Oddviti í úrvalsdeild Svavar Halldórsson skrifar 5. febrúar 2026 14:45 Sjaldgæft tækifæri blasir við Sjálfstæðismönnum í Hafnarfirði um helgina. Þeir geta valið farsælan forstjóra eins öflugasta nýsköpunarfyrirtækis landsins til að leiða lista flokksins í komandi sveitarstjórnarkosningum. Orri Björnsson fór fyrir uppbyggingu líftæknifyrirtækisins Algalífs í rúman áratug og gerði það að leiðandi fyrirtæki í heiminum á sínu sviði. Hann nýtur trausts og er þekktur af verkum sínum langt út fyrir raðir Sjálfstæðismanna og Hafnfirðinga. Glæsilegur hópur í boði Fríður hópur hæfileikafólks gefur kost á sér í prófkjörinu. Undirritaður er þeim öllum þakklátur fyrir að vilja verja tíma sínum og kröftum í að vinna fyrir Hafnfirðinga. Það verður vandasamt að velja einungis sex úr þessum glæsilega hópi, en flokksfólk hefur tækifæri til að stilla upp sigurstranglegum lista þar sem saman raðast karlar og konur, nýliðar og reynsluboltar úr ýmsum geirum samfélagsins. Ef vel tekst til er framtíð flokksins í bænum björt. Með vandaðri og vel ígrundaðri kosningabaráttu eru ágætar sigurlíkur í vor. Leiðtogar skipta máli Gangur stjórnmálaflokka í sveitarstjórnarkosningum, í einstökum bæjarfélögum, helgast einkum af þremur sértækum þáttum. Í fyrsta lagi hefur gengi og kosningabarátta viðkomandi flokks á landsvísu og í öðrum sveitarfélögum talsverð áhrif. Í öðru lagi geta tiltekin staðbundin mál breytt útkomunni og loks skiptir máli hverjir skipa framboðslistana – ekki síst hverjir leiða þá. Þar kemur reynsla og þekking leiðtoganna sterkt inn. Stóra málið er hins vegar traust. Traust er lykilatriði Samkvæmt nýrri skoðanakönnun er hnífjafnt á milli Samfylkingar og Sjálfstæðisflokks í borginni sem fengju meginþorra fulltrúanna en litlu flokkarnir minna. Í Hafnarfirði stendur baráttan á milli sömu flokka. Reynslan sýnir okkur að við þessar aðstæður skiptir miklu hverjir leiða listana. Þekkja kjósendur þetta fólk, hvað verk gefa vísbendingu um að þeir verði góðir stjórnendur og njóta þeir trausts? Treystir fólk þessum oddvitum til að fara vel með almannafé, standa af festu með almannahagsmunum og sjá til þess að innviðir sveitarfélagsins virki? Frambjóðandi í úrvalsdeild Sjálfur þekki ég Orra Björnsson mjög vel. Í rúmlega fimm ár, eða allt þar til hann steig nýverið úr forstjórastóli Algalífs til að helga sig bæjarmálum í Hafnarfirði, unnum við þétt saman að uppbyggingu fyrirtækisins. Hann sem forstjóri og ég sem sölu- og markaðsstjóri. Á sama tíma sat hann líka í bæjarstjórn, undanfarið sem oddviti Sjálfstæðisflokksins í bænum, var formaður skipulags- og byggingaráðs, og knúði í gegn, ásamt félögum sínum í meirihlutanum, 3,7 milljarða króna lækkun á fasteignagjöldum. Með hagsmuni bæjarins að leiðarljósi Við Orri höfum þekkst í áratugi og ég fullyrði að leitun er að heilsteyptari og traustari manni. Hann er skarpgreindur, heiðarlegur, framsýnn og vinnusamur - fyrir utan að vera vinamargur og meinfyndinn húmoristi. Hann er óhræddur við að takast á við krefjandi verkefni og lætur verkin tala. Orri er frambjóðandi í úrvalsdeild og ég treysti engum betur til að gæta hagsmuna Hafnarfjarðar og Hafnfirðinga. Þess vegna styð ég Orra Björnsson í 1. sætið í prófkjörinu um helgina og hvet aðra til að gera það sama, með hagsmuni flokksins og bæjarins að leiðarljósi. Höfundur er stjórnmála- og stjórnsýslufræðingur. