Stöðluð meðalmennska og einkunnir án aðgreiningar Hlédís Maren Guðmundsdóttir skrifar 10. febrúar 2026 15:01 Fjarstæðukennt fyrirkomulag er orðin viðtekin venja við námsmat í íslenskum grunnskólum. Nánast allir nemendur fá B eða samsvarandi frumlit í einkunn. Merkingarlausir kvarðar taka við af öðrum merkingarlausum kvörðum. Flestum gengur vel, nema hinir sem þó eru á góðri leið. Nemendur, foreldrar og jafnvel kennarar sjálfir botna hvorki upp né niður. Enginn veit hve vel þeim gengur eða hvað vantar upp á. Svo birtast PISA-kannanir og leiða hina raunverulegu stöðu í ljós. Ísland mælist langt undir öllum öðrum Norður-Evrópulöndum í öllum greinum. Tölfræðin sýnir hvaða afleiðingar hugmyndafræðileg tilraunastarfsemi hefur haft í för með sér. Staðan hefur farið ört versnandi frá því að kerfið lagði á flótta undan samræmdum prófum og tók upp sífellt óljósara námsmat. Hugarfar sjálfsblekkingar Í skólastofum víða um borg má finna veggspjöld með mynd af nemanda sem hugsar „ég er svo lélegur í stærðfræði“. Samkvæmt veggspjaldinu er þessi nemandi með rangt hugarfar og á ekki að hugsa þessa hugsun. Hann á í staðinn að tileinka sér „hugarfar vaxtar“ og hugsa í frösum eins og „mistök hjálpa mér að læra“. Hinn mælanlegi veruleiki er að kerfið hefur brugðist íslenskum nemendum í kennslu á námsefninu en reynir að vega það upp með því að koma á réttu „hugarfari“, eins konar draumaheimi þar sem enginn er lélegur í neinu. Hið óljósa námsmat virðist þjóna sama görótta tilgangi – að breiða sem mest yfir að árangurinn stenst engan samanburð. Markmiðið á að sjálfsögðu að vera vöxtur í getu nemenda en erfitt er að finna þann vöxt í einkunnum sem aldrei sýna fram á persónulegar framfarir. Ef niðurstaðan er nánast alltaf „gengur vel“ eða B hvort sem nemandinn lagði sig lítið eða mikið fram er erfitt að finna hvatann til framfara. Hvar er hugarfar vaxtar í slíku kerfi? Fyrirkomulagið verður óljósara eftir því sem maður kannar það betur Foreldrar sem ég ræði við lýsa sömu upplifun. Þeir botna hvorki upp né niður í einkunnum barna sinna. Leitarvélar endurspegla þennan veruleika. Auðveldara er að finna skoðanapistla og fréttir um ringlaða foreldra en raunverulegar og skýrandi upplýsingar um einkunnamat nemenda. Það mætti halda að innri vefir grunnskóla byðu upp á nánari skýringar en raunin er önnur. Ég hef undir höndum mat á „lykilhæfni“ eins grunnskólabarns. Þar eru talin öll fög sem barnið þreytir og við hverja línu má lesa þetta mat: „gengur vel“. Hvað foreldrar eiga að gera við þær upplýsingar er öllu óljósara. Hvað er það sem gengur vel og hvernig mætti barninu ganga betur? Það eru spurningar sem allir foreldrar sem bera umhyggju fyrir menntun barna sinna spyrja. Einhver gæti haldið að aðalnámskrá grunnskóla svari spurningum um það hvað lykilhæfni sé en þar er fyrst og fremst að finna óljósar bollaleggingar og hugmyndafræðilega froðu. Við lok 4. bekkjar á nemandi að geta „sett sér viðráðanleg markmið og glaðst þegar þeim er náð“. Við lok 7. bekkjar á nemandi að hafa „tileinkað sér hugarfar vaxtar“. Við lok 10. bekkjar á nemandi að geta „tekið ákvarðanir um eigið nám og hagsmuni með lýðræðislegum hætti“. Hvernig eiga kennarar að mæla gleðina í 4. bekkingum, hugarfarið í 7. bekkingum og lýðræðið í 