálaflokkar að taka til sín að einhverju leyti. Ríkisstjórnin leggur reyndar sitt af mörkum til málaflokksins með því að eiga frumkvæði að samvinna við Reykjavíkurborg í húsnæðismálum sem mun auðvelda ungu fólki að eignast húsnæði. Við þurfum hin vegar að gera meira. Þannig þurfum við að fjölga þeim sætum sem raunverulega bjóðast ungu fólki við stóra borðið. Hvaða fólk er þetta? Oft er talað niður til ungliðastarfs í stjórnmálum. Almennt er miðað við að fólk á aldrinum 18-35 ára teljist til ungra kjósenda og þar með ungliða í stjórnmálaflokkum. Fjölmörg dæmi eru þess að yngri einstaklingar alveg niður í 15 ára gangi taki þátt í stjórnmálastarfi og því á að fagna. Enn aðrir lifa í afneitun um að teljast ekki lengur til ungliða fram yfir fertugt líkt og annar greinarhöfunda gengst fúslega við. Þær stjórnmálahreyfingar sem hafa til þess fjölda og burði vita að sterk ungliðahreyfing er forsenda öflugrar grasrótar, sjálfbærrar endurnýjunar í starfinu og nauðsynlegs aðhalds. Virtustu og farsælustu stjórnmálamenn okkar jafnaðarmanna á alþjóðasviðinu hafa lýst því að bakgrunnur þeirra úr ungliða- og háskólapólitík hafi gert þau að betri leiðtogum og gert þeim kleift að hafa betri og dýpri skilning á athugasemdum og gagnrýni úr röðum ungs fólks þegar í valdastól er komið. Hér má nefna stjórnmálafólk á borð við Jens Stoltenberg fyrrverandi forsætisráðherra og núverandi fjármálaráðherra Noregs, Magdalenu Andersson fyrrverandi forsætisráðherra Svíþjóðar og leiðtogi stjórnarandstöðunnar þar í landi, Mette Frederiksen forsætisráðherra Danmerkur og Sönnu Marin, fyrrverandi forsætisráðherra Finnlands. Af hverju skiptir rödd þeirra máli? Samfylkingin – jafnaðarflokkur Íslands hefur almennt mælst stærsti stjórnmálaflokkur landsins í hartnær þrjú ár. Þessi mikla velgengni er ekki sjálfsprottin heldur afrakstur áralangrar vinnu og leitar inn á við. Það má líka horfa til þess að stuðningur við endurnýjun forystu Samfylkingarinnar og kjör Kristrúnar Frostadóttur barst ekki síst úr öflugri ungliðahreyfingu – Ungu jafnaðarfólki – sem mörg lögðu á sig mikla vinnu til að veita ungum hagfræðingi brautargengi til að leiða annan lista flokksins í Reykjavík fyrir alþingiskosningarnar 2021. Velgengni Samfylkingarinnar sem stjórnmálaflokks hefur jafnframt falist stöðugu í samtali við hinn almenna kjósenda – fólkið í landinu þar sem það er fyrir statt. Þá skiptir máli að tala við alla hópa og ná til þeirra. Við gerum það ekki jafn vel ef framboðslistarnir okkar um allt land endurspegla ekki ábyrgð og hlutdeild ungs fólks i lýðræðissamfélaginu sem við ætlum að rækta og viðhalda. Hér er enginn að segja að fólk sem ekki tók þátt í ungliðahreyfingum eða er komið yfir miðjan aldur geti ekki haldið málefnum ungra á lofti eða eigi ekki erindi. Ungt fólk þarf hins vegar líka að eiga sæti við borðið - ekki síst í jafnaðarmannaflokki sem ræktar sína grasrót vel. Er nauðsynlegt að kjósa þau? Samkvæmt tölum Hagstofunnar voru íbúar Reykjavíkurborgar í upphafi síðasta árs 138.772 talsins. Þar af eru íbúar á aldrinum 18-35 ára 37.645. Ætla má að ungt fólk telji að minnsta kosti fjórðung kjósenda til borgarstjórnarkosninganna sem fara fram í maí, með fyrirvara um að hlutfallið endurspegli fjölda kjörgengra í kjörskránni í vor. Fæstir hafa gert upp endanlegan hug sinn, en málefnin sem fá að ráða för munu snúast að miklu leyti um hagsmuni ungs fólks sem þarf á stuðningi samfélagsins til að standa undir þeirri ábyrgð sem þeim er sannarlega falin í sínu daglega lífi. Hver eru málin? Ungt jafnaðarfólk í Reykjavík hefur nú tekið höndum saman til stuðnings Bjarnveigu Birtu Bjarnadóttur rekstrarstjóra í 3. sæti og Stein Olav Romslo stærðfræðikennara í 4. sæti. Borgarstjórnarflokkur