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Svavar Halldórsson Skoðun: Sveitarstjórnarkosningar 2026 Mest lesið Í hvaða vitleysu erum við stödd? Ragnheiður Stephensen Skoðun Hver á arfinn? Gunnar Ármannsson Skoðun Landsleikar RÚV! Sigurlín Margrét Sigurðardóttir Skoðun Skuggamansal á Íslandi Sævar Þór Jónsson Skoðun Hvar eru þingmenn NV-kjördæmis? Sigurður Páll Jónsson Skoðun Opið bréf til Húnboga Þórs Árnasonar Margrét Rut Eddudóttir Skoðun Noregur styrkir EES – Ísland verður að fylgja Rögnvaldur Guðmundsson Skoðun Skattlagning til velsældar Hannes Lúðvíksson Skoðun Grateful Dead á Sæbrautinni Júlíus Valsson Skoðun Við erum ekki jafn ömurleg og við höldum Þorsteinn Tjörvi Sigurðsson Skoðun Skoðun Skoðun Bókasöfnin okkar Hrönn Soffíu Björgvinsdóttir skrifar Skoðun Skildi hugmynd Trumps vera “sleggjan” sem allir eru að leita af. Eggert Guðmundsson skrifar Skoðun Opið bréf til Húnboga Þórs Árnasonar Margrét Rut Eddudóttir skrifar Skoðun Hvar eru þingmenn NV-kjördæmis? Sigurður Páll Jónsson skrifar Skoðun Noregur styrkir EES – Ísland verður að fylgja Rögnvaldur Guðmundsson skrifar Skoðun Landsleikar RÚV! Sigurlín Margrét Sigurðardóttir skrifar Skoðun Við erum ekki jafn ömurleg og við höldum Þorsteinn Tjörvi Sigurðsson skrifar Skoðun Bjórinn sem slapp við suðurferðina Elís Pétur Elísson skrifar Skoðun Í hvaða vitleysu erum við stödd? Ragnheiður Stephensen skrifar Skoðun Skattlagning til velsældar Hannes Lúðvíksson skrifar Skoðun Baráttan er ekki búin Mordekaí Elí Esrason skrifar Skoðun Hver á arfinn? Gunnar Ármannsson skrifar Skoðun Að tala um dauðann er að tala um lífið Ingrid Kuhlman skrifar Skoðun Til hamingju Reykjanesbær með leikskólana okkar Guðný Birna Guðmundsdóttir skrifar Skoðun Skuggamansal á Íslandi Sævar Þór Jónsson skrifar Skoðun Grateful Dead á Sæbrautinni Júlíus Valsson skrifar Skoðun Þjóðarsjúkrahúsið seinkar Sigurður Sigurðsson skrifar Skoðun Er gervigreindin spegill mannkyns Kristján Logason skrifar Skoðun Er Þórarinn Tyrfings nýja framtíð Vogs? Bergþóra Haralds Eiðsdóttir skrifar Skoðun Tólf ára ákvað ég að gera bíó Arnar Benjamín Kristjánsson skrifar Skoðun Hvað segja gögnin í raun um ásakanir á hendur séra Friðriki Theódór S. Halldórsson skrifar Skoðun Það er sárt að tapa kosningum Heimir Már Pétursson skrifar Skoðun Er enn þess virði að leggja á sig langt háskólanám? Gunnar Alexander Ólafsson skrifar Skoðun Engin fjölskylda á að þurfa að standa ein Eydís Ásbjörnsdóttir skrifar Skoðun Þegar reglurnar gilda ekki jafnt Ágúst Karlsson skrifar Skoðun Utanríkisstefna án ábyrgðar? Erna Bjarnadóttir skrifar Skoðun Heiður hússins: Um kynferðisofbeldi í nánum samböndum Hrafnhildur Kjerúlf Sigmarsdóttir skrifar Skoðun PISA-skellur en hvað svo? Inga Sæland skrifar Skoðun Hver verndar velferð barna þegar náttúran blandar kynjunum? Jón Þór Ólafsson skrifar Skoðun Einhliða bergmálshellir og heimildir sem hrynja Lilja Benatov Hjartar skrifar Sjá meira
Skoðun Heiður hússins: Um kynferðisofbeldi í nánum samböndum Hrafnhildur Kjerúlf Sigmarsdóttir skrifar