5% af alþingismanni Hjörtur J. Guðmundsson skrifar 11. febrúar 2026 06:31 Væntanlega þarf ekki að fara mörgum orðum um það að stjórnmálaflokkur, sem hefði einungis hálfan þingmann á Alþingi, væri ekki að fara að hafa teljandi áhrif á gang mála þar innanhúss. Hvað þá ef hann hefði aðeins 5% hlutdeild í einum alþingismanni. Möguleikar slíks flokks á áhrifum væru vitanlega litlir sem engir þó vissulega mætti segja að hann ætti sæti við borðið þar sem ákvarðanirnar væru teknar. Þær yrðu hins vegar seint teknar með eiginlegri aðkomu hans. Hér er hins vegar um að ræða raunverulega lýsingu á hlutskipti Íslands ef til inngöngu í Evrópusambandið kæmi. Mælikvarðinn á vægi ríkja við ákvarðanatökur innan sambandsins fer einkum eftir íbúafjölda þeirra. Á þingi Evrópusambandsins fengi Ísland sex þingmenn af vel yfir 700. Sambærilegt við hálfan þingmann á Alþingi. Staðan yrði enn verri í ráðherraráði sambandsins, valdamestu stofnun þess. Þar yrði vægið einungis á við 5% hlutdeild í einum alþingismanni. Mismunurinn á stöðu mála í þingi Evrópusambandsins og ráðherraráðinu skýrist af því að miðað er við ákveðinn lágmarksfjölda fulltrúa í þinginu en að fullu við íbúafjölda í ráðinu. Hins vegar er ljóst að sex þingmenn af vel yfir 700 er dropi í hafið. Ekki sízt þegar aðeins þarf einfaldan meirihluta í þinginu til ákvarðanatöku. Til samanburðar hefur Þýzkaland eitt 90 þingmenn. Þá þarf 17 fámennari ríki sambandsins til þess að hafa sama vægi og Þýzkaland í ráðherraráðinu. Kæmi til inngöngu Íslands í Evrópusambandið færðust flest okkar mál undir yfirstjórn þess. Þar á meðal sjávarútvegs- og orkumál. Möguleikar okkar á að hafa áhrif í þeim efnum færu allajafna fyrst og fremst eftir íbúafjölda landsins. Til að mynda má nálgast reiknivél á vef ráðherráðsins þar sem hægt er að sjá hvernig íbúafjöldi ríkjanna hefur áhrif á vægi þeirra þegar teknar eru ákvarðanir. Við yrðum einfaldlega ekki lengur við stjórnvölinn á okkar eigin málum. Talsmenn inngöngu í Evrópusambandið vilja alls ekki að bent sé á þetta. Þeir vilja þess í stað í mesta lagi tala um lágmarkið sem gildir í þingi sambandsins sem þýði að þýzkur þingmaður hefði mun fleiri íbúa á bak við sig en íslenzkur. Hins vegar skiptir það auðvitað engu þegar vægi Íslands yrði aðeins á við hálfan þingmann á Alþingi. Um þetta yrði síðan ekki samið í umsóknarferli að Evrópusambandinu nema þá að vægi annarra ríkja yrði um leið breytt til samræmis. Höfundur er sagnfræðingur og alþjóðastjórnmálafræðingur (MA í alþjóðasamskiptum með áherzlu á Evrópufræði og öryggis- og varnarmál). Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Hjörtur J. Guðmundsson Mest lesið Hver á arfinn? Gunnar Ármannsson Skoðun Í hvaða vitleysu erum við stödd? Ragnheiður Stephensen Skoðun Skuggamansal á Íslandi Sævar Þór Jónsson Skoðun Landsleikar RÚV! Sigurlín Margrét Sigurðardóttir Skoðun Grateful Dead á Sæbrautinni Júlíus Valsson Skoðun Skattlagning til velsældar Hannes Lúðvíksson Skoðun Baráttan er ekki búin Mordekaí Elí Esrason Skoðun Við erum ekki jafn ömurleg og við höldum Þorsteinn Tjörvi Sigurðsson Skoðun Noregur styrkir EES – Ísland verður að fylgja Rögnvaldur Guðmundsson Skoðun Til hamingju Reykjanesbær með leikskólana okkar Guðný Birna Guðmundsdóttir Skoðun Skoðun Skoðun Opið bréf til Húnboga Þórs Árnasonar Margrét Rut Eddudóttir skrifar Skoðun Hvar eru þingmenn NV-kjördæmis? Sigurður Páll Jónsson skrifar Skoðun Noregur styrkir EES – Ísland verður að fylgja Rögnvaldur Guðmundsson skrifar Skoðun Landsleikar RÚV! Sigurlín Margrét Sigurðardóttir skrifar Skoðun Við erum ekki jafn ömurleg og við höldum Þorsteinn Tjörvi Sigurðsson skrifar Skoðun Bjórinn sem slapp við suðurferðina Elís Pétur Elísson skrifar Skoðun Í hvaða vitleysu erum við stödd? Ragnheiður Stephensen skrifar Skoðun Skattlagning til velsældar Hannes Lúðvíksson skrifar Skoðun Baráttan er ekki búin Mordekaí Elí Esrason skrifar Skoðun Hver á arfinn? Gunnar Ármannsson skrifar Skoðun Að tala um dauðann er að tala um lífið Ingrid Kuhlman skrifar Skoðun Til hamingju Reykjanesbær með leikskólana okkar Guðný Birna Guðmundsdóttir skrifar Skoðun Skuggamansal á Íslandi Sævar Þór Jónsson skrifar Skoðun Grateful Dead á Sæbrautinni Júlíus Valsson skrifar Skoðun Þjóðarsjúkrahúsið seinkar Sigurður Sigurðsson skrifar Skoðun Er gervigreindin spegill mannkyns Kristján Logason skrifar Skoðun Er Þórarinn Tyrfings nýja framtíð Vogs? Bergþóra Haralds Eiðsdóttir skrifar Skoðun Tólf ára ákvað ég að gera bíó Arnar Benjamín Kristjánsson skrifar Skoðun Hvað segja gögnin í raun um ásakanir á hendur séra Friðriki Theódór S. Halldórsson skrifar Skoðun Það er sárt að tapa kosningum Heimir Már Pétursson skrifar Skoðun Er enn þess virði að leggja á sig langt háskólanám? Gunnar Alexander Ólafsson skrifar Skoðun Engin fjölskylda á að þurfa að standa ein Eydís Ásbjörnsdóttir skrifar Skoðun Þegar reglurnar gilda ekki jafnt Ágúst Karlsson skrifar Skoðun Utanríkisstefna án ábyrgðar? Erna Bjarnadóttir skrifar Skoðun Heiður hússins: Um kynferðisofbeldi í nánum samböndum Hrafnhildur Kjerúlf Sigmarsdóttir skrifar Skoðun PISA-skellur en hvað svo? Inga Sæland skrifar Skoðun Hver verndar velferð barna þegar náttúran blandar kynjunum? Jón Þór Ólafsson skrifar Skoðun Einhliða bergmálshellir og heimildir sem hrynja Lilja Benatov Hjartar skrifar Skoðun KEMUR TÓLFAN? Hilmar Jökull Stefánsson skrifar Skoðun Ábyrgðinni má ekki útvista til tækninnar Karen Ósk Nielsen Björnsdóttir skrifar Sjá meira
Skoðun Heiður hússins: Um kynferðisofbeldi í nánum samböndum Hrafnhildur Kjerúlf Sigmarsdóttir skrifar