Afburðakonuna Steinunni Gyðu í 2. sætið! Dagbjört Hákonardóttir skrifar 23. janúar 2026 07:15 Reykjavík er borgin mín. Ég er þakklát fyrir að búa þar og fá að vinna að hagsmunum íbúa sem þingmaðurinn þeirra. Borgin okkar er eftirsóttur staður að búa á, ekki síst vegna þess að henni hefur að mestu leyti verið stýrt af félagshyggjuöflum frá því Reykjavíkurlistinn tók við stjórn hennar árið 1994. Ég er samt líka þeirrar skoðunar að við þurfum að veita nýjum röddum Samfylkingarinnar brautargengi í borginni fyrir næstu borgarstjórnarkosningar, enda þurfa áherslur jafnaðarfólks að skína betur í gegn í borginni okkar. Hver er Steinunn? Samfylkingarfólki í Reykjavík stendur til boða að velja yfirburðarmanneskju í 2. sætið í flokksvalinu sem fer fram á morgun, 24. janúar. Ég hef þekkt Steinunni Gyðu- og Guðjónsdóttir síðan við vorum saman í Menntaskólanum í Hamrahlíð upp úr síðustu aldamótum. Undanfarin misseri höfum við unnið saman í Samfylkingunni enda er Steinunn hvalreki fyrir okkur jafnaðarfólk á Íslandi. Hún hefur nýtt þekkingu sína og reynslu í þágu þolenda ofbeldis sem talskona Stígamóta til margra ára sem samskiptaráðgjafi hjá Aton, og nú vonandi í borgarstjórn. Hvað þarf góð borg? Áður en ég settist á þing haustið 2023 hafði ég verið lögfræðingur hjá Reykjavíkurborg í tæpan áratug. Ég kynntist þar hverjum krók og kima – tók við kvörtunum og erindum, gerði úttektir á starfseminni og kortlagði verkefni hennar. Ég hef innsýn inn í réttmætar áhyggjur íbúa borgarinnar og samflokksfólks okkar af þvi að borgin verður að skerpa á pólitískri ábyrgð sinni og forgangsraða rétt. Út frá því tel ég mig geta fullyrt að Steinunn sé þeim kostum gædd sem Samfylkinguna bráðvantar í sína forystu í borginni og hvað þarf til að koma sér inn í óteljandi verkefni sem ein borg þarf að takast á við – hvort sem það er félagsmiðstöð, áhaldahús eða sundlaugar. Steinunn mun massa þetta allt. Það er hægt að leysa leikskólavandann Steinunn hefur ekki síst lagt mikla áherslu á leikskólamálin. Þegar Reykjavíkurlistinn boðaði að leikskólapláss skyldu standa öllum börnum í Reykjavík til boða, hafði enginn trú á því að það væri gerlegt. Lesendabréf blaðanna fylltust af dómsdagsspám um það glapræði sem fælist í því að borga konum fyrir að passa annarra kvenna börn. Íslendingar hafa hins vegar valið leikskólann, þeir standa með honum og við vitum hvers virði hann er. Við Steinunn erum sammála því að sýn Reykjavíkurlistans var rétt, og það verði að leysa leikskólavandann í eitt skipti fyrir öll. Það er metnaðarfullt en raunhæft markmið. Á sama tíma hafnar hún því að horfa fram hjá þörfum starfsfólksins sem oft verður útundan í umræðunni. En forgangsröðunin er skýr – vandi skólastigsins verður ekki fluttur yfir á foreldra af hálfu jafnaðarmanna í borginni. Vandann þurfum við að leysa saman. Dýpkum ekki á vandanum Við Steinunn erum sammála um að á tímum skautunar í samfélagi sem er að breytast á ógnarhraða, er ekki nóg að afgreiða ótta fólks gegn því óþekkta sem mannvonsku og að það eigi ekki að hlusta á fólk. Tími samtalsins við fólk úr ólíkum áttum í lýðræðislegri umræðu má aldrei líða undir lok. Við getum svo miklu betur en það. Það er nefnilega ekki nóg að stjórnmálamaður hafi góðar skoðanir og rétta sýn. Það þarf elju og drifkraft – og yfirburðasamskiptahæfileika. Ég veit um fáa sem búa yfir þessu öllu, en það hefur Steinunn. Þess vegna hvatti ég hana til að láta til skarar skríða og gefa kost á sér í flokksvalinu næsta laugardag, og stefna á 2. sætið. Ég sé ekki eftir því, og ég veit að Reykvíkingar þurfa á henni að halda. Höfundur er þingmaður Samfylkingarinnar í Reykjavíkurkjördæmi norður. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Dagbjört Hákonardóttir Skoðun: Sveitarstjórnarkosningar 2026 Mest lesið Kominn tími til í Kópavogi María Ellen Steingrímsdóttir Skoðun Sögnin að banna Hans Alexander Margrétarson Hansen Skoðun Þjóð í vaxtafjötrum hafta Sveinn Atli Gunnarsson Skoðun Slapp lifandi út af elliheimili Margrét Sigríður Guðmundsdóttir Skoðun Ertu ekki hress? Sigurbjörg J. Helgadóttir Skoðun Listin að blekkja heila þjóð Halldóra Mogensen Skoðun Tunglskot og tilraunastofa Ásta Kristín Sigurjónsdóttir Skoðun Er fagmennska kennara einskis virði? Þóranna Rósa Ólafsdóttir Skoðun Mataræði stéttaskiptingarinnar: Þegar hollusta verður forréttindi Steinar Björgvinsson Skoðun Af hverju? - Af hverju ekki? Halldór Bachmann Skoðun Skoðun Skoðun Tónlistarborgin eflist! Skúli Helgason skrifar Skoðun Kominn tími til í Kópavogi María Ellen Steingrímsdóttir skrifar Skoðun Tunglskot og tilraunastofa Ásta Kristín Sigurjónsdóttir skrifar Skoðun Sögnin að banna Hans Alexander Margrétarson Hansen skrifar Skoðun Hvað sagði konan? G.Eygló Friðriksdóttir skrifar Skoðun Öflugur framhaldsskóli á Suðurnesjum er réttlætismál Hólmfríður Jennýjar Árnadóttir skrifar Skoðun Við stöndum á tímamótum Ellý Tómasdóttir skrifar Skoðun Samkeppnisreglur sem myndlistarmenn hafa komið sér saman um Emma Heiðarsdóttir,Eva Ísleifs,Jóna Hlíf Halldórsdóttir,Unndór Egill Jónsson skrifar Skoðun Námsárangur í frjálsu falli — hversu lengi ætlum við að horfa á? Nína Berglind Sigurgeirsdóttir skrifar Skoðun Þjóð í vaxtafjötrum hafta Sveinn Atli Gunnarsson skrifar Skoðun Samningsmarkmið Íslands mega ekki vera leyndarmál Júlíus Valsson skrifar Skoðun Dánaraðstoð og hjúkrunarfræðingar: Hvað segja gögnin? Bjarni Jónsson skrifar Skoðun Lögreglu-Ríkið Ólafur Stephensen skrifar Skoðun Þarf einhverja yfirbyggingu í skólamálum Mosfellsbæjar? Haukur Skúlason skrifar Skoðun Verkin tala! Kristinn Jakobsson skrifar Skoðun Vandinn er ekki lóðaskortur Óli Örn Eiríksson skrifar Skoðun Af hverju? - Af hverju ekki? Halldór Bachmann skrifar Skoðun Er staða Garðabæjar jafn sterk og við höldum? Tinna Borg Arnfinnsdóttir ,Hreiðar Jónsson skrifar Skoðun Er fagmennska kennara einskis virði? Þóranna Rósa Ólafsdóttir skrifar Skoðun Að þora að vera til fyrirmyndar Trausti Jóhannsson skrifar Skoðun Orkan sem skapar verðmæti Sævar Freyr Þráinsson skrifar Skoðun Er Kristrún Frostadóttir viljandi að reyna að leiða þjóðina inn í ESB? Gunnar Ármannsson skrifar Skoðun Eru 700 milljónir á ári ekki miklir peningar? Róbert Ragnarsson skrifar Skoðun Ertu ekki hress? Sigurbjörg J. Helgadóttir skrifar Skoðun Tölum um samfélagið okkar Jónína Margrét Sigmundsdóttir skrifar Skoðun Umferðin vex í Hafnarfirði – hvað ætlum við að gera öðruvísi? Stefán Már Víðisson skrifar Skoðun Listin að blekkja heila þjóð Halldóra Mogensen skrifar Skoðun Hagsmunir launafólks og Evrópusambandið Hjörtur J. Guðmundsson skrifar Skoðun Rjúfum vítahring olíunnar Guðjón Hugberg Björnsson skrifar Skoðun Dómar eiga að hafa tilgang Védís Einarsdóttir skrifar Sjá meira
Skoðun Öflugur framhaldsskóli á Suðurnesjum er réttlætismál Hólmfríður Jennýjar Árnadóttir skrifar
Skoðun Samkeppnisreglur sem myndlistarmenn hafa komið sér saman um Emma Heiðarsdóttir,Eva Ísleifs,Jóna Hlíf Halldórsdóttir,Unndór Egill Jónsson skrifar
Skoðun Námsárangur í frjálsu falli — hversu lengi ætlum við að horfa á? Nína Berglind Sigurgeirsdóttir skrifar
Skoðun Er staða Garðabæjar jafn sterk og við höldum? Tinna Borg Arnfinnsdóttir ,Hreiðar Jónsson skrifar
Skoðun Er Kristrún Frostadóttir viljandi að reyna að leiða þjóðina inn í ESB? Gunnar Ármannsson skrifar