Starfslokasamningar kostað undirstofnanir fleiri hundruð milljónir Elín Margrét Böðvarsdóttir skrifar 27. janúar 2026 08:48 Meðal annars hafa verið gerðir starfslokasamningar hjá lögregluembættum sem kostað hafa yfir 270 milljónir á undanförnum árum. Mynd úr safni. Vísir Dómsmálaráðuneytið og undirstofnanir þess hafa frá árinu 2018 til 2025 gert 27 starfslokasamninga sem kostað hafa ríkiskassann alls um 400 milljónir. Á sama tímabili hafa fjórar undirstofnanir umhverfis-, orku-, og loftslagsráðuneytisins gert sjö starfslokasamninga og nam heildarkostnaður vegna þeirra 32,7 milljónum.
Þetta má lesa úr svörum ráðuneytanna tveggja við fyrirspurnum Karls Gauta Hjaltasonar, þingmanns Miðflokksins. Karl Gauti sendi sambærilega fyrirspurn um starfslokasamninga og kostnað vegna þeirra á öll ráðuneyti og hafa svör jafnt og þétt verið að berast. Þegar hefur Vísir greint frá svörum sex annarra ráðuneyta, en samtals hefur kostnaður þeirra átta ráðuneyta sem þegar hafa svarað og undirstofnana þeirra numið um 913 milljónum á umræddu tímabili. Enn hafa ekki borist svör frá þremur ráðuneytum. Í tilfelli undirstofnana umhverfis-, orku-, og loftslagsráðuneytisins var kostnaður mestur 12,5 milljónir vegna eins starfslokasamnings hjá Úrvinnslusjóði árið 2023. Þá nam kostnaður rétt rúmum tíu milljónum vegna starfslokasamnings hjá Úrskurðarnefnd umhverfis- og auðlindamála í fyrra og á árinu 2019 var einn slíkur samningur gerður hjá Veðurstofu Íslands upp á 3,9 milljónir. Þrír starfslokasamningar til viðbótar hafa verið gerðir hjá Veðurstofunni á tímabilinu og hefur kostnaður vegna þeirra samtals numið 4,6 milljónum. Loks gerði Umhverfisstofnun einn starfslokasamning 2024 sem kostaði stofnunina 1,6 milljónir. Hátt í 280 milljónir hjá lögregluembættum Í svari dómsmálaráðherra við fyrirspurn Karls Gauta er tekið fram að fjörutíu stofnanir starfi á málefnasviði ráðuneytisins og að fjöldi embættismanna sé hlutfallslega meiri hjá dómstólum og lögregluembættum en hjá öðrum stofnunum. Af þeim fjörutíu stofnunum sem heyra undir ráðuneytið voru gerðir starfslokasamningar hjá tólf stofnunum auk ráðuneytisins sjálfs. Ekki er sundurliðað í svarinu hversu margir starfslokasamningar voru gerðir hjá hverri stofnun, en kostnaður vegna slíkra samninga er útlistaður fyrir hverja stofnun á því ári sem kostnaður féll til. Séu starfslokasamningar hjá sex sýslumannsembættum skoðaðir saman hefur kostnaður sýslumannsembættanna alls numið 66,3 milljónum vegna starfslokasamninga á árunum 2018 til 2025. Líkt og áður segir er ekki tilgreint í svarinu hversu margir samningar liggja þar að baki. Kostnaðurinn féll hins vegar til á árunum 2018, 2021, 2022, 2024 og 2025, og var mestur hjá Sýslumanninum á höfuðborgarsvæðinu. Hjá embætti Lögreglustjórans á höfuðborgarsvæðinu hefur kostnaður vegna starfslokasamninga numið 99,3 milljónum sem féllu til á árunum 2023, 2024 og 2025. Þá hafa slíkir samningar kostað embætti Lögreglustjórans á Suðurnesjum 87 milljónir frá árinu 2020. Ekki komast fleiri lögregluembætti á lista fyrir utan ríkislögreglustjóra þar sem kostnaður hefur numið 89,9 milljónum á tímabilinu. Aðrar stofnanir sem komast á blað eru Landhelgisgæsla Íslands sem varið hefur 5,7 milljónum í starfslokasamninga á tímabilinu, Kærunefnd útlendingamála hefur pungað út 23,9 milljónum og