Það er gott að... í Kópavogi Halldór Benjamín Þorbergsson skrifar 5. febrúar 2026 14:03 Á síðustu misserum hefur oft verið fjallað um þær áskoranir sem fylgja því að opna veitingastaði. Ekki síst hve öflun leyfa frá sveitarfélögum getur verið tafsöm. Þetta er sem betur fer ekki vandamál í Kópavogi, ef marka má reynslu okkar hjá Heimum. Í lok nóvember opnuðu Heimar mathöllina Garðinn í Smáralind með þrettán nýjum veitingastöðum. Til þessa þurftu Heimar og veitingastaðirnir í Garðinum að fá samtals tuttugu og þrjú ólík leyfi, auk fjölda jákvæðra umsagna frá ýmsum opinberum aðilum: Byggingarleyfi, fjórtán starfsleyfi og átta rekstrarleyfi. Frumskógur leyfa og úttekta Við unnum að opnuninni í þéttu samstarfi við Heilbrigðiseftirlit Garðabæjar, Hafnarfjarðar, Kópavogs, Mosfellsbæjar og Seltjarnarness og áttum í upphafi fund með þeim þar sem farið var yfir teikningar og kröfur heilbrigðiseftirlitsins. Við héldum því samtali áfram út framkvæmdartímann og bárum breytingar jafnóðum undir fulltrúa heilbrigðiseftirlitsins. Þau voru boðin og búin að finna með okkur lausnir, brugðust hratt við fyrirspurnum og gáfu greinargóð svör. Þar sem verkefnið var stórt og flókið aðstoðuðu þau okkur með því að senda okkur lista yfir skilagögn og leiðbeiningar um umsóknarferlið fyrir hvern og einn rekstraraðila. Þegar framkvæmdirnar voru á lokametrunum fóru þau sjálf af stað í gagnaöflun og upplýstu okkur í kjölfarið um hvaða gögn vantaði frá hverjum aðila. Þannig náðu þau að yfirfara öll gögn og koma með athugasemdir áður en úttektir á stöðunum áttu sér stað. Þegar kom að úttektunum voru þau liðleg með tímasetningar og töldu ekki eftir sér að koma í auka heimsókn til þeirra veitingastaða sem voru eftir á með sinn undirbúning. Settur var á afgreiðslufundur hjá bæjaryfirvöldum daginn eftir úttektirnar og leyfin afgreidd á methraða og jákvæðar umsagnir sendar til sýslumannsembættisins vegna útgáfu rekstrarleyfa. Svona eiga sýslumenn að vera Starfsfólk byggingarfulltrúa Kópavogs var einnig mjög liðlegt og afgreiddi öryggisvottorð og jákvæðar umsagnir fljótlega eftir að við höfðum skilað inn öllum gögnum. Sýslumaður gaf svo út rekstrarleyfin morguninn eftir að síðustu umsagnirnar bárust. Við kunnum öllum þessum aðilum miklar þakkir fyrir frábært samstarf. Það sýndi sig í þessu verkefni að hér í Kópavogi er gott að opna mathöll og engar hindranir af hálfu opinberra aðila gagnvart þeim sem vilja fjárfesta í atvinnurekstri hér. Árangurinn strax kominn í ljós Heildarfjárfestingin í Garðinum og nærliggjandi svæðum í Smáralind nemur um 1,5 milljarði króna og er þegar farin að skila sér en aðsókn fólks og velta rekstraraðila hefur verið umfram væntingar. Gestafjöldi í Smáralind var tæpum 20% hærri en í hefðbundnum desembermánuði og 25% meiri í janúar. Það skiptir máli að eiga gott samstarf við sveitarfélagið okkar um uppbyggingu eins og þessa. Í Smáralind koma yfir fjórar milljónir gesta á ári og Heimar hyggjast á næstu árum fjárfesta fyrir marga milljarða til viðbótar á svæðinu í kringum Smáralind. Gunnar heitinn Birgisson, formaður bæjarráðs og bæjarstjóri Kópavogs í tæpa tvo áratugi sagði gjarna: „Það er gott að búa í Kópavogi“. Ég get bætt við þá yfirlýsingu og segi óhikað: „Það er gott að framkvæma og stunda viðskipti í Kópavogi“. Hér gengur allt snurðulaust fyrir sig og embættismenn bæjarins eiga hrós skilið fyrir skilvirkni og fagmennsku í bæði úttektum og leyfisveitingum. Þökk sé þeim er nú gott að borða í Kópavogi. Höfundur er forstjóri Heima. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Halldór Benjamín Þorbergsson Skoðun: Sveitarstjórnarkosningar 2026 Mest lesið Hver á arfinn? Gunnar Ármannsson Skoðun Í hvaða vitleysu erum við stödd? Ragnheiður Stephensen Skoðun Skuggamansal á Íslandi Sævar Þór Jónsson Skoðun Landsleikar RÚV! Sigurlín Margrét Sigurðardóttir Skoðun Grateful Dead á Sæbrautinni Júlíus Valsson Skoðun Skattlagning til velsældar Hannes Lúðvíksson Skoðun Baráttan er ekki búin Mordekaí Elí Esrason Skoðun Við erum ekki jafn ömurleg og við höldum Þorsteinn Tjörvi Sigurðsson Skoðun Til hamingju Reykjanesbær með leikskólana okkar Guðný Birna Guðmundsdóttir Skoðun Er Þórarinn Tyrfings nýja framtíð Vogs? Bergþóra Haralds Eiðsdóttir Skoðun Skoðun Skoðun Opið bréf til Húnboga Þórs Árnasonar Margrét Rut Eddudóttir skrifar Skoðun Hvar eru þingmenn NV-kjördæmis? Sigurður Páll Jónsson skrifar Skoðun Noregur styrkir EES – Ísland verður að fylgja Rögnvaldur Guðmundsson skrifar Skoðun Landsleikar RÚV! Sigurlín Margrét Sigurðardóttir skrifar Skoðun Við erum ekki jafn ömurleg og við höldum Þorsteinn Tjörvi Sigurðsson skrifar Skoðun Bjórinn sem slapp við suðurferðina Elís Pétur Elísson skrifar Skoðun Í hvaða vitleysu erum við stödd? Ragnheiður Stephensen skrifar Skoðun Skattlagning til velsældar Hannes Lúðvíksson skrifar Skoðun Baráttan er ekki búin Mordekaí Elí Esrason skrifar Skoðun Hver á arfinn? Gunnar Ármannsson skrifar Skoðun Að tala um dauðann er að tala um lífið Ingrid Kuhlman skrifar Skoðun Til hamingju Reykjanesbær með leikskólana okkar Guðný Birna Guðmundsdóttir skrifar Skoðun Skuggamansal á Íslandi Sævar Þór Jónsson skrifar Skoðun Grateful Dead á Sæbrautinni Júlíus Valsson skrifar Skoðun Þjóðarsjúkrahúsið seinkar Sigurður Sigurðsson skrifar Skoðun Er gervigreindin spegill mannkyns Kristján Logason skrifar Skoðun Er Þórarinn Tyrfings nýja framtíð Vogs? Bergþóra Haralds Eiðsdóttir skrifar Skoðun Tólf ára ákvað ég að gera bíó Arnar Benjamín Kristjánsson skrifar Skoðun Hvað segja gögnin í raun um ásakanir á hendur séra Friðriki Theódór S. Halldórsson skrifar Skoðun Það er sárt að tapa kosningum Heimir Már Pétursson skrifar Skoðun Er enn þess virði að leggja á sig langt háskólanám? Gunnar Alexander Ólafsson skrifar Skoðun Engin fjölskylda á að þurfa að standa ein Eydís Ásbjörnsdóttir skrifar Skoðun Þegar reglurnar gilda ekki jafnt Ágúst Karlsson skrifar Skoðun Utanríkisstefna án ábyrgðar? Erna Bjarnadóttir skrifar Skoðun Heiður hússins: Um kynferðisofbeldi í nánum samböndum Hrafnhildur Kjerúlf Sigmarsdóttir skrifar Skoðun PISA-skellur en hvað svo? Inga Sæland skrifar Skoðun Hver verndar velferð barna þegar náttúran blandar kynjunum? Jón Þór Ólafsson skrifar Skoðun Einhliða bergmálshellir og heimildir sem hrynja Lilja Benatov Hjartar skrifar Skoðun KEMUR TÓLFAN? Hilmar Jökull Stefánsson skrifar Skoðun Ábyrgðinni má ekki útvista til tækninnar Karen Ósk Nielsen Björnsdóttir skrifar Sjá meira
Skoðun Heiður hússins: Um kynferðisofbeldi í nánum samböndum Hrafnhildur Kjerúlf Sigmarsdóttir skrifar