Efaðist ekki um að orsökin var bilaður aðflugsgeisli Kristján Már Unnarsson skrifar 7. febrúar 2026 07:27 Harald Snæhólm flugstjóri var einn fimm Íslendinga sem komust lífs af úr flugslysinu árið 1978. Hann sat aftast í flugvélinni sem farþegi. Egill Aðalsteinsson Vanstilltur aðflugsgeisli flugvallar var meginorsök mannskæðasta flugslyss Íslandssögunnar þegar DC 8-þota Flugleiða fórst á Srí Lanka árið 1978. Þetta er mat þeirra Flugleiðamanna sem rifjuðu upp slysið í þáttaröðinni um Flugþjóðina.
Pílagrímaflug Íslendinga hefur ekki bara verið óvenjuleg viðskiptasaga. Yfir því mun ætíð hvíla dimmur skuggi; einn sorglegasti atburður íslenskrar flugsögu, flugslysið á Srí Lanka þann 15. nóvember árið 1978. DC-8 þota Flugleiða var í aðflugi að flugvellinum í Kólombó þegar hún brotlenti um tvo kílómetra frá flugbrautinni. 183 fórust en 79 komust lífs af. Fjallað er um slysið í fréttum Sýnar en ítarlegri umfjöllun er í Flugþjóðinni á Sýn+. TF-FLA, þotan sem fórst, var af gerðinni Douglas DC 8-63 og bar heitið Leifur Eiríksson.wikimedia/Alan Meloy Harald Snæhólm flugstjóri var meðal fimm Íslendinga sem lifðu slysið af. Hann var farþegi um borð og sat aftast í vélinni. Harald lést fyrir þremur mánuðum, 86 ára gamall, en hann hafði áður rætt við okkur um slysið. „Það var samviskubit út af því að hafa komist af. Og félagar manns að deyja. Maður var eiginlega sjokkeraður,“ sagði Harald. Myndskeið um Srí Lanka-slysið úr þættinum má sjá hér: Flugmennirnir Halldór Friðriksson og Guðmundur Ólafsson voru staddir ytra þegar slysið varð. „Jú, ég var í Indónesíu. Við biðum eftir vélinni frá Srí Lanka. Ég var þar þá,“ sagði Guðmundur. „Ég flaug vélinni frá Srí Lanka - eða frá Colombo yfir til Jedda. Og svo þegar hún kom til baka þá fórst hún,“ sagði Halldór. Brak úr þotunni. Þarna sést hluti stélsins. Deilt var um orsakir slysins. Yfirvöld á Srí Lanka vildu kenna um mistökum flugmanna. „Nefnd Flugleiða og Bandaríkjamanna komst að þeirri niðurstöðu að aðflugsgeislinn hafi verið of lágt stilltur. Þannig að vélin flaug eftir honum beint í skóginn,“ sagði Grétar Br. Kristjánsson, sem starfaði mikið við pílagrímaflugið sem starfsmaður Flugleiða. „Aðflugstækin voru meira og minna biluð þarna í Srí Lanka,“ sagði Halldór. Þeir Halldór Friðriksson og Guðmundur Ólafsson störfuðu báðir sem flugmenn við pílagrímaflug Flugleiða árið 1978.Arnar Halldórsson „Aðflugsgeislinn var of lágur. Það er alveg vitað mál,“ sagði Harald. „Þegar þeir komu út úr skýinu þá var svokallað VASI-ljós, það var á rauðu. Þá vissu þeir að þeir voru lágt. Turninn kallar í þá, þeir byrja að gefa henni inn, ætluðu að fara annan hring. En það var of seint. Þá fór hann niður.“ -Þannig að frumorsökin er aðflugshallageislinn? „Já, það er enginn vafi á því,“ svaraði Harald Snæhólm í þætti Flugþjóðarinnar um pílagrímaflugið. Þættina má nálgast á streymisveitunni Sýn+. Hér eru sýnishorn úr næstu þáttum:
Flugþjóðin Icelandair Srí Lanka Fréttir af flugi Tengdar fréttir Fékk samviskubit eftir mannskæðasta flugslys íslenskrar flugsögu „Svo byrjum við að heyra högg. Púmm, púmm, púmm. Ég fer að hugsa: Það er eitthvað að, segir Oddný Björgólfsdóttir, fyrrum Loftleiðaflugfreyja. Oddný var ein af þeim 79 sem komust lífs af þegar Leifur Eiríksson, DC-8 þota Flugleiða, fórst í aðflugi við Katunayake-flugvöll í Kólombó á Sri Lanka. Oddný var í þrjár vikur á sjúkrahúsi áður en hún flaug heim til Íslands þar sem við tók löng endurhæfing. 