Krónan flökt mun minna gagnvart evru síðustu ár en margar aðrar myntir Gengisflökt krónunnar gagnvart evru hefur minnkað verulega frá árinu 2023 og er talsvert minna annarra helstu mynta, en þar spilar meðal annars inn í jafnvægi á utanríkisviðskiptum og sveiflujafnandi hlutverk Seðlabankans og lífeyrissjóða. Þrátt fyrir tugmilljarða innflutning vegna uppbyggingar gagnavera var afgangur á vöru- og þjónustuviðskiptum á fyrsta fjórðungi ársins. Innherji 5.6.2026 09:59
„Siðareglurnar bara enn eitt leikritið af hálfu þessarar ríkisstjórnar“ Sjálfstæðismenn eru æfir vegna orða Daða Más Kristóferssonar fjármálaráðherra um nýja skýrslu um íslensku krónuna. Þeir vilja meina að með orðum sínum hafi hann brotið gegn siðareglum ríkisstjórnarinnar og látið Evrópublæti hlaupa með sig í gönur. Innlent 4.6.2026 11:44
Ísland og ESB: samningsmarkmið, aðildarviðræður og Evran Þótt öll ný aðildarríki ESB séu skuldbundin til að taka upp evru má fresta því um óákveðinn tíma. Ríkin sem hafa valið að taka ekki upp evru gera það af því ekki síst að það er pólitískur meirihluti fyrir sjálfstæðri peningastefnu. Þarna virðist meðal annars á ferðinni gildismat sem hverfist um fullveldið og að geta haft ákvörðunarvald yfir efnahagsstefnunni, einkum ef áföll verða. Umræðan 3.6.2026 13:59
Viðvarandi óvissa, versnandi verðbólguhorfur og háir vextir gætu reynt á Viðskipti innlent 3.6.2026 08:33
Hækka stýrivexti aftur Peningastefnunefnd hefur ákveðið að hækka stýrivexti um 25 punkta og þeir fara því úr 7,50 prósentum í 7,75. Stýrivextir voru hækkaðir í fyrsta sinn um langt skeið þann 18. mars síðastliðinn þegar þeir voru færðir upp í 7,5 prósent. Þá var verðbólga 5,2 prósent, sú sama og í dag. Flestir greiningaraðilar höfðu spáð 25 punkta hækkun. Viðskipti innlent 20. maí 2026 08:30
Spá 0,25 prósentustiga hækkun stýrivaxta Greiningardeild Landsbankans spáir því að peningastefnunefnd Seðlabankans muni hækka vexti um 0,25 prósentustig í næstu viku. Þetta kemur fram í tilkynningu. Viðskipti innlent 13. maí 2026 10:20
Sennilegt að gjaldeyriskaupin miði að því að halda aftur af styrkingu krónunnar Ekki er að sjá að mikil þörf sé á því að stækka gjaldeyrisforða Seðlabankans um þessar mundir, að sögn sérfræðings á gjaldeyrismarkaði, sem telur sennilegra að áform bankans um að hefja á nýjan leik regluleg gjaldeyriskaup miði að því að halda aftur af gengisstyrkingu krónunnar. Markaðurinn ætti að eiga auðvelt með að mæta þessari gjaldeyriseftirspurn hjá Seðlabankanum á komandi mánuðum. Innherji 12. maí 2026 11:45
Erlendir fjárfestar tekið stöðu með krónunni í auknum mæli síðustu misseri Á síðustu misserum hefur mátt merkja að erlendir fjárfestingarsjóðir séu í vaxandi mæli að „taka stöðu með krónunni“ þegar litið er til mótaðilasamsetningar á framvirkri stöðu viðskiptabankanna. Hár vaxtamunur við útlönd getur skapað hvata fyrir fjárfesta að kaupa krónueignir með stuttan líftíma þótt reglur Seðlabankans girði fyrir óhóflega stöðutöku. Innherji 30. apríl 2026 10:53
