Reykjavík er okkar allra Hlédís Maren Guðmundsdóttir skrifar 7. febrúar 2026 11:02 Kæru vinir og Reykvíkingar, Undanfarna mánuði hef ég verið orðuð við framboð Miðflokksins í Reykjavík og það ætti því að koma fáum á óvart að ég tilkynni loksins framboð mitt. Reykjavík er frábær borg en þó eru aðkallandi verkefni mörg. Helstu atriðin eru húsnæðismál, rekstrarhagræðing, skóla- og leikskólamál og samgöngumál. Rauði þráðurinn í öllum þeim vandamálum sem við stöndum frammi fyrir eru hugmyndafræðilegar kreddur sem hafa borið heilbrigða skynsemi ofurliði. Þessu verðum við að vinda ofan af til að endurheimta kerfi sem eiga að þjóna almenningi. Menntamálin eru aðkallandi. Endurreisum samræmd próf og tryggjum heiðarlegt og sanngjarnt einkunnakerfi sem foreldrar skilja. Tryggjum nauðsynlegar umbætur á skóla án aðgreiningar svo skólakerfið uppfylli lögbundna skyldu sína til að veita öllum börnum viðeigandi menntun sem hæfir sérstökum hæfileikum og þörfum þeirra. En stöðvum ekki þar. Göngum skrefinu lengra og innleiðum framfarastefnu í grunnskóla sem nærir persónubundinn metnað og afreksmennsku. Borgin þarf að sýna fjárhagslega ráðdeild; forgangsraða lögbundnum verkefnum og láta af gæluverkefnum sem enginn bað um. Við getum reist góða leikskóla og viðhaldið þeim án þess að kosta til milljörðum. Það er ekkert því til fyrirstöðu að staðla byggingarteikningar og byggja það sem við vitum að virkar. Fjármagn á að nýtast í þágu borgarbúa – ekki öfugt. Húsnæðismál eru á oddinum. Við verðum að tryggja aukið framboð með því að byggja meira og byggja betur. Hættum lóðabraski. Hættum að gefa lóðir á gjafvirði aðilum sem mega hagnast á húsnæði sem aldrei var byggt. Stefna um hagkvæmt húsnæði verður að lúta heilbrigðri skynsemi. Tilgangurinn má ekki helga meðalið – sérstaklega ekki þegar meðalið er lyfleysa. Þétting byggðar mun aldrei virka ef byggðin er ljót. Við eigum ekki að sætta okkur við niðurdrepandi borgarmynd; minnisvarða alls þess versta sem módernisminn hefur upp á að bjóða. Reykvíkingar eiga skilið fallega og fjölbreytta byggð. Lágreistar byggingar sem hleypa ljósinu inn. Húsnæði sem hentar raunverulegum þörfum og lífsmarkmiðum fólks. Reisum byggingar sem sómi er af og sem sæma borginni. Rannsóknir sýna það sama; borgarlíf þrífst best innan um klassískar byggingar og í grónum hverfum sem myndast í kringum fólk en ekki öfugt. Endurreisn klassískrar byggingarstefnu er víða hafin og við getum tileinkað okkur hana í Reykjavík. Framundan eru mikilvægar kosningar sem munu skipta sköpum fyrir borgarbúa. Það er til mikils að vinna í borginni og ég býð fram krafta mína í þágu þess mikilvæga verkefnis. Ég hlakka til að taka þátt í öflugu starfi flokksins og móta stefnu hans í borginni. Höfundur er félagsfræðingur. