Skattar hér, skattar þar, skattar alls staðar Rósa Guðbjartsdóttir skrifar 2. febrúar 2026 13:02 Ein megin ástæða hærri verðbólgu og erfiðs efnahagsástands sem nú blasir við, er aukin skattheimta og hækkanir á gjöldum hins opinbera. Þrátt fyrir hávær viðvörunarorð lét vinstri stjórn Valkyrjanna þau sem vind um eyru þjóta í aðdraganda hækkanna. Þegar álögur hækka á fólk og fyrirtæki þá kemur það fljótt niður á þeim sem borga brúsann auk alvarlegra áhrifa á efnahagsmálin. Og það er sannarlega farið að raungerast. Skattar og gjöld leynast víða í öllu því sem við greiðum fyrir en í dagsins önn veltum við því lítt fyrir okkur hversu stór hluti af verði vörunnar eða þjónustunnar fer beint í ríkiskassann. En nærtækt dæmi er kílómetragjaldið sem nú er farið að hafa veruleg áhrif á almenning og hefur valdið aukinni verðbólgu. Við gildistöku þess um síðustu áramót voru bensín- og olíugjöld felld niður á móti og hafa olíufélögin í kjölfarið lækkað eldsneytisverð um 100 krónur á hvern lítra. Lækkun á hverjum lítra hefði þó orðið meiri hefði vinstri stjórn Valkyrjanna ekki hækkað kolefnisgjald á eldsneyti um 30% samtímis. Vinstri stjórnin einbeitt í skattahækkunum Þetta minnir okkur á hve mikið við greiðum í skatta hér og þar og alls staðar. Það eru nefnilega sértækir skattar og gjöld lögð á valdar vörur og þjónustu og svo bætist hár virðisaukaskattur jafnan við og í ofangreindu tilviki kolefnisskattur. Frá því að Sjálfstæðisflokkurinn komst í ríkisstjórn árið 2013 hafa ýmsir skattar og gjöld verið lækkuð sem komið hafði verið á í tíð Jóhönnu-stjórnarinnar svokölluðu. Má þar nefna almenn vörugjöld á sjónvarpstæki, ísskápa og þvottavélar, tolla á fatnað og skó og afnám sykurskattsins. Eins og við blasir er nú einbeittur vilji vinstri stjórnar Valkyrjanna að hækka skatta og jafnvel taka aftur upp þá gömlu. Eflum skattavitund almennings Skattavitund almennings á Íslandi mætti tvímælalaust vera meiri. Besta leiðin til að auka þá vitund væri meira gagnsæi skattlagningar. Ég skora á rekstraraðila í atvinnulífinu að birta tvö verð á vöru sinni eða þjónustu, þar sem því verður við komið. Annars vegar verð án skatta og hins vegar verð með sköttum og öðrum opinberum gjöldum. Þannig sjáum við svart á hvítu, frá degi til dags, hversu skattpínd við erum. Höfundur er þingmaður Sjálfstæðisflokksins. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Rósa Guðbjartsdóttir Mest lesið Hver á arfinn? Gunnar Ármannsson Skoðun Í hvaða vitleysu erum við stödd? Ragnheiður Stephensen Skoðun Skuggamansal á Íslandi Sævar Þór Jónsson Skoðun Grateful Dead á Sæbrautinni Júlíus Valsson Skoðun Skattlagning til velsældar Hannes Lúðvíksson Skoðun Baráttan er ekki búin Mordekaí Elí Esrason Skoðun Til hamingju Reykjanesbær með leikskólana okkar Guðný Birna Guðmundsdóttir Skoðun Er Þórarinn Tyrfings nýja framtíð Vogs? Bergþóra Haralds Eiðsdóttir Skoðun Við erum ekki jafn ömurleg og við höldum Þorsteinn Tjörvi Sigurðsson Skoðun Landsleikar RÚV! Sigurlín Margrét Sigurðardóttir Skoðun Skoðun Skoðun Noregur styrkir EES – Ísland verður að fylgja Rögnvaldur Guðmundsson skrifar Skoðun Landsleikar RÚV! Sigurlín Margrét Sigurðardóttir skrifar Skoðun Við erum ekki jafn ömurleg og við höldum Þorsteinn Tjörvi Sigurðsson skrifar Skoðun Bjórinn sem slapp við suðurferðina Elís Pétur Elísson skrifar Skoðun Í hvaða vitleysu erum við stödd? Ragnheiður Stephensen skrifar Skoðun Skattlagning til velsældar Hannes Lúðvíksson skrifar Skoðun Baráttan er ekki búin Mordekaí Elí Esrason skrifar Skoðun Hver á arfinn? Gunnar Ármannsson skrifar Skoðun Að tala um dauðann er að tala um lífið Ingrid Kuhlman skrifar Skoðun Til hamingju Reykjanesbær með leikskólana okkar Guðný Birna Guðmundsdóttir skrifar Skoðun Skuggamansal á Íslandi Sævar Þór Jónsson skrifar Skoðun Grateful Dead á Sæbrautinni Júlíus Valsson skrifar Skoðun Þjóðarsjúkrahúsið seinkar Sigurður Sigurðsson skrifar Skoðun Er gervigreindin spegill mannkyns Kristján Logason skrifar Skoðun Er Þórarinn Tyrfings nýja framtíð Vogs? Bergþóra Haralds Eiðsdóttir skrifar Skoðun Tólf ára ákvað ég að gera bíó Arnar Benjamín Kristjánsson skrifar Skoðun Hvað segja gögnin í raun um ásakanir á hendur séra Friðriki Theódór S. Halldórsson skrifar Skoðun Það er sárt að tapa kosningum Heimir Már Pétursson skrifar Skoðun Er enn þess virði að leggja á sig langt háskólanám? Gunnar Alexander Ólafsson skrifar Skoðun Engin fjölskylda á að þurfa að standa ein Eydís Ásbjörnsdóttir skrifar Skoðun Þegar reglurnar gilda ekki jafnt Ágúst Karlsson skrifar Skoðun Utanríkisstefna án ábyrgðar? Erna Bjarnadóttir skrifar Skoðun Heiður hússins: Um kynferðisofbeldi í nánum samböndum Hrafnhildur Kjerúlf Sigmarsdóttir skrifar Skoðun PISA-skellur en hvað svo? Inga Sæland skrifar Skoðun Hver verndar velferð barna þegar náttúran blandar kynjunum? Jón Þór Ólafsson skrifar Skoðun Einhliða bergmálshellir og heimildir sem hrynja Lilja Benatov Hjartar skrifar Skoðun KEMUR TÓLFAN? Hilmar Jökull Stefánsson skrifar Skoðun Ábyrgðinni má ekki útvista til tækninnar Karen Ósk Nielsen Björnsdóttir skrifar Skoðun Gervigreindin kaupir ekki það sem hún skilur ekki Jens Gunnarsson skrifar Skoðun Fólkið á bak við öruggt flug Elísabet Heiða Valdemarsdóttir skrifar Sjá meira
Skoðun Heiður hússins: Um kynferðisofbeldi í nánum samböndum Hrafnhildur Kjerúlf Sigmarsdóttir skrifar