Afkoman yfir væntingum en horfur „ekki góðar“ vegna hærri eldsneytiskostnaðar Afkoma Icelandair á fyrsta fjórðungi var nokkuð yfir væntingum greinenda, meðal annars vegna eignasölu og lægri eldsneytiskostnaður en óttast var, og batamerki er að sjá í rekstri félagsins. Áframhaldandi hátt raungengi og vaxandi kostnaður vegna olíuverðshækkana setur hins vegar mark sitt á horfurnar inn í árið og útlit er fyrir lakari afkomu á öðrum fjórðungi en á sama tíma í fyrra þótt einingatekjur muni enn aukast. Innherji 29. apríl 2026 10:11
Verðbólga hjaðnar Verðbólga í apríl mældist 5,2 prósent eftir að hafa mælst 5,4 prósent í mars. Mælingin nú er sú síðasta fyrir næstu vaxtaákvörðun Seðlabankans, sem er eftir fjórar vikur. Viðskipti innlent 29. apríl 2026 09:00
Segir furðu sæta að hagfræðingur telji námslán gjöf Einar G. Harðarson, sem er fyrrverandi stjórnarmaður í Lánasjóði íslenskra námsmanna (LÍN), furðar sig á umræðu sem hefur geysað að undanförnu um námslán á Íslandi. Einar segir námslán fjárfestingu, ekki gjöf til handa námsmönnum. Innlent 9. apríl 2026 10:35
Konráð segir námslánin vera gjöf en Helga Vala gjald Konráð S. Guðjónsson, sem nú starfar sem sjálfstæður ráðgjafi hjá Kontext ehf. en er fyrrum efnahagsráðgjafi ríkisstjórnarinnar og aðstoðarmaður fjármálaráðherra, þakkar fyrir námslánin, með virtum. Innlent 7. apríl 2026 13:10
„Fólk er bara að vinna minna“ Hagfræðingur segir þá þróun eiga sér stað í hagkerfinu að hagvöxtur standi í stað milli ára og það eigi erfitt með að vaxa. Hann bendir á samdrátt í útflutningsgreinum á Íslandi undanfarin ár. Lektor við viðskiptafræðideild HÍ segir skorta á traust í samfélaginu til aðgerða til að ná tökum á verðbólgu. Innlent 29. mars 2026 12:24
Leggur til einfalt ráð í baráttunni við verðbólguna Dósent við viðskiptafræðideild Háskóla Íslands leggur til að virðisaukaskattur á matvöru og barnavörur verði lækkaður til þess að draga úr verðbólgu. Áhrifin yrðu skörp og myndi gagnast þeim hópum sem fara verst út úr aukinni verðbólgu. Viðskipti innlent 26. mars 2026 09:54
Verðbólga eykst enn Verðbólga mælist 5,4 prósent í mars, miðað við 5,2 prósent í febrúar. Greiningardeildir viðskiptabankanna höfðu spáð 5,4 til 5,5 prósenta verðbólgu. Viðskipti innlent 26. mars 2026 09:02
Margt sem bendir til að viðnámsþrótti ferðaþjónustunnar sé ábótavant Þótt fyrirtækin standi almennt vel að vígi til að mæta efnahagsáföllum þá er staðan nokkuð misjöfn milli atvinnugreina og er margt sem bendir til þess að viðnámsþrótti ferðaþjónustunnar sé ábótavant, að mati Seðlabankans, einkum vegna þess hversu sveiflukennd eftirspurnin getur verið. Ekki eru hins vegar enn sem komið skýrar vísbendingar um samdrátt í greininni í ár. Innherjamolar 25. mars 2026 16:46
Bein útsending: Sitja fyrir svörum vegna vaxtahækkunar Ásgeir Jónsson seðlabankastjóri og Þórarinn G. Pétursson varaseðlabankastjóri peningastefnu gera grein fyrir ákvörðun peningastefnunefndar um hækkun stýrivaxta og sitja fyrir svörum á blaðamannafundi, sem hefst klukkan 09:30 og verður í beinni hér á Vísi. Viðskipti innlent 18. mars 2026 09:06