7. febrúar 2024 07:00 Vilja reisa minnisvarða um þá sem fórust á Sri Lanka 35 ár eru liðin síðan Leifur Eiríksson, þota Flugleiða, brotlenti í aðflugi á Srí Lanka. 183 fórust í slysinu, þar af átta Íslendingar. Flugstjórinn Harald Snæhólm er einn þeirra fimm Íslendinga sem lifðu slysið af. 16. nóvember 2013 12:00 35 ár liðin frá mannskæðasta flugslysi íslenskrar flugsögu Leifur Eiríksson, þota Flugleiða, fórst þann 15. nóvember 1978 í aðflugi á Sri Lanka. 183 létu lífið, þar af átta íslenskir starfsmenn Flugleiða. 15. nóvember 2013 06:45 Mest lesið Bæjarstjóri Ölfuss segir múslima „valda skaða“ Innlent Orðrómar valda ugg og ótta í Mílanó: „Það eru allir frekar hræddir“ Erlent Brikk lokað í óákveðinn tíma Innlent Verðlag og óvissa leiða til óeirða í Evrópu Erlent Geðrofslyf leysa hefðbundin svefnlyf af hólmi Innlent Vilja 125 milljónir til að halda flugeldasölunni gangandi Innlent Beit mann í geirvörtuna og réðst á systur hans Innlent „Það er sitthvað til í því sem hann er að segja“ Innlent Hnuplaði úr verslunum fyrir á fjórðu milljón króna Innlent Tekur sæti Maríu sem er í fríi í Víetnam Innlent Fleiri fréttir Ekki tilraun til manndráps að taka sambýliskonuna kverkataki Dæmdir morðingjar gætu fengið að annast fatlað fólk „Það er sitthvað til í því sem hann er að segja“ Sakar Ölmu um að hafna Litla spítalanum fyrir fram Skandall að menn afpláni ekki í fangelsi vegna plássleysis Stefna á að hefja leit í nóvember Vilja 125 milljónir til að halda flugeldasölunni gangandi Bein útsending: Fyrsta skóflustunga að Stóra-Hrauni Dómurinn feli í sér tilmæli til þingsins Hnuplaði úr verslunum fyrir á fjórðu milljón króna Komi ekki til greina að hætta við talnakvarðann Kallað eftir rannsóknum vegna geðrofslyfs og áskorun til ráðherra Bæjarstjóri Ölfuss segir múslima „valda skaða“ Endurmeta fyrirkomulag RS-bólusetninga næstu árin Beit mann í geirvörtuna og réðst á systur hans Tekur sæti Maríu sem er í fríi í Víetnam Geðrofslyf leysa hefðbundin svefnlyf af hólmi Brikk lokað í óákveðinn tíma Skakkur á rafskútu 20,4 milljarðar til Úkraínu og aukinn stuðningur við Palestínu Vill prófa sjálfkeyrandi bíla í Eyjum Sveitarfélagi ekki skylt að smala ágangsfé úr skógræktarlandi Eldur kom upp í verslun í Hafnarfirði Fyrrum Sósíalistar stýra Ungum vinstri grænum „Leiðinlegt þegar svona kemur upp og Ísland.is verður fyrir höggi“ Hafi íhugað að gefast upp síðustu vikur Ísaksskóli eignast Ísaksskóla Inga um ótta kennara: „Staðan er grafalvarleg“ Jarðskjálftinn 5,2 að stærð Saka Ingu um skæting og helberan dónaskap Sjá meira
Fékk samviskubit eftir mannskæðasta flugslys íslenskrar flugsögu „Svo byrjum við að heyra högg. Púmm, púmm, púmm. Ég fer að hugsa: Það er eitthvað að, segir Oddný Björgólfsdóttir, fyrrum Loftleiðaflugfreyja. Oddný var ein af þeim 79 sem komust lífs af þegar Leifur Eiríksson, DC-8 þota Flugleiða, fórst í aðflugi við Katunayake-flugvöll í Kólombó á Sri Lanka. Oddný var í þrjár vikur á sjúkrahúsi áður en hún flaug heim til Íslands þar sem við tók löng endurhæfing. 7. febrúar 2024 07:00
Vilja reisa minnisvarða um þá sem fórust á Sri Lanka 35 ár eru liðin síðan Leifur Eiríksson, þota Flugleiða, brotlenti í aðflugi á Srí Lanka. 183 fórust í slysinu, þar af átta Íslendingar. Flugstjórinn Harald Snæhólm er einn þeirra fimm Íslendinga sem lifðu slysið af. 16. nóvember 2013 12:00
35 ár liðin frá mannskæðasta flugslysi íslenskrar flugsögu Leifur Eiríksson, þota Flugleiða, fórst þann 15. nóvember 1978 í aðflugi á Sri Lanka. 183 létu lífið, þar af átta íslenskir starfsmenn Flugleiða. 15. nóvember 2013 06:45