Samfélagsósómi bankanna Guðmundur Ingi Þóroddsson skrifar 4. febrúar 2026 06:01 Íslenskir bankar hafa á undanförnum misserum lokað bankareikningum fólks sem hefur lokið afplánun dóms, ekki brotið af sér á ný og er að reyna að byggja upp eðlilegt líf. Að mati Afstöðu-réttindafélags er um að ræða samfélagslega útilokun en bankareikningur er forsenda þess að fá útgreidd laun, fjárhagsaðstoð frá hinu opinbera og til þess að greiða reikninga. Þetta er með öðrum orðum gríðarlega stór hindrun á viðkvæmum tíma og ekki til þess fallið að stuðla að farsælli endurkomu í samfélagið. Afstaða hefur þurft að aðstoða fyrrverandi fanga sem voru umkomulausir eftir að bankareikningum þeirra var lokað. Í samskiptum við bankana vísa starfsmenn þeirra oftar en ekki til laga nr. 140/2018 um aðgerðir gegn peningaþvætti og fjármögnun hryðjuverka en þau lög réttlæta ekki að bankar taki sér stöðu dómara og refsi fólki án dóms eða raunverulegs gruns um brot. Bankar eru ekki löggæslustofnanir og ef grunur vaknar um brot eiga þeir að tilkynna það til lögreglu en ekki loka reikningum fólks fyrirvaralaust. Í þessum málum er augljóst að bankarnir fara í manngreinarálit en með því brjóta þeir gegn lögum nr. 5/2023 um greiðslureikninga. Samkvæmt lögunum er bönkunum skylt að veita neytendum aðgengi að almennum greiðslureikningi og er þeim óheimilt að mismuna neytendum að því leyti. Þá segir berum orðum: „Lánastofnanir skulu þó ekki nota ákvæði laga þar um, t.d. um peningaþvætti og fjármögnun hryðjuverka, sem átyllu til að hafna neytendum sem þær telja síður álitlega viðskiptavini með tilliti til fjárhagsstöðu þeirra.” Afstaða skorar á stjórnvöld að beita sér fyrir því að bankarnir virði lög landsins og tryggi öllum viðskiptavinum sínum aðgengi að bankareikningi. Verði ekkert gert og bankarnir fá óareittir að hafna þeim sem þeir telja óæskilega viðskiptavini eru afleiðingarnar augljósar. Fólki er ýtt út á jaðarinn, í vítahring skuldavanda og svarta hagkerfið stækkar. Samfélagið allt tapar á þessari stefnu bankanna sem virða hvorki lög né mannréttindi og virða samfélagslega ábyrgð að vettugi. Höfundur er formaður Afstöðu-réttindafélags Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Guðmundur Ingi Þóroddsson Skoðun: Sveitarstjórnarkosningar 2026 Mest lesið Í hvaða vitleysu erum við stödd? Ragnheiður Stephensen Skoðun Hver á arfinn? Gunnar Ármannsson Skoðun Skuggamansal á Íslandi Sævar Þór Jónsson Skoðun Landsleikar RÚV! Sigurlín Margrét Sigurðardóttir Skoðun Hvar eru þingmenn NV-kjördæmis? Sigurður Páll Jónsson Skoðun Opið bréf til Húnboga Þórs Árnasonar Margrét Rut Eddudóttir Skoðun Noregur styrkir EES – Ísland verður að fylgja Rögnvaldur Guðmundsson Skoðun Skattlagning til velsældar Hannes Lúðvíksson Skoðun Grateful Dead á Sæbrautinni Júlíus Valsson Skoðun Við erum ekki jafn ömurleg og við höldum Þorsteinn Tjörvi Sigurðsson Skoðun Skoðun Skoðun Bókasöfnin okkar Hrönn Soffíu Björgvinsdóttir skrifar Skoðun Skildi hugmynd Trumps vera “sleggjan” sem allir eru að leita af. Eggert Guðmundsson skrifar Skoðun Opið bréf til Húnboga Þórs Árnasonar Margrét Rut Eddudóttir skrifar Skoðun Hvar eru þingmenn NV-kjördæmis? Sigurður Páll Jónsson skrifar Skoðun Noregur styrkir EES – Ísland verður að fylgja Rögnvaldur Guðmundsson skrifar Skoðun Landsleikar RÚV! Sigurlín Margrét Sigurðardóttir skrifar Skoðun Við erum ekki jafn ömurleg og við höldum Þorsteinn Tjörvi Sigurðsson skrifar Skoðun Bjórinn sem slapp við suðurferðina Elís Pétur Elísson skrifar Skoðun Í hvaða vitleysu erum við stödd? Ragnheiður Stephensen skrifar Skoðun Skattlagning til velsældar Hannes Lúðvíksson skrifar Skoðun Baráttan