10. bekkingum? Ef þetta eru spurningarnar er skiljanlegt að svarið verði bara „gengur vel“. Sjálfsvörn hins þrotaða kerfis Þegar gagnrýni heyrist rís kerfið á afturlappirnar og vísar til þeirra fáu þátta sem eiga að geta fegrað stöðuna. Börnunum líður svo vel, þau eru full sjálfstrausts, segja verjendur þess, eins og íslensk börn og unglingar séu ekki að slá hvert heimsmetið á fætur öðru í geðlyfjanotkun. Engum tekst að útskýra hvaða mögulegu jákvæðu áhrif gætu falist í vaxandi ólæsi og versnandi stærðfræðiskilningi. Líkt og það sé í fínu lagi að þjóðin dragist aftur úr á þeim grundvallaratriðum sem gera áframhaldandi velmegun okkar að fræðilegum möguleika. Ef skólakerfinu verður áfram stjórnað af hugmyndafræðilegum nátttröllum munum við horfa á börn vaxa úr grasi án sömu möguleika og fyrri kynslóðir hafa tekið sem gefnum hlut. Börn sem munu ef til vill aldrei geta fullnustað mannlega möguleika sína á sviðum sem krefjast akademískrar sérhæfingar. Börn sem hafa svo takmarkaðan orðaforða að þau geta ekki átt í merkingarbærum samskiptum við eldra fólk eða notið sameiginlegs þjóðararfs bókmennta okkar. Einkunnir án aðgreiningar Það er erfitt að botna í núverandi matskvörðum, en ljóst er að þeir eru bæði of óljósir og of víðtækir til þess að gagn geti verið af þeim. Gamli einkunnakvarðinn, sem enn er viðmiðið í framhaldsskólum og háskólum, er ekki fullkominn en hann er skýr. Sá sem fær 8,8 á prófi og sá sem fær 9,2 enda báðir með 9 í einkunn. Þeir stóðu sig báðir vel og fengu góða einkunn, en allir sem hafa verið röngum megin við slíka námundun muna eftir vonbrigðunum. Það er ósanngjarnt að námunda í burtu mannlegan margbreytileika en upp að vissu marki er það viðunandi einföldun. Þegar námundun brýtur undir sig stærra róf fer hún hins vegar úr því að vera ósanngjörn í að vera of ónákvæm til að teljast gagnleg – eins og málband sem sýnir bara hálfan og heilan metra. Þegar allir eru meira eða minna felldir undir sömu einkunn óháð persónubundinni frammistöðu verður mælingin merkingarlaus. Ef afrek eru ósýnileg verður afreksmennska tilgangslaus. Ekkert verður eftir nema stöðluð meðalmennska. Höfundur er frambjóðandi Miðflokksins í Reykjavík og félagsfræðingur. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Skoðun: Sveitarstjórnarkosningar 2026 Hlédís Maren Guðmundsdóttir Mest lesið Getum við gert betur fyrir íslensk heimili? Berglind Guðmundsdóttir Skoðun Ofveiðin í ESB fyrir 500 árum Sigurjón Þórðarson Skoðun Bless tollfrjálsu Temu, Shein og Alibaba Jón Pétur Zimsen Skoðun Óafsakanlegt, en ekki óleysanlegt Birgir Hrafn Birgisson Skoðun FIFA skapar nýja skúrka Bragi V. Bergmann Skoðun Tæknin kemur hratt - en ávinningurinn ekki sjálfkrafa Gísli Rafn Ólafsson Skoðun Nærri þrír vinnumánuðir á ári – hinn ósýnilegi kostnaður endómetríósu Jón Ívar Einarsson Skoðun Temu-pakkar JP Zimsen eða alvöru hagsmunir Íslands Sveinn Atli Gunnarsson Skoðun Vangaveltur Hörður Torfason Skoðun Þegar stórveldin gera það sem þeim sýnist er ESB okkar besti kostur Eiríkur Ragnarsson Skoðun Skoðun Skoðun Hvalfjarðarsveit kallar eftir samtali við Vegagerðina um umferðaröryggi Björn Bjarki Þorsteinsson skrifar Skoðun Tæknin kemur hratt - en ávinningurinn ekki sjálfkrafa Gísli Rafn Ólafsson skrifar Skoðun