LIV fær heimslistastig þótt mótaröðin uppfylli ekki skilyrði Kjartan Kjartansson skrifar 4. febrúar 2026 10:45 Ákvörðun OWGR er góðar fréttir fyrir kylfinga eins og Tyrrel Hatton sem keppir á LIV. Hann og fleiri hafa þurft að keppa á evrópsku mótaröðinni til þess að fá stig á heimslistann og komast inn í risamót golfsins. AP/Scott Taetsch/LIV Golf Samtökin sem halda utan um heimslistann í golfi samþykktu að veita LIV-mótaröðinni stig á listann í fyrsta skipti í gær. LIV hefur lengi sóst eftir þeirri viðurkenningu og fær nú stigin þrátt fyrir að mótaröðin uppfylli ekki skilyrði sem sett eru fyrir heimslistastigum.
Stjórn Opinbera heimslistans í golfi (OWGR) samþykkti samhljóða umsókn LIV-mótaraðarinnar um að veita henni stig á listann í gær. Mótaröðin hafði barist fyrir því frá stofnun árið 2022 en án árangurs. Heimslistinn skiptir atvinnukylfinga sköpum þar sem hann hefur mikið um það að segja hverjir komast inn á risamót golfsins fjögur. Í ákvörðun sinni viðurkenndi stjórnin að LIV uppfyllti ekki fjölda lykilskilyrða fyrir að fá stig á heimslistann. LIV-mót eru þannig umtalsvert fámennari en flest önnur atvinnumannamót og veikari. Þá er LIV að mestu lokuð mótaröð sem kylfingum er boðin þátttaka á frekar en að hver sem er geti unnið sér sæti á henni í undankeppnum. Ákvörðunin hefur þegar tekið gildi og fá tíu efstu kylfingar á opnunarmóti LIV í Ríad í Sádi-Arabíu um helgina stig á heimslistann. Ósáttir við hversu fáir fá stig Þrátt fyrir þennan sigur telur Scott O'Neill, forstjóri LIV, að mótaröðinni vegið með ákvörðun OWGR-samtakanna. Sérstaklega er hann ósáttur við að aðeins tíu efstu keppendur á LIV-mótum fái stig á heimslistann. „Engin önnur mótaröð eða keppnisdeild í sögu OWGR hefur sætt slíkum takmörkunum,“ sagði forstjórinn í yfirlýsingu og bendir á að þeir sem lendi í ellefta sæti á LIV-móti séu þannig í sambærilegri stöðu við þann sem lendir í 57. sæti á PGA-móti. Scott O'Neill, forstjóri LIV, (t.v.) slær á létta strengi með Brooks Koepka (t.h.) í Ríad í fyrra. Koepka sneri aftur á PGA-mótaröðina um mánaðamótin.AP/Charles Laberge/LIV Golf PGA-mót eru engu að síður mun fjölmennari en LIV-mót og meðalstyrkleiki kylfinga á þeim er verulega meiri. Sigurvegarinn á LIV í Ríad fær 23 stig á heimslistann en til samanburðar fær sigurvegarinn á móti PGA-mótaraðarinnar í Phoenix um helgina 57 stig. Trevor Immelman, formaður OWGR og fyrrverandi Masters-meistari, segir að það hafi verið samtökunum gríðarlega mikilvægt að raða bestu kylfingum heims eins nákvæmlega og hægt væri. „Mig dreymir um heim í atvinnukeppni karla þar sem allir vinna saman og aðdáendur njóta frábærs golfs um allan heim. Það hefur verið leiðarljós mitt frá því að ég tók við þessu hlutverki,“ segir Immelman við AP-fréttastofuna. Fjarað undan LIV á síðustu misserum Sádiarabíski þjóðarsjóðurinn setti LIV-mótaröðina á fót til höfuðst PGA-mótaröðinni árið 2022. Undir stjórn Gregs Norman tókst LIV að lokka nokkra af þekktustu kylfingum heims til sín með boði um gull og græna skóga. Töluvert hefur fjarað undan LIV á undanförnum misserum. Enginn er sterkustu kylfingum heims hefur gengið til liðs við mótaröðina frá því að Jon Rahm gerði það síðla árs 2023. Síðasta mánuðinn hafa svo tvær af helstu stjörnum LIV snúið baki við mótaröðinni. Brooks Koepka, margfaldur risamótssigurvegari, hóf leik á PGA-mótaröðinni aftur um síðustu helgi og Patrick Reed, Masterssigurvegarinn frá 2018, snýr aftur í haust eftir að hann endurnýjaði ekki samning sinn við LIV.