er ekki búin Mordekaí Elí Esrason skrifar Skoðun Hver á arfinn? Gunnar Ármannsson skrifar Skoðun Að tala um dauðann er að tala um lífið Ingrid Kuhlman skrifar Skoðun Til hamingju Reykjanesbær með leikskólana okkar Guðný Birna Guðmundsdóttir skrifar Skoðun Skuggamansal á Íslandi Sævar Þór Jónsson skrifar Skoðun Grateful Dead á Sæbrautinni Júlíus Valsson skrifar Skoðun Þjóðarsjúkrahúsið seinkar Sigurður Sigurðsson skrifar Skoðun Er gervigreindin spegill mannkyns Kristján Logason skrifar Skoðun Er Þórarinn Tyrfings nýja framtíð Vogs? Bergþóra Haralds Eiðsdóttir skrifar Skoðun Tólf ára ákvað ég að gera bíó Arnar Benjamín Kristjánsson skrifar Skoðun Hvað segja gögnin í raun um ásakanir á hendur séra Friðriki Theódór S. Halldórsson skrifar Skoðun Það er sárt að tapa kosningum Heimir Már Pétursson skrifar Skoðun Er enn þess virði að leggja á sig langt háskólanám? Gunnar Alexander Ólafsson skrifar Skoðun Engin fjölskylda á að þurfa að standa ein Eydís Ásbjörnsdóttir skrifar Skoðun Þegar reglurnar gilda ekki jafnt Ágúst Karlsson skrifar Skoðun Utanríkisstefna án ábyrgðar? Erna Bjarnadóttir skrifar Skoðun Heiður hússins: Um kynferðisofbeldi í nánum samböndum Hrafnhildur Kjerúlf Sigmarsdóttir skrifar Skoðun PISA-skellur en hvað svo? Inga Sæland skrifar Skoðun Hver verndar velferð barna þegar náttúran blandar kynjunum? Jón Þór Ólafsson skrifar Skoðun Einhliða bergmálshellir og heimildir sem hrynja Lilja Benatov Hjartar skrifar Sjá meira
Íslenskir bankar hafa á undanförnum misserum lokað bankareikningum fólks sem hefur lokið afplánun dóms, ekki brotið af sér á ný og er að reyna að byggja upp eðlilegt líf. Að mati Afstöðu-réttindafélags er um að ræða samfélagslega útilokun en bankareikningur er forsenda þess að fá útgreidd laun, fjárhagsaðstoð frá hinu opinbera og til þess að greiða reikninga. Þetta er með öðrum orðum gríðarlega stór hindrun á viðkvæmum tíma og ekki til þess fallið að stuðla að farsælli endurkomu í samfélagið. Afstaða hefur þurft að aðstoða fyrrverandi fanga sem voru umkomulausir eftir að bankareikningum þeirra var lokað. Í samskiptum við bankana vísa starfsmenn þeirra oftar en ekki til laga nr. 140/2018 um aðgerðir gegn peningaþvætti og fjármögnun hryðjuverka en þau lög réttlæta ekki að bankar taki sér stöðu dómara og refsi fólki án dóms eða raunverulegs gruns um brot. Bankar eru ekki löggæslustofnanir og ef grunur vaknar um brot eiga þeir að tilkynna það til lögreglu en ekki loka reikningum fólks fyrirvaralaust. Í þessum málum er augljóst að bankarnir fara í manngreinarálit en með því brjóta þeir gegn lögum nr. 5/2023 um greiðslureikninga. Samkvæmt lögunum er bönkunum skylt að veita neytendum aðgengi að almennum greiðslureikningi og er þeim óheimilt að mismuna neytendum að því leyti. Þá segir berum orðum: „Lánastofnanir skulu þó ekki nota ákvæði laga þar um, t.d. um peningaþvætti og fjármögnun hryðjuverka, sem átyllu til að hafna neytendum sem þær telja síður álitlega viðskiptavini með tilliti til fjárhagsstöðu þeirra.” Afstaða skorar á stjórnvöld að beita sér fyrir því að bankarnir virði lög landsins og tryggi öllum viðskiptavinum sínum aðgengi að bankareikningi. Verði ekkert gert og bankarnir fá óareittir að hafna þeim sem þeir telja óæskilega viðskiptavini eru afleiðingarnar augljósar. Fólki er ýtt út á jaðarinn, í vítahring skuldavanda og svarta hagkerfið stækkar. Samfélagið allt tapar á þessari stefnu bankanna sem virða hvorki lög né mannréttindi og virða samfélagslega ábyrgð að vettugi. Höfundur er formaður Afstöðu-réttindafélags
Skoðun Heiður hússins: Um kynferðisofbeldi í nánum samböndum Hrafnhildur Kjerúlf Sigmarsdóttir skrifar