Við höldum áfram að gera Ísland öruggara Þorbjörg Sigríður Gunnlaugsdóttir skrifar 14. febrúar 2026 07:31 Ríkisstjórnin tekur hvert skrefið á fætur öðru til að stemma stigu við glæpum í landinu. Skrefin eru misstór en öll skipta þau máli. Nýlega lagði ég fram frumvarp um breytingar á lögum um Schengen-upplýsingakerfið. Breytingin tryggir skilvirkt samstarf við önnur aðildarríki og Europol og veitir lögreglu aðgang að mikilvægum upplýsingum í rauntíma. Öryggi á landamærum er þar með aukið og stuðlað er að betri viðbragðsgetu gegn skipulagðri glæpastarfsemi og hryðjuverkum. Frumvarpið heimilar nefnilega skráningu upplýsinga um ríkisborgara þriðju ríkja (utan Evrópu) sem grunaðir eru um aðild að hryðjuverkum eða öðrum alvarlegum afbrotum. Mikilvægur liður í baráttunni gegn skipulagðri glæpastarfsemi Schengen-upplýsingakerfið gegnir lykilhlutverki þegar kemur að löggæslu- og öryggismálum og hefur kerfið löngum þótt einn af mikilvægustu þáttum Schengen-samstarfsins. Kerfið tryggir öryggi með miðlun upplýsinga milli ríkja, m.a. í þeim tilgangi að koma í veg fyrir og uppræta brotahópa. Það er notað af lögreglu, landamærayfirvöldum og stofnunum ESB, t.d. Europol, Eurojust og Frontex. Með breytingunum sem lagðar eru til í frumvarpi mínu verða upplýsingar um einstaklinga sem grunaðir eru um aðild að hryðjuverkum eða alvarlegum afbrotum aðgengilegar yfirvöldum í rauntíma. Breytingarnar eru þannig mikilvægur liður í baráttunni gegn skipulagðri glæpastarfsemi þar sem þær tryggja lögreglu aðgang að verðmætum upplýsingum, þá einkum við eftirlit á landamærum. Tvær nauðsynlegar breytingar Með frumvarpinu verður tveimur nýjum greinum bætt við lög um Schengen-upplýsingakerfið. Annars vegar verður heimilt að skrá einstaklinga sem eru grunaðir um aðild að alvarlegum glæpum í Schengen-upplýsingakerfið. Hins vegar að aðgerðir lögreglu og annarra yfirvalda verði leyfðar á grundvelli þeirra upplýsinga sem skráðar eru í kerfinu. Með þessu mun greiningargeta lögreglu eflast og henni gert betur kleift að sjá tengsl milli einstaklinga og brota og styður við sameiginlega löggæslusamvinnu milli Schengen-ríkja. Nýlegar aðgerðir íslensku lögreglunnar í samvinnu við önnur ríki og Europol þar sem fjölþjóðlegur brotahópur var upprættur sýna mikilvægi þess að evrópsk ríki vinni saman til að tryggja öryggi borgaranna. Höfundur er dómsmálaráðherra. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Þorbjörg S. Gunnlaugsdóttir Mest lesið Hver á arfinn? Gunnar Ármannsson Skoðun Í hvaða vitleysu erum við stödd? Ragnheiður Stephensen Skoðun Skuggamansal á Íslandi Sævar Þór Jónsson Skoðun Landsleikar RÚV! Sigurlín Margrét Sigurðardóttir Skoðun Grateful Dead á Sæbrautinni Júlíus Valsson Skoðun Skattlagning til velsældar Hannes Lúðvíksson Skoðun Baráttan er ekki búin Mordekaí Elí Esrason Skoðun Við erum ekki jafn ömurleg og við höldum Þorsteinn Tjörvi Sigurðsson Skoðun Til hamingju Reykjanesbær með leikskólana okkar Guðný Birna Guðmundsdóttir Skoðun Er Þórarinn Tyrfings nýja framtíð Vogs? Bergþóra Haralds Eiðsdóttir Skoðun Skoðun Skoðun Opið bréf til Húnboga Þórs Árnasonar Margrét Rut Eddudóttir skrifar Skoðun Hvar eru þingmenn NV-kjördæmis? Sigurður Páll Jónsson skrifar Skoðun Noregur styrkir EES – Ísland verður að fylgja Rögnvaldur Guðmundsson skrifar Skoðun Landsleikar RÚV! Sigurlín Margrét Sigurðardóttir skrifar Skoðun Við erum ekki jafn ömurleg og við höldum Þorsteinn Tjörvi Sigurðsson skrifar Skoðun Bjórinn sem slapp við suðurferðina Elís Pétur Elísson skrifar Skoðun Í hvaða vitleysu erum við stödd? Ragnheiður Stephensen skrifar Skoðun Skattlagning til velsældar Hannes Lúðvíksson skrifar Skoðun Baráttan er ekki búin Mordekaí Elí Esrason skrifar Skoðun Hver á arfinn? Gunnar Ármannsson skrifar Skoðun Að tala