Er hagstætt að taka bílalán fyrir rafmagnsbíl? Björn Berg Gunnarsson skrifar 10. febrúar 2026 07:02 Björn Berg Gunnarsson svarar lesendum Vísis aðra hverja viku. Hægt er að senda honum spurningu í spurningaforminu hér fyrir neðan. Vísir/Vilhelm 30 ára karlmaður spyr: „Getur það verið „hagstætt“ að taka bílalán fyrir rafmagnsbíl?“ Þetta er með erfiðari spurningum að svara, en við getum þó velt henni fyrir okkur. Rafmagnsbílum fylgja óneitanlega kostir, sem suma má meta til fjár en aðra ekki. Með heimahleðslu verður óþarfi að renna í hlað á bensínstöð og með því sparast bæði tími og pylsukostnaður. Þeim fylgir enginn útblástur og þjóðhagslegur ávinningur getur verið verulegur, þar sem um innlendan orkugjafa er að ræða en ekki innflutta olíu eða bensín. Björn Berg Gunnarsson fjármálaráðgjafi svarar spurningum frá lesendum Vísis um allt sem tengjast fjármálum, fjárfestingum og öðru. Sendu honum spurningu hér fyrir neðan. Er bíllinn ódýrari? Rekstur rafmagnsbíls og reglulegt viðhald getur verið ódýrari í dag vegna færri íhluta og lægra orkuverðs en viðgerðir geta þó verið mjög kostnaðarsamar, t.d. þegar skipta þarf um rafhlöðu. Eins og fram kemur í samantekt Félags íslenskra bifreiðaeigenda er ekki hægt að reikna með því að rafmagnsbíll muni endilega reynast ódýrari en aðrir bílar, nema mögulega ef litið er til afslátta af sköttum. Slíkum afsláttum og sérreglum hefur verið beitt til að hvetja Íslendinga til kaupa á rafmagnsbílum. Hins vegar sýna dæmin okkur að sköttum og ýmissi gjaldheimtu er breytt mjög ört. Í raun er því engin leið að átta sig á mögulegum kostnaði við rafmagnsbíla á næsta ári hvað þá þegar endurnýja þarf bílinn eftir nokkur ár. Kílómetragjald, tollar, vörugjöld, bifreiðagjöld, virðisaukaskattur, skráningargjöld, tryggingar, veggjöld og fleiri skattar eru nýtt til tekjuöflunar og áhuginn á slíkri öflun eykst sífellt. En hvað með afföll af verði bílsins? Nýrri tækni fylgir oft að endursöluverð getur lækkað ansi hratt. Ný og fín sýndarveruleikagleraugu falla sem dæmi hratt í verði þessa dagana, þar sem mun betri gleraugu eru sett á markað ár hvert. Þetta er ákveðinn áhættuþáttur þegar keyptur er rafmagnsbíll, en mikill munur getur þar verið milli kynslóða. Drægnin getur aukist verulega, sem og hraði hleðslu, hugbúnaður og orkunýting, svo eitthvað sé nefnt, auk auðvitað þróunar sjálfstýringar. Það gæti því verið að svarið við spurningu þinni breytist eftir því hvort þú sért að velta fyrir þér kaupum á nýjum eða notuðum rafmagnsbíl og hvenær þú hyggur á kaupin. Að taka bílalán Ég nefndi í upphafi að erfitt geti reynst að svara spurningunni þinni en almennt getum við þó sagt að bílalán séu með því versta sem blanda má inn í heimilisreksturinn. Um er að ræða dýr lán, en mér sýnist vextir vera á bilinu 9,15% - 11,15% í dag og er þá ekki talið lántökugjald upp á tugi þúsunda, þinglýsingargjald og greiðslugjald. Þar að auki er verið að steypa sér í skuldir fyrir eign sem getur vart annað en fallið í verði á ógnarhraða. Bílalán valda oft verulegum skaða á heimilisbókhaldi hér á landi, auka áhættu og draga úr getu fólks til að takast á við sveiflur eða bæta fjárhag sinn. Því er mitt almenna svar við spurningu þinni þvert nei. Nei, alls ekki. Ekki taka lán fyrir bíl, hvort sem hann er rafmagnsbíll, bensínbíll, gulur bíll eða fljúgandi. Haltu þig frá bílalánum eins og þú frekast getur því það er ekkert hagstætt við þau. Hins vegar skil ég þig þannig að þú sért að velta fyrir þér hvort réttlæta mætti að kaupa dýrari bíl en ella, vegna þess að hann er knúinn af rafmagni. Það heyri ég oft og er þá vísað í lægri rekstrarkostnað og ívilnanir. Það þykir mér áhugaverð hugleiðing og um að gera að stilla upp sviðsmyndum til að freista þess að sjá mögulegt hagræði. En ekki gera það með bílaláni. Rafmagnsbílarnir eru ekki að fara neitt. Ef þig langar í slíkan bíl og getur ekki staðgreitt hann í dag skaltu láta þig hafa það að vera á ódýrari bíl á meðan þú leggur fyrir. Þá kaupir þú þann sem þér hentar og getur strax byrjað að spara fyrir þeim næsta, í stað þess að þjónusta himinháa greiðslubyrði í hverjum mánuði. Þannig getur þú haft það betra fjárhagslega það sem eftir er. Ef þú ferð að sakna bílalánsins er ég viss um að það bíður með útbreiddan faðminn. Fjármálin