Kynlíf á ekki að vera vont Aldís Þorbjörg Ólafsdóttir skrifar 1. febrúar 2026 19:00 Aldís Þorbjörg Ólafsdóttir er sálfræðingur frá Háskóla Íslands og para- og kynlífsráðgjafi frá Michigan Háskóla. Hún rekur Kynheilsu -miðstöð kynvera á Lækjartorgi. Getty/Vísir Nýlega spurði ég lesendur út í kynlífsvanda. Bæði hvort vandi sé til staðar núna eða hafi áður verið til staðar. Af þeim 1307 sem svöruðu, hafa um 70% verið að takast á við kynlífsvanda, nú eða áður fyrr.
Hér fyrir neðan má sjá nákvæmari tölur: Hafa ber í huga að þessi svör endurspegla aðeins þá lesendur Vísis sem gáfu sér tíma til að svara þessari könnun og því er ekki hægt að alhæfa út frá þessum niðurstöðum. Rannsóknir hafa lengi vel sýnt að kynlífsvandi er algengur. Talið er að 40% kvenna og 30% karla séu með a.m.k. einn kynlífsvanda. Algengt er, sérstaklega hjá konum og leghöfum, að fleiri en einn kynlífsvandi greinist á sama tíma. Dæmi um það er; sársauki við samfarir, erfiðleikar með að örvast og fullnægingarvandi. Það er mjög skiljanlegt að einn vandi hafi áhrif á og ýti undir annan. Það er mikilvægt að vinna með grunnvandann en ekki bara meðhöndla einkennin. Í hverri viku fæ ég allskonar spurningar frá lesendum um kynlífsvanda sem þau eru að takast á við. Ég hef fengið nokkrar spurningar sem fjalla um sársauka í kynlífi. Hér er ein slík: „Sæl Aldís, kynlíf hefur nánast alltaf verið sárt fyrir mig og núna er ég orðin svo stressuð að stunda kynlíf. Getur verið að líkaminn minn sé að fara í vörn án þess að það sé neitt að mér líkamlega séð? Hvað er hægt að gera?“ - 26 ára kona. Þegar konur og leghafar leita sér aðstoðar vegna sársauka í kynlífi færist fókusinn gjarnan að því að draga úr afleiðingunum í stað þess að vinnan með grunnvandann. Sem dæmi um ráð sem oft eru gefin við vandanum eru að slaka betur á eða nota sleipiefni og deyfikrem. Það er hægt að vinna með sársaukaraskanir, en mikilvægt er að komast að því hvað veldur sársaukanum. Ef þú finnur fyrir verkjum við innsetningu er gott fyrsta skref að leita sér hjálpar hjá fagaðilum.Getty Hvað er hægt að gera til að draga úr sársauka við innsetningu? Áður en farið er að vinna með vandann þarf að greina hann vel. Er sársaukinn við leggangaopið eða inn í leggöngunum? Kemur alltaf verkur við innsetningu eða eingöngu í ákveðnum stellingum? Hefur þú verið skoðuð af lækni? Að hitta kvensjúkdómalækni og fá skoðun er gott fyrsta skref. Gott er að útiloka sýkingar, endómetríósu, kynsjúkdóma, ertingu í húð eða eftir sauma (ef þú hefur verið saumuð). Þá er gott að skoða hvort hormónabreytingar tengdar meðgöngu, brjóstagjöf eða breytingaskeiðinu séu að valda leggangaþurrk eða óþægindum í leggöngum. Ef líkamlegar skýringar eru ekki til staðar er næsta skref að hitta kvenheilsusjúkraþjálfara sem metur grindarbotninn þinn. Ofspenntur grindarbotn getur valdið sársauka við innsetningu og er þá unnið með sjúkraþjálfara til að læra að draga úr spennu á þessu svæði. Útvíkkunarsett eru notuð samhliða til að venja sig