Stúka við Kórinn mun skera niður framtíð HK í fótbolta! Ómar Stefánsson skrifar 30. janúar 2026 16:31 Að byggja stúku sem minnkar æfingasvæðið fyrir yngri iðkendur HK er skref afturábak. Við eigum að huga að framtíð HK, ekki þrengja að henni. Í Því skipulagi sem nú liggur fyrir, að setja stúku á grasinu á Kórnum, er ljóst að hún mun taka of mikið af því æfingasvæði sem hægt er að nota í Kórnum. Þessi tillaga er því alveg skelfileg og verður vonandi stöðvuð sem fyrst. Það eru nokkur atriði sem þarf að taka meira tillit til áður en ráðist er í framkvæmd á stúku við Kórinn. 1. Að núverandi æfingasvæði, sem notað er að lang mestum hluta af yngri iðkendum HK, mun minka um meira en hálfan knattspyrnuvöll. 2. Að það æfingasvæði sem eftir væri mun ekki nýtast eins vel. 3. Það má gera ráð fyrir að krafa verði um nýtingu á keppnisvellinum sem fylgir reglum sem eru í leyfiskerfi UEFA Quality. 4. það má gera ráð fyrir því á næstu árum komi VAR til landsins og þá þarf að gera ráð fyrir því umfangi sem fylgir og auknar kröfur fyrir aðstöðu fjölmiðla sem mun þá minnka svæðið fyrir áhorfendur. 5. Að byggja stúku sem ekki tekur fleira fólk í sæti en þær stúkur sem eru nú til staðar í Kópavogsbæ er hreint út sagt mistök. Sérstaklega í ljósi þess að þegar HK verður enn fjölmennara félag, verður ósk um pláss fyrir fleiri áhorfendur. Það er hægt að leysa með stærri stúku við Kópavogsvöll. Núverandi meirihluti segir að verið sé að efna gamalt loforð frá bæjarstjórn síðan 2013. Það vill nú svo til að ég var í meirihluta í bæjarstjórn 2013 og vil taka fram að þetta er ekki loforð, þetta er viljayfirlýsing. Sem betur fer er hægt að skipta um skoðun og gera betur. Við verðum að horfa lengra fram í framtíðina, þar sem þetta verður mannvirki sem verður byggt til notkunar í áratugi. Í dag segi ég því að byggja stúku sem á að taka ekki fleiri áhorfendur en nú er þegar til staðar inni í Kórnum er tímaskekkja. Það er hægt að gera mun betur. Ekki ætti að minnka það svæði sem er til fyrir æfingar og leiki á því gras svæði sem nú er í Kórnum. Því ætti einfaldlega að sleppa því að byggja stúku þarna. Það er ekki lengra síðan en 2007 að HK náði að halda sér upp í efstu deild og Víkingar féllu niður. En árið 2024 þegar HK féll úr efstu deild þá unnu Víkingar sér inn tæpan milljarð króna með þátttöku í Evrópukeppni. En á því ári fengu Víkingar undanþágu til að spila á Kópavogsvelli. En hægt væri að breyta úti grasvöllunum í Kórnum í gervigras og nýta hvern fermetra enn betur en gert er í dag. Á næstu árum mun fjölga enn frekar fólki í nágrenni við Kórinn, sem þýðir enn fleiri iðkendur í íþróttum hjá HK. Þess vegna á að gera betur og huga að því að yngri iðkendur hafi kost á því besta sem Kórinn hefur uppá að bjóða, í stað þess að byggja þar stúku, sem nýtist alls ekki eins vel fyrir alla HK-inga. Því það allra mikilvægasta er að það verði til staðar aðstaða fyrir alla iðkendur í HK. Gerum betur. Höfundur er fyrrverandi bæjarfulltrúi og heiðursfélagi