Útlendingastofnun 19,5 milljónum. Þá hefur ráðuneytið sjálft gert tvo starfslokasamninga og nam kostnaður vegna þeirra 7,5 milljónum í fyrra. Samtals hefur kostnaður vegna þeirra 27 starfslokasamninga sem þarna liggja að baki 399,1 milljón á tímabilinu. Starfslok Helga Magnúsar ekki meðtalin Athygli vekur að embætti ríkissaksóknara er ekki á listanum, en starfslok Helga Magnúsar Gunnarssonar, fyrrverandi vararíkissaksóknara, vöktu mikið umtal í vetur. „Starfslokasamningar sem gerðir eru við embættismenn eru taldir upp hjá því embætti sem viðkomandi starfaði við á því ári sem kostnaður féll til enda fellur kostnaður við slíka samninga þar. Kostnaður vegna starfsloka á grundvelli 4. mgr. 20. gr. stjórnarskrárinnar fellur ekki á málefnasvið dómsmálaráðuneytis og er kostnaður sem er greiddur af sama lið og eftirlaun hæstaréttardómara,“ segir meðal annars í svari dómsmálaráðherra. Þar sem Helgi Magnús var æviráðinn embættismaður nýtur hann fullra eftirlauna vararíkissaksóknara líkt og mælt er fyrir um í umræddu ákvæði í stjórnarskrá. Þá er bent á í svarinu að kostnaður við starfslokasamning falli ekki í öllum tilvikum til á því ári sem slíkur samningur er gerður.
Rekstur hins opinbera Stjórnsýsla Lögreglan Dómstólar Landhelgisgæslan Mál Helga Magnúsar Gunnarssonar Mest lesið Var vöruð við dögum áður en henni var rænt Erlent Ráðherra vissi af gabbi um kílómetragjald fyrir fram Innlent Engin egg í Skaftahlíðina Innlent Engar fækkanir fyrirhugaðar fari kaupin í gegn Viðskipti innlent Segir NATO „pappírstígur“ og íhugar að hætta Erlent Hæðarhryggur yfir landinu í dag og stormur í nótt Veður Dómari stöðvar framkvæmdir við veislusalinn Erlent Páskaeggja-„hefðinni“ var komið á í Covid Innlent Sárt fyrir aðstandendur að enginn taki ábyrgð Innlent Niðurgreiða þyndarstjórnunarlyf fyrir þá sem hafa fengið hjartaáfall eða heilablóðfall Erlent Fleiri fréttir Síðasti séns til að skrá kílómetrastöðuna Páskaeggja-„hefðinni“ var komið á í Covid Gestum neyðarskýla fækkar verulega milli ára Ráðherra vissi af gabbi um kílómetragjald fyrir fram Icelandair á leið til Möltu og heimilislausum fækkar Segja Skúla Tómas hafa hneppt móður þeirra í „lyfjafjötra“ Sárt fyrir aðstandendur að enginn taki ábyrgð Veiðimenn klæði sig í föðurlandið á morgun Mesta kvikusöfnun til þessa Maðurinn er kominn í leitirnar „Ég stend ekki hér út af minni fortíð“ Tengdust þjófnaðinum ekki á nokkurn hátt Ætla að fara fram á frávísun málsins Handteknir eftir vopnaða líkamsárás Engin egg í Skaftahlíðina Stöðvuðu ferðamenn sem reyndust ekkert grunsamlegir Logi hleypur í skarðið fyrir Jóhann Pál Guðmundur Ingi leiðir Flokk fólksins Bein útsending: Flokkur fólksins kynnir efstu fimm Vilja 140 milljarða skattalækkun og sölu ríkiseigna fyrir 680 milljarða Fyrsti mótframbjóðandi formannsins rekinn af skrifstofunni Edition-málið komið aftur til saksóknara og farbann framlengt Skúli Tómas: Áfall að ákært sé í einu máli Þremur vísað úr landi eftir að hafa stolið fatnaði „Þetta er í fyrsta sinn á ævinni sem mér er stefnt fyrir eitthvað“ Engin þjóðarsátt án skýrra aðgerða „Við krossum bara fingur“ „Kostuðu páskaeggin sjö hundruð þúsund krónur?!“ Útlit fyrir að rætist úr páskaveðrinu og ASÍ kallar eftir frumkvæði frá ríkisstjórninni Skúli Tómas ákærður fyrir manndráp en fimm mál felld niður Sjá meira