Súkkulaðisnúðurinn segir sannleikann Björn Ólafsson skrifar 30. janúar 2026 07:03 Þegar ég var polli voru súkkulaði snúðar mikið uppáhald. Hvað er betra en snúður og köld mjólk? Á góðum degi, gat ég reddað mér pening fyrir einum snúð, og á bestu dögum átti ég fyrir nokkrum 10 aura kúlum líka. Ég er komin fast að sjötugu, svo þetta var rétt fyrir um 60 árum síðan. Og, nú kemur punkturinn: Snúðurinn kostað 2 krónur, eða túkall. Snúðurinn þá var alveg eins og snúðurinn í dag. Snúðar eru eitt af fáu sem ekki hefur breyst á minni ævi. Árið 1981 voru klippt tvö núll af krónunni. Svo snúðarnir mínur kostuðu mig því; 2 aura í dag, eða 0,02 krónur. Nýjar krónur eins og krónan var kölluð eftir breytinguna. Í dag kostar snúðurinn mig um 500 krónur, eða 50.000 „gamlar krónur“. Hann hefur því hækkað um 24.499% á 60 árum, m.v. minn prósentu reikning, sem ég er nokkuð viss um að réttur er. Við hverju býst fólk? Ég set þetta fram í ljósi þess að nú eru allir að hrópa úr sér lungun vegna um 5% verðbólgu skots. Afhverju ætli snúðurinn minn hafi hækkað svona rosalega? Í grunninn er það vegna þess að við viljum alltaf hærra kaup, og við fáum hærra kaup. Allir vilja hærra kaup, opinberir starfsmenn sem og í einkageiranum. Ríkið þarf að ná í pening til að borga launahækkanir, og þá er bara að hækka álögur á landsmenn; sem fer beint í vísitöluna. Fyrirtækin í verslun og þjónustu, hafa bara í raun eina leið til að borga hærri laun; með þvi að auka tekjur sínar með því að hækka vörur og þjónustu. Við hverju býst fólk? Hvaðan eiga tekjur launagreiðenda fyrir launahækkunum annars að koma? Nú eiga lífeyrirsjóðir í öðru hvoru fyrirtæki, og þeir gera kröfur um ávöxtun! Ruglið er algjört. Og, svo berja verkalýðsfrömuðir sér og brjóst og heimta hærri laun af því allt hafi hækkað svo mikið. – Svona hefur hamsturshjólið nú snúist alla mína tíð. Maður heyrir sömu tuggurnar áratugum saman, ekkert breytist, hamstrarnir hafa óendanlegt úthald. Ef ég verð svo heppin að ná inn max 20 árum í viðbót, þá mun snúðurinn minn kosta mig tæpar 1.500 kr eða 150.000 kr gamlar. Ég hef alltaf talið að maður sem gerir sömu vitleysuna oftar en 2x í tregari kantinum, en 60x og búast við annarri niðurstöðu en í hin 59 skiptin; óviðbjargandi. Já, það er ekki öll vitleysan eins. Höfundur er ellilífeyrisþegi. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Verðlag Mest lesið Eftir Kveiksþátt Anna Björg Jónsdóttir,Hjördís Halldóra Sigurðardóttir Skoðun Ríkið vill minnst tvö og hálft ár milli barnanna þinna Karítas Ólafsdóttir Skoðun Flokkur fólksins tekur í handbremsuna Eyjólfur Ármannsson Skoðun Cornell og klefamenning Olga Björt Þórðardóttir Skoðun Menning er ekki bisnessplan Birgir Þórarinsson Skoðun Getur Gufunesið talist skapandi hverfi ef Listhúsið lokar? Narfi Þorsteinsson Skoðun Hvenær eru kjósendur