HK Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Kópavogur Íþróttir barna HK Skoðun: Sveitarstjórnarkosningar 2026 Mest lesið Skildi hugmynd Trumps vera “sleggjan” sem allir eru að leita af. Eggert Guðmundsson Skoðun Bókasöfnin okkar Hrönn Soffíu Björgvinsdóttir Skoðun Skuggamansal á Íslandi Sævar Þór Jónsson Skoðun Í hvaða vitleysu erum við stödd? Ragnheiður Stephensen Skoðun Skattlagning til velsældar Hannes Lúðvíksson Skoðun Hver á arfinn? Gunnar Ármannsson Skoðun Hvar eru þingmenn NV-kjördæmis? Sigurður Páll Jónsson Skoðun Opið bréf til Húnboga Þórs Árnasonar Margrét Rut Eddudóttir Skoðun Að tala um dauðann er að tala um lífið Ingrid Kuhlman Skoðun Þjóðarsjúkrahúsið seinkar Sigurður Sigurðsson Skoðun Skoðun Skoðun Þvílíkar villigötur Ketill Guðmundsson skrifar Skoðun Bókasöfnin okkar Hrönn Soffíu Björgvinsdóttir skrifar Skoðun Skildi hugmynd Trumps vera “sleggjan” sem allir eru að leita af. Eggert Guðmundsson skrifar Skoðun Opið bréf til Húnboga Þórs Árnasonar Margrét Rut Eddudóttir skrifar Skoðun Hvar eru þingmenn NV-kjördæmis? Sigurður Páll Jónsson skrifar Skoðun Noregur styrkir EES – Ísland verður að fylgja Rögnvaldur Guðmundsson skrifar Skoðun Landsleikar RÚV! Sigurlín Margrét Sigurðardóttir skrifar Skoðun Við erum ekki jafn ömurleg og við höldum Þorsteinn Tjörvi Sigurðsson skrifar Skoðun Bjórinn sem slapp við suðurferðina Elís Pétur Elísson skrifar Skoðun Í hvaða vitleysu erum við stödd? Ragnheiður Stephensen skrifar Skoðun Skattlagning til velsældar Hannes Lúðvíksson skrifar Skoðun Baráttan er ekki búin Mordekaí Elí Esrason skrifar Skoðun Hver á arfinn? Gunnar Ármannsson skrifar Skoðun Að tala um dauðann er að tala um lífið Ingrid Kuhlman skrifar Skoðun Til hamingju Reykjanesbær með leikskólana okkar Guðný Birna Guðmundsdóttir skrifar Skoðun Skuggamansal á Íslandi Sævar Þór Jónsson skrifar Skoðun Grateful Dead á Sæbrautinni Júlíus Valsson skrifar Skoðun Þjóðarsjúkrahúsið seinkar Sigurður Sigurðsson skrifar Skoðun Er gervigreindin spegill mannkyns Kristján Logason skrifar Skoðun Er Þórarinn Tyrfings nýja framtíð Vogs? Bergþóra Haralds Eiðsdóttir skrifar Skoðun Tólf ára ákvað ég að gera bíó Arnar Benjamín Kristjánsson skrifar Skoðun Hvað segja gögnin í raun um ásakanir á hendur séra Friðriki Theódór S. Halldórsson skrifar Skoðun Það er sárt að tapa kosningum Heimir Már Pétursson skrifar Skoðun Er enn þess virði að leggja á sig langt háskólanám? Gunnar Alexander Ólafsson skrifar Skoðun Engin fjölskylda á að þurfa að standa ein Eydís Ásbjörnsdóttir skrifar Skoðun Þegar reglurnar gilda ekki jafnt Ágúst Karlsson skrifar Skoðun Utanríkisstefna án ábyrgðar? Erna Bjarnadóttir skrifar Skoðun Heiður hússins: Um kynferðisofbeldi í nánum samböndum Hrafnhildur Kjerúlf Sigmarsdóttir skrifar Skoðun PISA-skellur en hvað svo? Inga Sæland skrifar Skoðun Hver verndar velferð barna þegar náttúran blandar kynjunum? Jón Þór Ólafsson skrifar Sjá meira
Skoðun Heiður hússins: Um kynferðisofbeldi í nánum samböndum Hrafnhildur Kjerúlf Sigmarsdóttir skrifar