Óafsakanlegt, en ekki óleysanlegt Birgir Hrafn Birgisson skrifar Skoðun Ofveiðin í ESB fyrir 500 árum Sigurjón Þórðarson skrifar Skoðun Getum við gert betur fyrir íslensk heimili? Berglind Guðmundsdóttir skrifar Skoðun FIFA skapar nýja skúrka Bragi V. Bergmann skrifar Skoðun Vangaveltur Hörður Torfason skrifar Skoðun Þegar stórveldin gera það sem þeim sýnist er ESB okkar besti kostur Eiríkur Ragnarsson skrifar Skoðun Nærri þrír vinnumánuðir á ári – hinn ósýnilegi kostnaður endómetríósu Jón Ívar Einarsson skrifar Skoðun Temu-pakkar JP Zimsen eða alvöru hagsmunir Íslands Sveinn Atli Gunnarsson skrifar Skoðun Bless tollfrjálsu Temu, Shein og Alibaba Jón Pétur Zimsen skrifar Skoðun En stelirðu miklu... Ögmundur Jónasson skrifar Skoðun Menntun fyrir mennsku Fanney Dóróthe Halldórsdóttir skrifar Skoðun Ekki má draga víðtækar ályktanir af veikum gögnum Helga Rósa Másdóttir,Steinunn Þórðadóttir skrifar Skoðun Krónuskatturinn á kynslóðirnar: mesti skattur Íslandssögunnar Baldur Pétursson skrifar Skoðun Það er mér í hag að hinsegin fánar séu sýnilegir Daníel Ágúst Gautason skrifar Skoðun Minnir á kafla úr bók Franz Kafka Sigurður Páll Jónsson skrifar Skoðun Kannski erum við að spyrja rangra spurninga Haukur Logi Jóhannsson skrifar Skoðun „Að deila og drottna“ - hugleiðingar miðaldra konu að kvöldlagi Ingibjörg Einarsdóttir skrifar Skoðun Þegar maður gengur gegn eigin gildum Sigurður Árni Reynisson skrifar Skoðun Er ekki komið gott af því að mæta í sumarfrí eins og sími á 2% rafhlöðu? Ingunn Björk Vilhjálmsdóttir skrifar Skoðun Hvernig fyrirbyggjum við heimilisleysi eftir meðferð vegna vímuefnaröskunar? Erla Björg Sigurðardóttir skrifar Skoðun Dulinn kostnaður við kreditkortið þitt Dagur B. Eggertsson skrifar Skoðun Hljóðlát endalok íslensku vefumsjónarkerfanna Birgir Hrafn Birgisson skrifar Skoðun Það borgar sig að skoða kostina Gunnar Ármannsson skrifar Skoðun Hvað sér unga fólkið sem ég sé ekki? Gunnar Salvarsson skrifar Skoðun Hlutdrægni RÚV í ESB umræðunni Birgir Finnsson skrifar Skoðun Voru lífeyrisréttindi markvisst tekin af opinberum starfsmönnum og var engin leiðrétting launa? Gunnar Alexander Ólafsson,Sveinn Ólafsson skrifar Skoðun Evrópusambandið og fiskveiðar Finnur Torfi Magnússon. skrifar Skoðun Það er alltaf til byssa. Vertu blómið! Guðmunda G. Guðmundsdóttir skrifar Sjá meira
Skoðun Hvalfjarðarsveit kallar eftir samtali við Vegagerðina um umferðaröryggi Björn Bjarki Þorsteinsson skrifar
Skoðun Þegar stórveldin gera það sem þeim sýnist er ESB okkar besti kostur Eiríkur Ragnarsson skrifar
Skoðun Nærri þrír vinnumánuðir á ári – hinn ósýnilegi kostnaður endómetríósu Jón Ívar Einarsson skrifar
Skoðun Ekki má draga víðtækar ályktanir af veikum gögnum Helga Rósa Másdóttir,Steinunn Þórðadóttir skrifar
Skoðun „Að deila og drottna“ - hugleiðingar miðaldra konu að kvöldlagi Ingibjörg Einarsdóttir skrifar
Skoðun Er ekki komið gott af því að mæta í sumarfrí eins og sími á 2% rafhlöðu? Ingunn Björk Vilhjálmsdóttir skrifar
Skoðun Hvernig fyrirbyggjum við heimilisleysi eftir meðferð vegna vímuefnaröskunar? Erla Björg Sigurðardóttir skrifar
Skoðun Voru lífeyrisréttindi markvisst tekin af opinberum starfsmönnum og var engin leiðrétting launa? Gunnar Alexander Ólafsson,Sveinn Ólafsson skrifar