Aukin samkeppni á bankamarkaði Kristján Þórður Snæbjarnarson skrifar 3. febrúar 2026 14:00 Nýverið kom fram að hagnaður Landsbanka Íslands hafi á síðasta ári verið um 38.000 milljónir króna. Þessi hagnaður er að stærstum hluta tilkominn vegna vaxtamunar bankans sem neytendur greiða, en hreinar vaxtatekjur hans í fyrra voru 62 milljarðar króna. Þær jukust milli ára þrátt fyrir að stýrivextir hafi lækkað um tvö prósentustig frá því að síðast var boðað til kosninga. Landsbankinn er ekki einsdæmi um gríðarlega mikinn hagnað á þessum tímum þar sem vextir eru enn of háir. Svo virðist sem íslenskt bankakerfi njóti þessarar stöðu sérstaklega vel enda samkeppni í bankastarfsemi afar lítil, einn sparisjóður er helsta samkeppnin í dag. Fákeppni hér á landi hefur lengi vel komið í veg fyrir að þjóðin fái að búa við sambærileg kjör og nágrannaþjóðir okkar hvað þetta varðar. Má þar sem dæmi einnig horfa til stöðunnar á tryggingamarkaði eða á smásölumarkaði þar sem raunveruleg samkeppni er ekki alltaf augljós. Þó fyrirtækin leggi sig eflaust fram þá má gera betur. Nú þegar ársverðbólga mælist hærri en nokkur hefði viljað sjá þá keppast greiningardeildir bankanna við að spá fyrir um hvað Seðlabanki Íslands muni gera í næstu vaxtaákvörðun. Í gegnum tíðina hef ég upplifað þessar spár þannig að þarna sé væntingum greiningardeilda kastað fram til þess að vona að horft verði til þeirra við ákvörðunina. Er raunverulegur hagnaður bankanna, sem er meðal annars tilkominn vegna hárra vaxta en fyrst og fremst vegna verðlagningar þeirra á þjónustu við fólkið - að geyma pening fólksins og lána til annarra - eðlilegur í jafn litlu hagkerfi og íslenskt hagkerfi er? Getur verið að sú gróðastarfsemi sem þarna er rekin sé hluti af vandamáli þjóðarinnar? Vandamál sem birtist í efnahagslegum óstöðugleika og hærri verðbólgu en í flestum samanburðarlöndum okkar? Er ekki tímabært að endurskoða eigendastefnu ríkisins hvað varðar rekstur Landsbanka Íslands með það að markmiði að bjóða upp á góða þjónustu á hagstæðum kjörum til almennings þó svo það þýði vissulega minni hagnað frá rekstri sem hefði skilað sér í arðgreiðslum til ríkisins? Við þurfum að taka á rót vandans sem eru miklar arðgreiðslur, há ávöxtunarkrafa á fjármagn. Höfundur er þingmaður Samfylkingarinnar. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Kristján Þórður Snæbjarnarson Mest lesið Hver á arfinn? Gunnar Ármannsson Skoðun Í hvaða vitleysu erum við stödd? Ragnheiður Stephensen Skoðun Skuggamansal á Íslandi Sævar Þór Jónsson Skoðun Landsleikar RÚV! Sigurlín Margrét Sigurðardóttir Skoðun Grateful Dead á Sæbrautinni Júlíus Valsson Skoðun Skattlagning til velsældar Hannes Lúðvíksson Skoðun Baráttan er ekki búin Mordekaí Elí Esrason Skoðun Við erum ekki jafn ömurleg og við höldum Þorsteinn Tjörvi Sigurðsson Skoðun Noregur styrkir EES – Ísland verður að fylgja Rögnvaldur Guðmundsson Skoðun Til hamingju Reykjanesbær með leikskólana okkar Guðný Birna Guðmundsdóttir Skoðun Skoðun Skoðun Opið bréf til Húnboga Þórs Árnasonar Margrét Rut Eddudóttir skrifar Skoðun Hvar eru þingmenn NV-kjördæmis? Sigurður Páll Jónsson skrifar Skoðun Noregur styrkir EES – Ísland verður að fylgja Rögnvaldur Guðmundsson skrifar Skoðun Landsleikar RÚV! Sigurlín Margrét Sigurðardóttir skrifar Skoðun Við erum ekki jafn ömurleg og við höldum Þorsteinn Tjörvi Sigurðsson skrifar Skoðun Bjórinn sem slapp við suðurferðina Elís Pétur Elísson skrifar Skoðun Í hvaða vitleysu erum við stödd? Ragnheiður Stephensen skrifar Skoðun Skattlagning til velsældar Hannes Lúðvíksson skrifar Skoðun Baráttan er ekki búin Mordekaí Elí Esrason skrifar Skoðun Hver á arfinn? Gunnar Ármannsson skrifar Skoðun Að tala um dauðann er að tala um lífið Ingrid Kuhlman skrifar Skoðun Til hamingju Reykjanesbær með leikskólana okkar Guðný Birna Guðmundsdóttir skrifar Skoðun Skuggamansal á Íslandi Sævar Þór Jónsson skrifar Skoðun Grateful Dead á Sæbrautinni Júlíus Valsson skrifar Skoðun Þjóðarsjúkrahúsið seinkar Sigurður Sigurðsson skrifar Skoðun Er gervigreindin spegill mannkyns Kristján Logason skrifar Skoðun Er Þórarinn Tyrfings nýja framtíð Vogs? Bergþóra Haralds Eiðsdóttir skrifar Skoðun Tólf ára ákvað ég að gera bíó Arnar Benjamín Kristjánsson skrifar Skoðun Hvað segja gögnin í raun um ásakanir á hendur séra Friðriki Theódór S. Halldórsson skrifar Skoðun Það er sárt að tapa kosningum Heimir Már Pétursson skrifar Skoðun Er enn þess virði að leggja á sig langt háskólanám? Gunnar Alexander Ólafsson skrifar Skoðun Engin fjölskylda á að þurfa að standa ein Eydís Ásbjörnsdóttir skrifar Skoðun Þegar reglurnar gilda ekki jafnt Ágúst Karlsson skrifar Skoðun Utanríkisstefna án ábyrgðar? Erna Bjarnadóttir skrifar Skoðun Heiður hússins: Um kynferðisofbeldi í nánum samböndum Hrafnhildur Kjerúlf Sigmarsdóttir skrifar Skoðun PISA-skellur en hvað svo? Inga Sæland skrifar Skoðun Hver verndar velferð barna þegar náttúran blandar kynjunum? Jón Þór Ólafsson skrifar Skoðun Einhliða bergmálshellir og heimildir sem hrynja Lilja Benatov Hjartar skrifar Skoðun KEMUR TÓLFAN? Hilmar Jökull Stefánsson skrifar Skoðun Ábyrgðinni má ekki útvista til tækninnar Karen Ósk Nielsen Björnsdóttir skrifar Sjá meira
Skoðun Heiður hússins: Um kynferðisofbeldi í nánum samböndum Hrafnhildur Kjerúlf Sigmarsdóttir skrifar