Hvað þýðir það að vera leiðtogi? Hnikarr Bjarmi Franklínsson skrifar 12. febrúar 2026 08:48 Ég kaus Framsókn í fyrsta skipti í Alþingiskosningunum árið 2021. Það gerði ég vegna þess að ég tók langt og ítarlegt kosningapróf á heimasíðu RÚV og það sagði mér að af öllum þeim frambjóðendum sem tóku prófið hafi ég verið mest sammála oddvita Framsóknar í Reykjavíkurkjördæmi suður, yfir 95% sammála. En þar sem það var mitt kjördæmi þá kom ekki annað til greina en að setja x við Framsókn og Lilju Dögg Alfreðsdóttur. Á árunum sem fylgdu mætti ég á nokkra viðburði hjá ungliðahreyfingu Framsóknar, en ekki með neinum reglubundnum hætti. Það var síðan ekki fyrr en árið 2023 að ég skráði mig í Framsókn og byrjaði að taka virkan þátt í flokksstarfinu og um leið þá var ein manneskja sem gerði það að verkum að ég upplifði mig velkominn og að mér fannst ég tilheyra, en það var hún Lilja. Mér er það enn minnisstætt þegar ég átti mitt fyrsta alvöru samtal við hana, á sambandsþingi ungra Framsóknarmanna í Skagafirði. Þar stóð þessi mikli stjórnmálamaður, sem maður hafði einungis séð í sjónvarpinu og spurði mig út í daginn og veginn. Þetta var ekki þetta klassíska spjall þar sem pólítíkusar eru bara að safna atkvæðum, heldur sýndi hún samtalinu alvölu áhuga og fylgdi því eftir í hvert skipti sem við hittumst. Það hefur reynst mér ómetanlegt að geta leitað til Lilju, hvort sem að það hefur tengst flokksstarfinu, atvinnulífinu, eða einhverju persónulegu. Það er alls ekki sjálfgefið að manneskja með jafn mikla reynslu og þekkingu og Lilja hefur, gefi sér tíma til þess að aðstoða fólk sem er að stíga sín fyrstu skref í nýju umhverfi, en þannig manneskja er Lilja og hefur maður heyrt fjölmargar sögur þar sem fólk hefur sömu upplifun af henni. En Lilja er ekki bara ljúfmenni sem býður fólk velkomið í flokkinn, heldur er hún algjör nagli á sviði stjórnmálanna. Það eru ófá skiptin sem maður hefur setið fyrir framan sjónvarpið og dáðst af henni í viðtalsþáttum. Hún talar ávallt skýrt og af sannfæringu, er afskaplega hnyttin og orðheppin og ég ætla að fullyrða það hér og nú að enginn stjórnmálamaður í dag hefur betra vald á íslenskri tungu. Afrekalisti Lilju er langur og ætla ég mér ekki að fara yfir hann allan, en ég vil samt nefna að það hefur enginn stjórnmálamaður, í seinni tíð, gert meira í þágu íslenskrar tungu og menningar, það er staðreynd, ekki skoðun. Auk þess hefur Lilja ávallt talað fyrir öflugu og skilvirku efnahagslífi, sem er undirstaða hagvaxtar og velferðar samfélagsins og skilar sér beint til heimilanna í landinu. Hún er eina manneskjan sem getur veitt ríkisstjórninni raunverulegt aðhald í efnahags og alþjóðamálum, en fróðari manneskju, í þeim efnum, hef ég ekki hitt. Það eru algjör forréttindi að vera með manneskju eins og Lilju í forystu síns flokks. Hún er gædd öllum þeim eiginleikum sem leiðtoga ber að hafa. Ég mun mæta á flokksþing Framsóknar um helgina og á sunnudaginn mun ég kjósa mína helstu fyrirmynd í stjórnmálum, Lilju Dögg Alfreðsdóttur, sem næsta formann Framsóknar. Höfundur er fjármálaverkfræðingur. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Framsóknarflokkurinn Flokksþing Framsóknar 2026 Mest lesið Hver á arfinn? Gunnar Ármannsson Skoðun Í hvaða vitleysu erum við stödd? Ragnheiður Stephensen Skoðun Skuggamansal á Íslandi Sævar Þór Jónsson Skoðun Grateful Dead á Sæbrautinni Júlíus Valsson Skoðun Skattlagning til velsældar Hannes Lúðvíksson Skoðun Baráttan er ekki búin Mordekaí Elí Esrason Skoðun Til hamingju Reykjanesbær með leikskólana okkar Guðný Birna Guðmundsdóttir Skoðun Er Þórarinn Tyrfings nýja framtíð Vogs? Bergþóra Haralds Eiðsdóttir Skoðun Við erum ekki jafn ömurleg og við höldum Þorsteinn Tjörvi Sigurðsson Skoðun Landsleikar RÚV! Sigurlín Margrét Sigurðardóttir Skoðun Skoðun Skoðun Noregur styrkir EES – Ísland verður að fylgja Rögnvaldur Guðmundsson skrifar Skoðun Landsleikar RÚV! Sigurlín Margrét Sigurðardóttir skrifar Skoðun Við erum ekki jafn ömurleg og við höldum Þorsteinn Tjörvi Sigurðsson skrifar Skoðun Bjórinn sem slapp við suðurferðina Elís Pétur Elísson skrifar Skoðun Í hvaða vitleysu erum við stödd? Ragnheiður Stephensen skrifar Skoðun Skattlagning til velsældar Hannes Lúðvíksson skrifar Skoðun Baráttan er ekki búin Mordekaí Elí Esrason skrifar Skoðun Hver á arfinn? Gunnar Ármannsson skrifar Skoðun Að tala um dauðann er að tala um lífið Ingrid Kuhlman skrifar Skoðun Til hamingju Reykjanesbær með leikskólana okkar Guðný Birna Guðmundsdóttir skrifar Skoðun Skuggamansal á Íslandi Sævar Þór Jónsson skrifar Skoðun Grateful Dead á Sæbrautinni Júlíus Valsson skrifar Skoðun Þjóðarsjúkrahúsið seinkar Sigurður Sigurðsson skrifar Skoðun Er gervigreindin spegill mannkyns Kristján Logason skrifar Skoðun Er Þórarinn Tyrfings nýja framtíð Vogs? Bergþóra Haralds Eiðsdóttir skrifar Skoðun Tólf ára ákvað ég að gera bíó Arnar Benjamín Kristjánsson skrifar Skoðun Hvað segja gögnin í raun um ásakanir á hendur séra Friðriki Theódór S. Halldórsson skrifar Skoðun Það er sárt að tapa kosningum Heimir Már Pétursson skrifar Skoðun Er enn þess virði að leggja á sig langt háskólanám? Gunnar Alexander Ólafsson skrifar Skoðun Engin fjölskylda á að þurfa að standa ein Eydís Ásbjörnsdóttir skrifar Skoðun Þegar reglurnar gilda ekki jafnt Ágúst Karlsson skrifar Skoðun Utanríkisstefna án ábyrgðar? Erna Bjarnadóttir skrifar Skoðun Heiður hússins: Um kynferðisofbeldi í nánum samböndum Hrafnhildur Kjerúlf Sigmarsdóttir skrifar Skoðun PISA-skellur en hvað svo? Inga Sæland skrifar Skoðun Hver verndar velferð barna þegar náttúran blandar kynjunum? Jón Þór Ólafsson skrifar Skoðun Einhliða bergmálshellir og heimildir sem hrynja Lilja Benatov Hjartar skrifar Skoðun KEMUR TÓLFAN? Hilmar Jökull Stefánsson skrifar Skoðun Ábyrgðinni má ekki útvista til tækninnar Karen Ósk Nielsen Björnsdóttir skrifar Skoðun Gervigreindin kaupir ekki það sem hún skilur ekki Jens Gunnarsson skrifar Skoðun Fólkið á bak við öruggt flug Elísabet Heiða Valdemarsdóttir skrifar Sjá meira
Skoðun Heiður hússins: Um kynferðisofbeldi í nánum samböndum Hrafnhildur Kjerúlf Sigmarsdóttir skrifar