LIV-mótaröðin Golf Bandaríkin Masters-mótið PGA-meistaramótið Opna bandaríska Opna breska Tengdar fréttir LIV-stjörnur þekkjast ekki boð PGA-manna Engin af þeim þremur stjörnum LIV-mótaraðarinnar í golfi sem stendur tímabundið til boða að snúa aftur á PGA-mótaröðina ætla að taka boðinu. Brooks Koepka, margfaldur risamótsmeistari, fékk inngöngu á PGA-röðina á dögunum. 14. janúar 2026 10:22 Koepka snýr aftur og öðrum LIV-stjörnum býðst að fylgja honum Bandaríski kylfingurinn Brooks Koepka snýr aftur á PGA-mótaröðina strax í lok þessa mánaðar eftir að hann samþykkti að gera yfirbót fyrir brotthvarf sitt til LIV-mótaraðarinnar. Undanþága sem er sérsniðin að stærstu stjörnum LIV stendur þeim tímabundið til boða. 13. janúar 2026 15:00 Íþróttaþvottavél Sáda á fullum snúningi Sprengju var varpað inn í golfheiminn í vikunni þegar tilkynnt var um samstarf tveggja stærstu golfmótaraða heims við þjóðarsjóð Sádi-Arabíu sem höfðu eldað grátt silfur saman í á annað ár. Samstarfið er nýjasta útspilið í viðleitni Sáda til þess að kaupa sér áhrif og fegra ímynd sína í gegnum íþróttir. 10. júní 2023 08:01 Mest lesið Dagur tók upp gítarinn og söng í bronsgleði Króatanna Handbolti Erum við ósanngjörn við Ómar Inga sem þjóð? Handbolti Kom í einkaflugvél á Ólympíuleikana Sport Chelsea reyndi nýstárlega aðferð til að stoppa hornin hjá Arsenal Enski boltinn Ellefu ára strákur verður óvænt hluti af setningarhátíð Ólympíuleikanna Sport „Það mun allt skýrast á næstu tveimur vikum“ Handbolti Sara var lengi lásskjámynd Eyglóar en nú er Eygló á símanum hjá Söru Sport Extraleikarnir: Bannað að bíta og nýtt met í gryfjuhlaupi Sport Fær að dansa á leikunum í búningi „minions“ úr Aulinn ég-myndunum Sport James Harden skipt til Cleveland og titillíkur Cavaliers aukast Körfubolti Fleiri fréttir LIV fær heimslistastig þótt mótaröðin uppfylli ekki skilyrði LIV-stjörnur þekkjast ekki boð PGA-manna Koepka snýr aftur og öðrum LIV-stjörnum býðst að fylgja honum Kylfingur tók áhættuna og upplifði versta golfdag lífsins McIlroy miður sín yfir ummælum áhorfenda um dóttur hans Efnilegur kylfingur meðal þeirra sem létust í brunanum í Sviss Sjá meira
LIV-stjörnur þekkjast ekki boð PGA-manna Engin af þeim þremur stjörnum LIV-mótaraðarinnar í golfi sem stendur tímabundið til boða að snúa aftur á PGA-mótaröðina ætla að taka boðinu. Brooks Koepka, margfaldur risamótsmeistari, fékk inngöngu á PGA-röðina á dögunum. 14. janúar 2026 10:22
Koepka snýr aftur og öðrum LIV-stjörnum býðst að fylgja honum Bandaríski kylfingurinn Brooks Koepka snýr aftur á PGA-mótaröðina strax í lok þessa mánaðar eftir að hann samþykkti að gera yfirbót fyrir brotthvarf sitt til LIV-mótaraðarinnar. Undanþága sem er sérsniðin að stærstu stjörnum LIV stendur þeim tímabundið til boða. 13. janúar 2026 15:00
Íþróttaþvottavél Sáda á fullum snúningi Sprengju var varpað inn í golfheiminn í vikunni þegar tilkynnt var um samstarf tveggja stærstu golfmótaraða heims við þjóðarsjóð Sádi-Arabíu sem höfðu eldað grátt silfur saman í á annað ár. Samstarfið er nýjasta útspilið í viðleitni Sáda til þess að kaupa sér áhrif og fegra ímynd sína í gegnum íþróttir. 10. júní 2023 08:01