með Birni Berg Fjármál heimilisins Bílar Lánamál Vistvænir bílar Mest lesið „Það eru engin fórnarlömb hér“ Viðskipti innlent Hækka stýrivexti Viðskipti innlent „Bull og vitleysa“ að hækkunin bíti ekki á verðtryggð lán Viðskipti innlent Þessir voru tekjuhæstu læknarnir og tannlæknarnir í fyrra Viðskipti innlent „Þetta er sagt af mikilli virðingu“ Viðskipti innlent Forstjórarnir sem möluðu gull í fyrra Viðskipti innlent Bein útsending: Opinn fundur um samspil stýrivaxta og verðbólgu Viðskipti innlent Indó hækkar vexti vegna stýrivaxtahækkunar Viðskipti innlent Elfa Ýr lætur af störfum hjá Fjölmiðlanefnd Viðskipti innlent Vaxtahækkun sé röng og illa tímasett Viðskipti innlent Fleiri fréttir Vaxtahækkun sé röng og illa tímasett Indó hækkar vexti vegna stýrivaxtahækkunar „Þetta er sagt af mikilli virðingu“ „Bull og vitleysa“ að hækkunin bíti ekki á verðtryggð lán Bein útsending: Opinn fundur um samspil stýrivaxta og verðbólgu „Það eru engin fórnarlömb hér“ Bein útsending: Rökstyðja stýrivaxtahækkun Hækka stýrivexti Elfa Ýr lætur af störfum hjá Fjölmiðlanefnd Þessir voru tekjuhæstu læknarnir og tannlæknarnir í fyrra Benedikt langlaunahæsti bankastjórinn Fleiri en markaðurinn leggja við hlustir Forstjórarnir sem möluðu gull í fyrra Árni skattakóngur annað árið í röð Sigurður Arnar nýr framkvæmdastjóri hjá Íslandsbanka Upptaka evru gæti dregið úr efnahagssveiflum á Íslandi Bryndís Ósk nýr framkvæmdastjóri Landssambands smábátaeigenda María Klara til Athygli Guðmundur Fertram í nýtt hlutverk hjá Coloplast Flestum líst illa á boðaða hækkun bankaskatts Þorvaldur ráðinn framkvæmdastjóri Matreiðslumeistarar frá Hilton Nordica til Matarstundar Hildur og Jóhann Valur ný í framkvæmdastjórn Bláa lónsins Reynslan sýnt að neytendur séu ekki tilbúnir Auglýsingar FM95BLÖ kostuðu Sýn tvær milljónir Seðlabankinn ætti að halda stýrivöxtum óbreyttum „Hversu langt eiga þau að keyra til að sækja póstinn sinn?“ „Biðin er dýrust“ Fjórðungi minni hagnaður hjá Kviku Spá mestu verðbólgu síðustu tveggja ára Sjá meira
Björn Berg Gunnarsson fjármálaráðgjafi svarar spurningum frá lesendum Vísis um allt sem tengjast fjármálum, fjárfestingum og öðru. Sendu honum spurningu hér fyrir neðan.
Fjármálin með Birni Berg Fjármál heimilisins Bílar Lánamál Vistvænir bílar Mest lesið „Það eru engin fórnarlömb hér“ Viðskipti innlent Hækka stýrivexti Viðskipti innlent „Bull og vitleysa“ að hækkunin bíti ekki á verðtryggð lán Viðskipti innlent Þessir voru tekjuhæstu læknarnir og tannlæknarnir í fyrra Viðskipti innlent „Þetta er sagt af mikilli virðingu“ Viðskipti innlent Forstjórarnir sem möluðu gull í fyrra Viðskipti innlent Bein útsending: Opinn fundur um samspil stýrivaxta og verðbólgu Viðskipti innlent Indó hækkar vexti vegna stýrivaxtahækkunar Viðskipti innlent Elfa Ýr lætur af störfum hjá Fjölmiðlanefnd Viðskipti innlent Vaxtahækkun sé röng og illa tímasett Viðskipti innlent Fleiri fréttir Vaxtahækkun sé röng og illa tímasett Indó hækkar vexti vegna stýrivaxtahækkunar „Þetta er sagt af mikilli virðingu“ „Bull og vitleysa“ að hækkunin bíti ekki á verðtryggð lán Bein útsending: Opinn fundur um samspil stýrivaxta og verðbólgu „Það eru engin fórnarlömb hér“ Bein útsending: Rökstyðja stýrivaxtahækkun Hækka stýrivexti Elfa Ýr lætur af störfum hjá Fjölmiðlanefnd Þessir voru tekjuhæstu læknarnir og tannlæknarnir í fyrra Benedikt langlaunahæsti bankastjórinn Fleiri en markaðurinn leggja við hlustir Forstjórarnir sem möluðu gull í fyrra Árni skattakóngur annað árið í röð Sigurður Arnar nýr framkvæmdastjóri hjá Íslandsbanka Upptaka evru gæti dregið úr efnahagssveiflum á Íslandi Bryndís Ósk nýr framkvæmdastjóri Landssambands smábátaeigenda María Klara til Athygli Guðmundur Fertram í nýtt hlutverk hjá Coloplast Flestum líst illa á boðaða hækkun bankaskatts Þorvaldur ráðinn framkvæmdastjóri Matreiðslumeistarar frá Hilton Nordica til Matarstundar Hildur og Jóhann Valur ný í framkvæmdastjórn Bláa lónsins Reynslan sýnt að neytendur séu ekki tilbúnir Auglýsingar FM95BLÖ kostuðu Sýn tvær milljónir Seðlabankinn ætti að halda stýrivöxtum óbreyttum „Hversu langt eiga þau að keyra til að sækja póstinn sinn?“ „Biðin er dýrust“ Fjórðungi minni hagnaður hjá Kviku Spá mestu verðbólgu síðustu tveggja ára Sjá meira