blekktir? Gunnar Ármannsson Skoðun Þegar fyrirsögnin finnur orsökina á undan rannsókninni Elísabet Reynisdóttir Skoðun Sjáðu þig, því lífið liggur við Hlíf Steingrímsdóttir Skoðun Taktík Jens Garðar Helgason Skoðun Skoðun Skoðun Flokkur fólksins tekur í handbremsuna Eyjólfur Ármannsson skrifar Skoðun Áramótaheit ríkisstjórnarinnar Helgi Brynjarsson skrifar Skoðun Menning er ekki bisnessplan Birgir Þórarinsson skrifar Skoðun Þegar allt verður þjónusta Valerio Gargiulo skrifar Skoðun Ríkið vill minnst tvö og hálft ár milli barnanna þinna Karítas Ólafsdóttir skrifar Skoðun Hvenær eru kjósendur blekktir? Gunnar Ármannsson skrifar Skoðun Cornell og klefamenning Olga Björt Þórðardóttir skrifar Skoðun Eftir Kveiksþátt Anna Björg Jónsdóttir,Hjördís Halldóra Sigurðardóttir skrifar Skoðun Almannatryggingar í 90 ár Alma D. Möller skrifar Skoðun Frá styrkjum til stefnumótunar Hrönn Ingólfsdóttir skrifar Skoðun Boltinn er hjá ykkur Matthías Bjarnason skrifar Skoðun Golfið lækning við hálfónýtum maga og þörmum? Gunnar Salvarsson skrifar Skoðun Þegar fyrirsögnin finnur orsökina á undan rannsókninni Elísabet Reynisdóttir skrifar Skoðun Fleiri leiðir til Evrópusamstarfs Erna Bjarnadóttir skrifar Skoðun Tiplað inn í framtíð ferðaþjónustunnar Inga Hlín Pálsdóttir skrifar Skoðun Ró á vinnumarkaði krefst skýrra leikreglna Halldóra Sigr. Sveinsdóttir skrifar Skoðun Atvinna, ábyrg nýting og hagsmunir nærsamfélagsins Björn Bjarki Þorsteinsson skrifar Skoðun Hættum að endurræsa menntakerfið, byrjum að halda áfram Hjálmar Bogi Hafliðason skrifar Skoðun Það þarf heilt þorp Björg Magnúsdóttir,Sandra Hlín Guðmundsdóttir skrifar Skoðun Getur Gufunesið talist skapandi hverfi ef Listhúsið lokar? Narfi Þorsteinsson skrifar Skoðun Huldufólkið Rannveig Haraldsdóttir skrifar Skoðun September án niðurstöðu Halla Gunnarsdóttir,Óskar Hafnfjörð Gunnarsson,Gunnar Sigurðsson,Eiður Stefánsson,Andri Reyr Haraldsson,Jakob Tryggvason skrifar Skoðun Sjáðu þig, því lífið liggur við Hlíf Steingrímsdóttir skrifar Skoðun Taktík Jens Garðar Helgason skrifar Skoðun Hvar værum við stödd ef rafbílavæðingin hefði ekki átt sér stað? Kristín Björk Bjarnadóttir skrifar Skoðun Heilarotnun og hugræktarstöðvar á tímum gervigreindar Þórhallur Magnússon skrifar Skoðun Pitsuostur, alþjóðaviðskipti og almannahagur Ólafur Stephensen skrifar Skoðun „Það er enn verið að drepa börn“ Hjálmtýr Heiðdal skrifar Skoðun Miklum afla landað utan kvóta Sigurjón Þórðarson skrifar Skoðun Dánaraðstoð: sjálfræði, mannréttindi og mörk samfélagsins Steinar Harðarson skrifar Sjá meira
Skoðun September án niðurstöðu Halla Gunnarsdóttir,Óskar Hafnfjörð Gunnarsson,Gunnar Sigurðsson,Eiður Stefánsson,Andri Reyr Haraldsson,Jakob Tryggvason skrifar
Skoðun Hvar værum við stödd ef rafbílavæðingin hefði ekki átt sér stað? Kristín Björk Bjarnadóttir skrifar