á innsetningu í leggöng. Sálrænir þættir geta einir og sér valdið sársauka við innsetningu. Kynferðisofbeldi eða fyrri reynsla af kynlífi sem var sársaukafull, kvíðaraskanir og áhyggjur sem tengjast því að sleppa takinu eða að vera hafnað. Væntingar um að kynlíf verði vont ýtir einnig undir það að konur og leghafar spenna grindarbotninn við tilhugsunina um kynlíf. Gjarnan er unnið með kvenheilsusjúkraþjálfara samhliða sálfræðimeðferð eða kynlífsráðgjöf. Ef kynlífsvandi hefur veruleg áhrif á getuna til að stunda kynlíf eða dregur úr unaði í kynlífi er mikilvægt að leita sér aðstoðar. Fyrsta skrefið er oft að ræða við heimilislækni en í mörgum tilfellum koma sérhæfðari úrræði að góðu gagni. Hér á Íslandi eru kvenheilsu- og karlheilsusjúkraþjálfarar, kynlífsráðgjafar, kynfræðingar, kynlífsmarkþjálfarar, þvagfæraskurðlæknar og kvensjúkdómalæknar sem koma að því að greina og meðhöndla kynlífsvanda. Kynlíf á ekki að vera vont. Þó svo að kynlífsvandi sé algengur þurfum við ekki að takast á við vandann ein. Fyrsta skrefið er að þora að leita sér hjálpar. <3
Kynlífið með Aldísi Kynlíf Mest lesið Stjörnulífið: Hannes heppinn með Diego Lífið „Ég held að maður megi semja svona við móður sína” Lífið Ólétt 17 ára, kærastinn með krabbamein, vann fjórfalt, meistaranám og flott starf Áskorun Crawford minnist sonarins Lífið 50+: Hvers vegna við hættum (loksins) að nenna að útskýra okkur Áskorun Hefur beðið í fjögur ár eftir að frændinn afpláni dóm sinn Lífið Pattra og Brynjar slá sér upp Lífið Eignar Ingu Sæland plötutitilinn Lífið Stella í orlofi á stóra sviðið Menning Krakkatía vikunnar: Iceguys, Höfði og langimangi Lífið Fleiri fréttir Stjörnulífið: Hannes heppinn með Diego Crawford minnist sonarins Pattra og Brynjar slá sér upp Eignar Ingu Sæland plötutitilinn „Ég held að maður megi semja svona við móður sína” Hefur beðið í fjögur ár eftir að frændinn afpláni dóm sinn Krakkatía vikunnar: Iceguys, Höfði og langimangi Siggi Bond og Birta Huld trúlofuð Bjóst ekki við svari strax og hvað þá frá Króatíu Örn Árnason fimmti keppandinn í Taskmaster „Þvílík gleði með þennan tíma“ Fluttur í annað fangelsi eftir fréttir af lúxuslífi og slagsmálum Sveitadraumurinn breyttist í martröð Drukku brjóstamjólk á brúðkaupsdaginn Fréttatía vikunnar: Mistök, oflæti og vélmenni Þrengt að sjoppum og skemmtistöðum á meðan borgin breytist í eitt stórt hótel Getur ekki lengur troðið upp eða keyrt vegna vatnshöfuðs Saga og Jón bætast í hóp Taskmaster-keppenda „Tárin streymdu niður vangana á mér“ Missti dóttur sína og tvö fóstur í kjölfarið Hvað veistu um… þjóðveginn frá Reykjavík til Akureyrar? Spurði um úrsögn Jóns fyrir hálfu ári Siggi Chaplin allur Sigga Beinteins í suðrænni sveiflu með kæró Berglind Alda og Auddi keppa í Taskmaster Patrekur og Binni tilheyra fimm minnihlutahópum Gylfi seldi sumarbústaðinn á 85 milljónir Ólétt 52 ára Sjóðheit hjúkka selur skvísuíbúð Þess vegna þurfa Íslendingar að leyfa þessum þjófum að halda áfram að stela Sjá meira