Fjárfestum í farsælli framtíð Líf Lárusdóttir skrifar 22. janúar 2026 14:30 Akraneskaupstaður var fyrsta sveitarfélagið á Íslandi til að innleiða Invest in Play í öllum leikskólum. Sú ákvörðun byggði á rannsóknum, faglegri þekkingu og þeirri einföldu en mikilvægu sýn að snemmtæk fjárfesting í foreldrafærni er ein arðbærasta fjárfesting sem sveitarfélög geta ráðist í. Tengjumst í leik (Invest in Play) er námskeið fyrir foreldra og forráðamenn barna þar sem áhersla er lögð á jákvæð samskipti og samveru foreldra og barna í gegnum leik. Með því myndast góð tengsl milli foreldra og barna og samband þeirra styrkist. Efni og innihald námskeiðsins er byggt á gagnreyndum aðferðum og rannsóknum á alþjóðlegum vettvangi. Á námskeiðinu er foreldrum kenndar áhrifaríkar aðferðir sem auka sjálfsöryggi í uppeldishlutverkinu, ásamt því að stuðla að bættri núvitund og draga úr streitu, auka sjálfstjórn og skilning á eigin þörfum sem og þörfum barna sinna. Foreldrar eru mikilvægustu aðilarnir í lífi hvers barns og eru jafnframt oft fyrst til að verða vör við að barn glími við áskoranir – hvort sem þær tengjast hegðun, líðan eða félagslegum samskiptum. Þrátt fyrir það er engin formleg krafa gerð um undirbúning eða þjálfun í foreldrahlutverkinu, þótt það sé eitt stærsta og mikilvægasta verkefni lífsins. Snemmtæk íhlutun er ekki kostnaður – hún er í raun sparnaður Í farsældarlöggjöfinni er lögð rík áhersla á snemmtæka íhlutun: að bregðast við áður en vandi verður djúpstæður, kostnaðarsamur og erfiður viðureignar. Þar liggur kjarni málsins. Rannsóknir sýna að hegðunarerfiðleikar ungra barna geta verið forspá fyrir alvarlegan vanda síðar á lífsleiðinni – allt frá námsörðugleikum til félagslegra vandamála, neyslu og jafnvel afbrotahegðunar. Áhættuþættir á fyrstu fimm æviárum barns geta haft afgerandi áhrif til framtíðar. Í áhugaverðu erindi Hjördísar Evu Þórðardóttur, sérfræðings í farsæld og réttindum barna á fjármálaráðstefnu sveitarfélaga síðastliðið haust fjallaði hún um áætlaða raunávöxtun samfélagslegra fjárfestinga. Hún nefndi sem dæmi Keflavíkurflugvöll með um 5% raunávöxtun og Kárahnjúkavirkjun með um 7%. Til samanburðar er áætlað að Invest in Play skili um 12% raunávöxtun. Einn lykilþáttur er snemmtækur stuðningur við foreldra barna á aldrinum 0–5 ára – þar sem gæði fræðslu, aðgengi og rétt tímasetning er lykill að árangri og arðsemi slíkrar fjárfestingar. Verkefni eins og Tengjumst í leik byggir á sterkum fræðilegum grunni og gagnreyndum aðferðum og styður við foreldra í sínu hlutverki, m.a. með því að byggja upp sjálfstraust og sjálfstjórn foreldra sem er ein helsta stoðin í því að foreldrar geti sjálf veitt snemmtækan stuðning við t.d. málþroska barna sinna og félagsfærni. Þessir þættir vega hátt þegar kemur t.d. að farsælli skólagöngu barna og til þess að mæta öðrum útkomubreytum sem draga úr velsæld. Reynslan úr okkar sveitarfélagi Verkefnið hér hófst haustið 2024 eftir að fulltrúar leikskólanna sátu leiðbeinendanámskeið og fengu handleiðslu frá höfundum Invest in Play. Námskeiðin hafa hingað til verið 14 talsins, og tvö til viðbótar eru nú hafin. Foreldrar á tæplega 100 heimilum á Akranesi, eða um 150 barna, hafa þegar sótt námskeiðin. Verkefnið er jafnframt hluti af aðgerðaráætlun Akraneskaupstaðar vegna innleiðingar Barnasáttmálans. Þótt stutt sé síðan við hófum innleiðingu erum við þegar farin að sjá sterkar vísbendingar um að verkefnið sé að skila tilætluðum áhrifum, m.a. inn í önnur þjónustukerfi eins og velferðarþjónustu. Það er okkar öfluga starfsfólk og stjórnendur leikskólanna sem bera hitann og þungann af verkefninu og hafa sinnt því af einstakri fagmennsku og einlægum áhuga. Innleiðingin okkar hefur vakið athygli bæði á landsvísu og utan landsteinanna en án starfsfólksins og leikskólastjórnenda værum við ekki í þeirri stöðu sem við erum í dag og af þeim er ég virkilega stolt. Kjörnir fulltrúar um land allt á sveitarstjórnarstiginu standa frammi fyrir sömu áskorunum: auknum þörfum og takmörkuðum