Hækka stýrivexti Peningastefnunefnd hefur ákveðið að hækka stýrivexti um 25 punkta og þeir fara því úr 7,25 prósentum í 7,5. Vextir höfðu fyrir það staðið í stað í 7,25 prósentunum síðan í nóvember síðastliðnum. Síðan þá hefur verðbólga aukist í 5,2 prósent og óvissa í alþjóðamálum einnig aukist. Því höfðu flestir greiningaraðilar spáð hækkun vaxta. Tveir af fimm nefndarmönnum vildu hækka vexti enn meira. Viðskipti innlent 18. mars 2026 08:30
Krónan oftar en ekki sveiflast minna en dollar, evran og pundið Síðustu sex árin hefur íslenska krónan oftar en ekki sveiflast minna en ýmsir aðrir gjaldmiðlar, þar á meðal bandarískur dollar, Evran og breska pundið. Íslenska krónan hefur því ekki verið stór áhrifavaldur í því verðbólguástandi sem Íslendingar fást við í dag heldur sinnt sínu hlutverki vel sem fljótandi gjaldmiðill sem mýkir hagsveiflur. Viðskipti innlent 10. mars 2026 08:54
Ef snúa á við rekstri Icelandair er nær ekkert svigrúm til launahækkana í dollar Veiking Bandaríkjadals á liðnu ári hafði verulega neikvæð áhrif á afkomu Icelandair og skýrir að stórum hluta rekstrartap flugfélagsins þrátt fyrir ágætis tekjuvöxt og bata á fjórða ársfjórðungi, að sögn hlutabréfagreinanda. Verðmat á félaginu hækkar lítillega í nýrri greiningu en þar undirstrikað að ef stjórnendum á að takast að rétta við reksturinn þá er nær ekkert svigrúm fyrir launahækkunum í Bandaríkjadollar. Innherji 12. febrúar 2026 16:51
Vandamálið að „verðbólgan hættir ekkert“ Peningastefnunefnd Seðlabankans hefur ákveðið að halda stýrivöxtum óbreyttum í 7,25 prósentum. Seðlabankastjóri segir aukna verðbólgu ekki gefa tilefni til hækkunar. Laun hækki þó of hratt sem hefur mikil áhrif á efnahaginn. Viðskipti innlent 4. febrúar 2026 12:21
Bein útsending: Kynna vaxtaákvörðun og Peningamál Ásgeir Jónsson, seðlabankastjóri og formaður peningastefnunefndar, og Þórarinn G. Pétursson, varaseðlabankastjóri og staðgengill formanns peningastefnunefndar, kynna yfirlýsingu nefndarinnar klukkan 09:30. Karen Áslaug Vignisdóttir, framkvæmdastjóri sviðs hagfræði og peningastefnu og aðalhagfræðingur bankans kynnir nýja útgáfu Peningamála. Beina útsendingu af kynningunni má sjá hér að neðan. Viðskipti innlent 4. febrúar 2026 09:00
Seðlabankinn heldur stýrivöxtunum óbreyttum Peningastefnunefnd Seðlabanka Íslands hefur ákveðið að halda stýrivöxtunum óbreyttum og verða þeir því áfram 7,25 prósent. Viðskipti innlent 4. febrúar 2026 08:30
Hitni undir olíufélögum sem þurfi að passa sig Forsætisráðherra segir að ríkisstjórnin hafi búist við meiri lækkunum á eldsneytisverði hjá olíufélögunum samfara því að eldsneytisgjöld og vörugjöld á bensíni voru felld niður um áramótin. Þau þurfi að passa sig. Ríkisstjórnin ætli að ná hallalausum fjárlögum til að ná tökum á verðbólgunni. Innlent 30. janúar 2026 13:05
Þrjú þúsund milljarða skuggabankamarkaður Árleg skýrsla Seðlabankans um gjaldeyrismarkaðinn og gengisþróun er jafnan fróðleg lesning. Í þeirri nýjustu, sem birtist í liðinni viku, er meðal annars að finna þær upplýsingar að umfang gjaldeyrispörunar innan stóru viðskiptabankanna – sem sumir hafa kallað stærstu skuggabankastarfsemi landsins – hafi í fyrra numið samtals um þrjú þúsund milljörðum króna. Hefur sá markaður verið í nokkuð stöðugu ástandi á þeim slóðum undanfarin ár. Innherjamolar 20. janúar 2026 14:45