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Skoðun: Sveitarstjórnarkosningar 2026 Miðflokkurinn Hlédís Maren Guðmundsdóttir Mest lesið Hver á arfinn? Gunnar Ármannsson Skoðun Í hvaða vitleysu erum við stödd? Ragnheiður Stephensen Skoðun Skuggamansal á Íslandi Sævar Þór Jónsson Skoðun Grateful Dead á Sæbrautinni Júlíus Valsson Skoðun Landsleikar RÚV! Sigurlín Margrét Sigurðardóttir Skoðun Skattlagning til velsældar Hannes Lúðvíksson Skoðun Baráttan er ekki búin Mordekaí Elí Esrason Skoðun Við erum ekki jafn ömurleg og við höldum Þorsteinn Tjörvi Sigurðsson Skoðun Til hamingju Reykjanesbær með leikskólana okkar Guðný Birna Guðmundsdóttir Skoðun Er Þórarinn Tyrfings nýja framtíð Vogs? Bergþóra Haralds Eiðsdóttir Skoðun Skoðun Skoðun Hvar eru þingmenn NV-kjördæmis? Sigurður Páll Jónsson skrifar Skoðun Noregur styrkir EES – Ísland verður að fylgja Rögnvaldur Guðmundsson skrifar Skoðun Landsleikar RÚV! Sigurlín Margrét Sigurðardóttir skrifar Skoðun Við erum ekki jafn ömurleg og við höldum Þorsteinn Tjörvi Sigurðsson skrifar Skoðun Bjórinn sem slapp við suðurferðina Elís Pétur Elísson skrifar Skoðun Í hvaða vitleysu erum við stödd? Ragnheiður Stephensen skrifar Skoðun Skattlagning til velsældar Hannes Lúðvíksson skrifar Skoðun Baráttan er ekki búin Mordekaí Elí Esrason skrifar Skoðun Hver á arfinn? Gunnar Ármannsson skrifar Skoðun Að tala um dauðann er að tala um lífið Ingrid Kuhlman skrifar Skoðun Til hamingju Reykjanesbær með leikskólana okkar Guðný Birna Guðmundsdóttir skrifar Skoðun Skuggamansal á Íslandi Sævar Þór Jónsson skrifar Skoðun Grateful Dead á Sæbrautinni Júlíus Valsson skrifar Skoðun Þjóðarsjúkrahúsið seinkar Sigurður Sigurðsson skrifar Skoðun Er gervigreindin spegill mannkyns Kristján Logason skrifar Skoðun Er Þórarinn Tyrfings nýja framtíð Vogs? Bergþóra Haralds Eiðsdóttir skrifar Skoðun Tólf ára ákvað ég að gera bíó Arnar Benjamín Kristjánsson skrifar Skoðun Hvað segja gögnin í raun um ásakanir á hendur séra Friðriki Theódór S. Halldórsson skrifar Skoðun Það er sárt að tapa kosningum Heimir Már Pétursson skrifar Skoðun Er enn þess virði að leggja á sig langt háskólanám? Gunnar Alexander Ólafsson skrifar Skoðun Engin fjölskylda á að þurfa að standa ein Eydís Ásbjörnsdóttir skrifar Skoðun Þegar reglurnar gilda ekki jafnt Ágúst Karlsson skrifar Skoðun Utanríkisstefna án ábyrgðar? Erna Bjarnadóttir skrifar Skoðun Heiður hússins: Um kynferðisofbeldi í nánum samböndum Hrafnhildur Kjerúlf Sigmarsdóttir skrifar Skoðun PISA-skellur en hvað svo? Inga Sæland skrifar Skoðun Hver verndar velferð barna þegar náttúran blandar kynjunum? Jón Þór Ólafsson skrifar Skoðun Einhliða bergmálshellir og heimildir sem hrynja Lilja Benatov Hjartar skrifar Skoðun KEMUR TÓLFAN? Hilmar Jökull Stefánsson skrifar Skoðun Ábyrgðinni má ekki útvista til tækninnar Karen Ósk Nielsen Björnsdóttir skrifar Skoðun Gervigreindin kaupir ekki það sem hún skilur ekki Jens Gunnarsson skrifar Sjá meira
Skoðun Heiður hússins: Um kynferðisofbeldi í nánum samböndum Hrafnhildur Kjerúlf Sigmarsdóttir skrifar