fjármunum. Þrátt fyrir þær vísbendingar sem við sjáum nú þegar hér á Akranesi þá er það nú samt þannig að snemmtæk íhlutun skilar sér sjaldnast innan eins kjörtímabils. Með aðgerðum dagsins uppskerum við mögulega ekki ávinning fyrr en í fjarlægri framtíð. Þá reynir sem oft áður á hugrekki okkar, að fjárfesta snemma og markvisst til að styðja við farsæld barna, efla samstarf heimilis og skóla, draga úr þörf fyrir dýrari úrræði síðar meir og byggja upp sterkari samfélög. Spurningin er því að mínu mati ekki hvort við höfum efni á að fjárfesta í snemmtækri íhlutun – heldur hvort við höfum efni á að gera það ekki. Höfundur er formaður bæjarráðs Akraneskaupstaðar o oddviti Sjálfstæðisflokksins á Akranesi. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Skoðun: Sveitarstjórnarkosningar 2026 Akranes Mest lesið Gleðilegan dag læsis Auður Soffíu Björgvinsdóttir Skoðun Hjartaendurhæfing er fjárfesting Kristín E. Hólmgeirsdóttir,María Barbara Árnadóttir Skoðun Hvenær hættum við að vera þjóð? Jón Pétur Zimsen Skoðun Stækkum kökuna í stað þess að sneiða hana þynnra Rannveig Grétarsdóttir Skoðun Engin miskunn hjá Reykjavíkurborg Kolbrún Áslaugar Baldursdóttir Skoðun Fjárfestum í heilsu – Alþjóðlegur dagur sjúkraþjálfunar Gunnlaugur Már Briem Skoðun Hvaða gervigreind og skýjaþjónustur mega opinberir aðilar nota? Karl Thoroddsen Skoðun Þrautseigja í framlínunni Sigríður Björk Þormar Skoðun Við vissum að þetta myndi gerast Íris E. Gísladóttir Skoðun Sjálfbærni í heimi glötunar Kristján Logason Skoðun Skoðun Skoðun Við vissum að þetta myndi gerast Íris E. Gísladóttir skrifar Skoðun Betri gögn, minni stjórnsýsla? Karl Steinar Óskarsson skrifar Skoðun Eru tómstundir allra? Margrét Júlía Rafnsdóttir skrifar Skoðun Öryggisnet í 90 ár! Unnur Sverrisdóttir skrifar Skoðun Þrautseigja í framlínunni Sigríður Björk Þormar skrifar Skoðun Hjartaendurhæfing er fjárfesting Kristín E. Hólmgeirsdóttir,María Barbara Árnadóttir skrifar Skoðun Hvaða gervigreind og skýjaþjónustur mega opinberir aðilar nota? Karl Thoroddsen skrifar Skoðun Hvenær hættum við að vera þjóð? Jón Pétur Zimsen skrifar Skoðun Hver ertu þegar yfirmaðurinn fer út úr herberginu? Valerio Gargiulo skrifar Skoðun Fjárfestum í heilsu – Alþjóðlegur dagur sjúkraþjálfunar Gunnlaugur Már Briem skrifar Skoðun Varnir frá 2019, ógnir frá 2026 Sigvaldi Einarsson skrifar Skoðun Hvað varð um það að vilja betri heim? Indriði Þröstur Gunnlaugsson skrifar Skoðun Sjálfbærni í heimi glötunar Kristján Logason skrifar Skoðun Ert þú kannski frábær í ofbeldisforvörnum barna? Alfa Dröfn Jóhannsdóttir skrifar Skoðun Bókun 35, ESA og stjórnarskrá Íslands — hvenær verður EES samningurinn stjórnarskrárlega ólýðræðislegur? Eggert Guðmundsson skrifar Skoðun Gleðilegan dag læsis Auður Soffíu Björgvinsdóttir skrifar Skoðun Engin miskunn hjá Reykjavíkurborg Kolbrún Áslaugar Baldursdóttir skrifar Skoðun Brjóstagjöf er svoddan streð… Íris Erlingsdóttir skrifar Skoðun Stækkum kökuna í stað þess að sneiða hana þynnra Rannveig Grétarsdóttir skrifar Skoðun Er þetta ásættanleg frammistaða íslenskrar stjórnsýslu? Þorsteinn Narfason skrifar Skoðun Forsjálni því þetta reddast ekki Gunnar Hersveinn skrifar Skoðun Flokkur fólksins og fjárlögin Sigurjón Þórðarson skrifar Skoðun Svargrein við grein Hauks Arnþórssonar Jón Sigurgeirsson skrifar Skoðun Sjálfstæðisflokkurinn og Bókun 35. Fullveldi eftir hentugleikum? Júlíus Valsson skrifar Skoðun Hvar er náungakærleikurinn? Steindór J. Erlingsson skrifar Skoðun Það sem gerist þegar við segjum frá Olga Björt Þórðardóttir skrifar Skoðun Brýtur innviðaráðherra lög, aftur? Örvar Marteinsson skrifar Skoðun Ekkert okkar á að ganga þennan veg eitt Hólmfríður Jennýjar Árnadóttir skrifar Skoðun Kerfið sem sýndarveruleiki Sigurður Sigurðsson skrifar Skoðun Erum við að grafa undan lýðræðinu? Þorvaldur Ingi Jónsson skrifar Sjá meira
Skoðun Bókun 35, ESA og stjórnarskrá Íslands — hvenær verður EES samningurinn stjórnarskrárlega ólýðræðislegur? Eggert Guðmundsson skrifar