Samfylkingarinnar myndi njóta góðs af öflugum fulltrúum með sterkan bakgrunn í grasrótarstarf flokksins sem og atvinnulífinu. Mestu máli skiptir að þau upplifa sjálf þær áskoranir sem ungar fjölskyldur í Reykjavík kljást við dag frá degi. Við jafnaðarmenn eigum að hafna vaxandi stéttaskiptingu og stemma stigu við misskiptingu gæðanna sem heldur áfram að aukast um allan heim - ójöfnuði sem bitnar allra verst á ungu fólki. Ekkert um ungt fólk án ungs fólks. Við viljum sjá Birtu og Stein við stóra borðið. Dagbjört er þingmaður Samfylkingarinnar í Reykjavíkurkjördæmi norður og sat í stjórn Ungs jafnaðarfólks 2003-2006. Gunnar Örn er meistaranemi og sat í stjórn Ungs Jafnaðarfólks 2021-2024. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Dagbjört Hákonardóttir Skoðun: Sveitarstjórnarkosningar 2026 Mest lesið Hver á arfinn? Gunnar Ármannsson Skoðun Í hvaða vitleysu erum við stödd? Ragnheiður Stephensen Skoðun Skuggamansal á Íslandi Sævar Þór Jónsson Skoðun Landsleikar RÚV! Sigurlín Margrét Sigurðardóttir Skoðun Grateful Dead á Sæbrautinni Júlíus Valsson Skoðun Skattlagning til velsældar Hannes Lúðvíksson Skoðun Baráttan er ekki búin Mordekaí Elí Esrason Skoðun Við erum ekki jafn ömurleg og við höldum Þorsteinn Tjörvi Sigurðsson Skoðun Noregur styrkir EES – Ísland verður að fylgja Rögnvaldur Guðmundsson Skoðun Til hamingju Reykjanesbær með leikskólana okkar Guðný Birna Guðmundsdóttir Skoðun Skoðun Skoðun Opið bréf til Húnboga Þórs Árnasonar Margrét Rut Eddudóttir skrifar Skoðun Hvar eru þingmenn NV-kjördæmis? Sigurður Páll Jónsson skrifar Skoðun Noregur styrkir EES – Ísland verður að fylgja Rögnvaldur Guðmundsson skrifar Skoðun Landsleikar RÚV! Sigurlín Margrét Sigurðardóttir skrifar Skoðun Við erum ekki jafn ömurleg og við höldum Þorsteinn Tjörvi Sigurðsson skrifar Skoðun Bjórinn sem slapp við suðurferðina Elís Pétur Elísson skrifar Skoðun Í hvaða vitleysu erum við stödd? Ragnheiður Stephensen skrifar Skoðun Skattlagning til velsældar Hannes Lúðvíksson skrifar Skoðun Baráttan er ekki búin Mordekaí Elí Esrason skrifar Skoðun Hver á arfinn? Gunnar Ármannsson skrifar Skoðun Að tala um dauðann er að tala um lífið Ingrid Kuhlman skrifar Skoðun Til hamingju Reykjanesbær með leikskólana okkar Guðný Birna Guðmundsdóttir skrifar Skoðun Skuggamansal á Íslandi Sævar Þór Jónsson skrifar Skoðun Grateful Dead á Sæbrautinni Júlíus Valsson skrifar Skoðun Þjóðarsjúkrahúsið seinkar Sigurður Sigurðsson skrifar Skoðun Er gervigreindin spegill mannkyns Kristján Logason skrifar Skoðun Er Þórarinn Tyrfings nýja framtíð Vogs? Bergþóra Haralds Eiðsdóttir skrifar Skoðun Tólf ára ákvað ég að gera bíó Arnar Benjamín Kristjánsson skrifar Skoðun Hvað segja gögnin í raun um ásakanir á hendur séra Friðriki Theódór S. Halldórsson skrifar Skoðun Það er sárt að tapa kosningum Heimir Már Pétursson skrifar Skoðun Er enn þess virði að leggja á sig langt háskólanám? Gunnar Alexander Ólafsson skrifar Skoðun Engin fjölskylda á að þurfa að standa ein Eydís Ásbjörnsdóttir skrifar Skoðun Þegar reglurnar gilda ekki jafnt Ágúst Karlsson skrifar Skoðun Utanríkisstefna án ábyrgðar? Erna Bjarnadóttir skrifar Skoðun Heiður hússins: Um kynferðisofbeldi í nánum samböndum Hrafnhildur Kjerúlf Sigmarsdóttir skrifar Skoðun PISA-skellur en hvað svo? Inga Sæland skrifar Skoðun Hver verndar velferð barna þegar náttúran blandar kynjunum? Jón Þór Ólafsson skrifar Skoðun Einhliða bergmálshellir og heimildir sem hrynja Lilja Benatov Hjartar skrifar Skoðun KEMUR TÓLFAN? Hilmar Jökull Stefánsson skrifar Skoðun Ábyrgðinni má ekki útvista til tækninnar Karen Ósk Nielsen Björnsdóttir skrifar Sjá meira
Skoðun Heiður hússins: Um kynferðisofbeldi í nánum samböndum Hrafnhildur Kjerúlf Sigmarsdóttir skrifar