Vandamálið að „verðbólgan hættir ekkert“ Bjarki Sigurðsson skrifar 4. febrúar 2026 12:21 Ásgeir Jónsson er seðlabankastjóri. Vísir/Vilhelm Peningastefnunefnd Seðlabankans hefur ákveðið að halda stýrivöxtum óbreyttum í 7,25 prósentum. Seðlabankastjóri segir aukna verðbólgu ekki gefa tilefni til hækkunar. Laun hækki þó of hratt sem hefur mikil áhrif á efnahaginn.
Stýrivextir voru lækkaðir um miðjan nóvember þegar síðasta ákvörðun nefndarinnar var kynnt. Óvíst var fyrir kynninguna í morgun hver niðurstaðan yrði, en greiningadeildir viðskiptabankanna voru ósammála í sínum spám. Íslandsbanki og Arion spáðu óbreyttum vöxtum, en Landsbankinn spáði því að vextirnir yrðu hækkaðir um 0,25 prósentustig. Verðbólga hafi aukist umfram væntingar en hún mælist nú 5,2 prósent. Aukninguna má rekja að miklu leyti til hækkunar opinberra gjalda. Ásgeir Jónsson seðlabankastjóri segir það mat nefndarinnar að verðbólgumælingin hefði ekki verið nógu slæm til að grípa til hækkunar vaxta. „Vextirnir eru mjög háir, þeir eru 7,25 prósent. Þetta háa vaxtastig leiðir til þess að hagkerfið er að kólna. Við erum að sjá atvinnuleysi vaxa og vinnumarkaðinn kólna. Nefndin ræddi viðbrögð ef þetta héldi áfram, það er ef við sæjum vísitölu neysluverðs hækka frekar. Við stöndum alveg reiðubúin til þess að bregðast við,“ segir Ásgeir. En í Peningamálum gerið þið ráð fyrir því að verðbólgan muni hjaðna á næstu mánuðum. „Við búumst ekki við því að þetta verðbólguástand gangi áfram. Það stafar af því að við ályktum að við munum sjá hagkerfið kólna, aukið atvinnuleysi, kólnun á vinnumarkaði. Þannig við eigum erfitt með að sjá að þetta haldi áfram, en auðvitað getum við ekki útilokað það,“ segir Ásgeir. Staða íslenska hagkerfisins sé mjög góð þrátt fyrir að laun hækki of hratt og vöruverð hækki í takt við það. „Við getum orðað það þannig að ég held að erlendar þjóðir muni ekki líta á okkar vandamál sem mjög stórvægileg. Það er margt í lagi hjá okkur sem er ekki í lagi annars staðar. Það hefur gengið vel með ansi margt en það hefur gengið illa að halda aftur af verðhækkunum. Það er vandamálið sem við sitjum uppi með á Íslandi. Að verðbólgan hættir ekkert,“ segir Ásgeir.
Efnahagsbrot Seðlabankinn Verðlag Íslenska krónan Fjármál heimilisins Mest lesið Skipulagsbreytingar hjá Símanum Viðskipti innlent Beina því til Storytel að gæta varúðar í markaðssetningu Viðskipti innlent Gervigreindin að afhjúpa stjórnendur og klóna Atvinnulíf Advania lýkur kaupum á Evolv Viðskipti innlent Vilja að frítekjumörk örorkulífeyris verði endurskoðuð Viðskipti innlent Hyggja á hóteluppbyggingu á milli Hveragerðis og Selfoss Viðskipti innlent Stjórn Icelandair með fullt traust til Boga Viðskipti innlent Fótboltastjörnur mokgræða á nikótínpúðum Viðskipti innlent Klíník og klíník í eina sæng Viðskipti innlent Tuttugu stærstu eiga 400 milljarða í öðrum félögum Viðskipti innlent Fleiri fréttir Beina því til Storytel að gæta varúðar í markaðssetningu Skipulagsbreytingar hjá Símanum Advania lýkur kaupum á Evolv Stjórn Icelandair með fullt traust til Boga Hyggja á hóteluppbyggingu á milli Hveragerðis og Selfoss Vilja að frítekjumörk örorkulífeyris verði endurskoðuð Klíník og klíník í eina sæng Lokar Sjoppunni eftir sextán ára rekstur Tuttugu stærstu eiga 400 milljarða í öðrum félögum Reynir á þolmörk flugmanna og svigrúm Icelandair Voni að allir fái starfið aftur Fótboltastjörnur mokgræða á nikótínpúðum Fljúga daglega til Washington D.C. í sumar Kvarta til Persónuverndar vegna nýrrar gjaldtöku Sektir rafrettukóngs og eiganda söluturns lækkaðar verulega Verkfalli hafnaverkafólks í Sundahöfn aflýst Loka í Kringlunni Skatturinn birtir álagningu í dag Samningsstaða kaupenda hefur styrkst jafnt og þétt Gefa grænt ljós á kaup Nova á Ofar Málmhlutur í maís Tryggja gegn frjósemisvanda fyrst félaga Jón Þór nýr yfirlögfræðingur Landsbankans Enn ríður Indó á vaðið „Við erum komin með hæstu laun í Evrópu“ „Þyngir enn frekar rekstur fyrirtækja og stöðu heimila“ Stjórnendur keyptu á 83 milljónir og seldu á 195 milljónir Bein útsending: Rökstyðja hækkun stýrivaxta Jónína nýr forstöðumaður hjá Olís Hækka stýrivexti aftur Sjá meira