Netmiðlar myndu flestir liggja niðri á Íslandi Oddur Ævar Gunnarsson skrifar 10. febrúar 2026 10:05 Tryggvi segir fjölmiðla flesta myndu liggja niðri. Flestir íslenskir netmiðlar myndu liggja niðri ef sambandið myndi rofna við útlönd, en þó ekki Vísir að sögn sérfræðings. Hann segir það koma mörgum á óvart hve bjargarlausir Íslendingar verða þegar netsamband rofnar með þessum hætti, málið snúist um stafrænt fullveldi.
Tryggvi Farestveit framkvæmdastjóri upplýsingafyrirtækisins Photon ræddi málið í Reykjavík síðdegis á Bylgjunni. Photon bauð upp á hermi á UT messunni í síðustu viku þar sem mátti upplifa nokkrar sviðsmyndir þegar Ísland missir netsamband við útlönd. Nokkrar ástæður geta orðið til þess, meðal annars rof á sæstrengjum eða netárásir. Kom mörgum á óvart „Við vorum með bás á UT messunni þar sem við buðum upp á að fá að sjá þetta bara, hvernig er að upplifa þetta og það er óhætt að segja það að það kom mörgum á óvart hversu stórt vandamálið er,“ segir Tryggvi. Hann segir að myndi netsamband rofna yrðu Íslendingar að grípa til eldri samskiptamáta líkt og almenna símkerfisins sem að hans sögn er vel tilbúið í þetta. Annað eigi við um hið opinbera og heilbrigðisþjónustu. Þá verði erfitt að sækja fréttir. „Helstu fjölmiðlar, fyrir utan Vísir.is, þeir munu ekki virka. Vísir virkar en ég get hinsvegar ekki farið og hlustað á Bylgjuna í beinni, ég kemst inn á Vísi.is en þegar ég fer og hlusta í beinni er ég sendur á Amazon, þannig ég stoppa þar. Ég eins og margir, við hlustum frekar í gegnum netið.“ En Ríkisútvarpið sem á að sinna almannavarnarhlutverki? „Mér skilst nú að þeirra hlutverk sé fyrst og fremst að tryggja það að FM útsendingar séu í lagi en nei Rúv.is mun ekki virka.“ Hvernig stendur á þessu? „Rótin er kannski sú að í gegnum árin höfum við meira verið að nýtast við erlendar þjónustur, sem eru mjög skalanlegar og mikið af þeim sem vinna við að koma upp vefum og kerfum kunna betur að gera þetta erlendis en hér heima. Þetta mætti segja að sé ástæðan að tækniþróun er bara hröð og við hér á Íslandi höfum ekki verið að standa okkur í því að bjóða upp á sambærilegar þjónustur.“ Tryggvi segir mjög fáa stóra aðila bjóða upp á vefsíðugerð. Þetta hafi sést þegar vefþjónustuaðilinn Cloudflare bilaði í nóvember, þá hafi vefur Alþingis dottið út sem og vefur Ríkisútvarpsins. Tryggvi segir málið snúast um stafrænt fullveldi. „Ég held það sé mjög mikilvægt að við Íslendingar séum tilbúnir til að geta tryggt að internetið virki ef við lendum í einhverjum vandræðum. Vandamálin eru ekki bara þau að sæstrengurinn fari út, það geta líka orðið þjónustutruflanir. Þær eru sjaldgæfar hér á Íslandi, við búum við það að eiga stöðugt og gott og traust internet en við ættum aldrei að ganga út frá því að það sé alltaf þannig.“
Netöryggi Fjölmiðlar Reykjavík síðdegis Mest lesið Snarpur skjálfti fannst á höfuðborgarsvæðinu Innlent Flugmaður hjá Icelandair opnar bókhaldið Innlent Nafn mannsins sem lést á Hólmsheiði Innlent Segir að honum hafi gengið illa að sofna vegna hræðslu Innlent Vaknaði við hávaða og raddir úr næsta herbergi Innlent Tvö á slysadeild eftir árás lausra hunda Innlent Myndataka í lágloftunum vekur athygli Innlent „Andrúmsloftið er þungt og það eru allir slegnir“ Innlent „Það þarf kjark til að viðurkenna mistök“ Innlent Mótmælendur trufluðu þingfund Innlent Fleiri fréttir Stærsti skjálfti á svæðinu síðan 2022 Mótmælendur trufluðu þingfund Má heita Freyjó og Sifjar en ekki Mikhael „Það þarf kjark til að viðurkenna mistök“ Myndataka í lágloftunum vekur athygli Grunaður barnaníðingur í varðhaldi á grundvelli almannahagsmuna Syngjandi dúx Snarpur skjálfti fannst á höfuðborgarsvæðinu Vaknaði við hávaða og raddir úr næsta herbergi Segir Ragnar Þór afhjúpa vanþekkingu á skólastarfi Flugmaður hjá Icelandair opnar bókhaldið „Andrúmsloftið er þungt og það eru allir slegnir“ Andlát á Hólmsheiði og skammtímasamningur á borðinu í flugdeilunni Nafn mannsins sem lést á Hólmsheiði Á fimmta hundrað skjálftar mælst í hrinunni Segir að honum hafi gengið illa að sofna vegna hræðslu Tveggja bíla árekstur á Suðurlandsbraut Tvö á slysadeild eftir árás lausra hunda Engin Icelandair-þota sást á flugsýningunni „Það er enginn réttindagæslumaður starfandi á landsbyggðinni“ Senda loftbelgi á loft á hálftíma fresti á meðan sólmyrkvinn stendur yfir Undirbúa íbúafund þar sem farið verði yfir stöðu mála Líkamsárás á veitingastað í miðborginni og umfangsmikill þjófnaður Skjálftahrina á Hellisheiði hófst í morgun Fengu innblástur úr Vesturbænum þar sem börn mótmæltu Sjálfsvíg í fangelsum of algeng Afsögn enn ódagsett Er tilbúin að blása í herlúðra í haust Dúx í MH og talar fjögur tungumál Loka skrifstofum vegna óvissu um framtíð heilbrigðiseftirlits Sjá meira