um dauðann er að tala um lífið Ingrid Kuhlman skrifar Skoðun Til hamingju Reykjanesbær með leikskólana okkar Guðný Birna Guðmundsdóttir skrifar Skoðun Skuggamansal á Íslandi Sævar Þór Jónsson skrifar Skoðun Grateful Dead á Sæbrautinni Júlíus Valsson skrifar Skoðun Þjóðarsjúkrahúsið seinkar Sigurður Sigurðsson skrifar Skoðun Er gervigreindin spegill mannkyns Kristján Logason skrifar Skoðun Er Þórarinn Tyrfings nýja framtíð Vogs? Bergþóra Haralds Eiðsdóttir skrifar Skoðun Tólf ára ákvað ég að gera bíó Arnar Benjamín Kristjánsson skrifar Skoðun Hvað segja gögnin í raun um ásakanir á hendur séra Friðriki Theódór S. Halldórsson skrifar Skoðun Það er sárt að tapa kosningum Heimir Már Pétursson skrifar Skoðun Er enn þess virði að leggja á sig langt háskólanám? Gunnar Alexander Ólafsson skrifar Skoðun Engin fjölskylda á að þurfa að standa ein Eydís Ásbjörnsdóttir skrifar Skoðun Þegar reglurnar gilda ekki jafnt Ágúst Karlsson skrifar Skoðun Utanríkisstefna án ábyrgðar? Erna Bjarnadóttir skrifar Skoðun Heiður hússins: Um kynferðisofbeldi í nánum samböndum Hrafnhildur Kjerúlf Sigmarsdóttir skrifar Skoðun PISA-skellur en hvað svo? Inga Sæland skrifar Skoðun Hver verndar velferð barna þegar náttúran blandar kynjunum? Jón Þór Ólafsson skrifar Skoðun Einhliða bergmálshellir og heimildir sem hrynja Lilja Benatov Hjartar skrifar Skoðun KEMUR TÓLFAN? Hilmar Jökull Stefánsson skrifar Skoðun Ábyrgðinni má ekki útvista til tækninnar Karen Ósk Nielsen Björnsdóttir skrifar Sjá meira
Ríkisstjórnin tekur hvert skrefið á fætur öðru til að stemma stigu við glæpum í landinu. Skrefin eru misstór en öll skipta þau máli. Nýlega lagði ég fram frumvarp um breytingar á lögum um Schengen-upplýsingakerfið. Breytingin tryggir skilvirkt samstarf við önnur aðildarríki og Europol og veitir lögreglu aðgang að mikilvægum upplýsingum í rauntíma. Öryggi á landamærum er þar með aukið og stuðlað er að betri viðbragðsgetu gegn skipulagðri glæpastarfsemi og hryðjuverkum. Frumvarpið heimilar nefnilega skráningu upplýsinga um ríkisborgara þriðju ríkja (utan Evrópu) sem grunaðir eru um aðild að hryðjuverkum eða öðrum alvarlegum afbrotum. Mikilvægur liður í baráttunni gegn skipulagðri glæpastarfsemi Schengen-upplýsingakerfið gegnir lykilhlutverki þegar kemur að löggæslu- og öryggismálum og hefur kerfið löngum þótt einn af mikilvægustu þáttum Schengen-samstarfsins. Kerfið tryggir öryggi með miðlun upplýsinga milli ríkja, m.a. í þeim tilgangi að koma í veg fyrir og uppræta brotahópa. Það er notað af lögreglu, landamærayfirvöldum og stofnunum ESB, t.d. Europol, Eurojust og Frontex. Með breytingunum sem lagðar eru til í frumvarpi mínu verða upplýsingar um einstaklinga sem grunaðir eru um aðild að hryðjuverkum eða alvarlegum afbrotum aðgengilegar yfirvöldum í rauntíma. Breytingarnar eru þannig mikilvægur liður í baráttunni gegn skipulagðri glæpastarfsemi þar sem þær tryggja lögreglu aðgang að verðmætum upplýsingum, þá einkum við eftirlit á landamærum. Tvær nauðsynlegar breytingar Með frumvarpinu verður tveimur nýjum greinum bætt við lög um Schengen-upplýsingakerfið. Annars vegar verður heimilt að skrá einstaklinga sem eru grunaðir um aðild að alvarlegum glæpum í Schengen-upplýsingakerfið. Hins vegar að aðgerðir lögreglu og annarra yfirvalda verði leyfðar á grundvelli þeirra upplýsinga sem skráðar eru í kerfinu. Með þessu mun greiningargeta lögreglu eflast og henni gert betur kleift að sjá tengsl milli einstaklinga og brota og styður við sameiginlega löggæslusamvinnu milli Schengen-ríkja. Nýlegar aðgerðir íslensku lögreglunnar í samvinnu við önnur ríki og Europol þar sem fjölþjóðlegur brotahópur var upprættur sýna mikilvægi þess að evrópsk ríki vinni saman til að tryggja öryggi borgaranna. Höfundur er dómsmálaráðherra.
Skoðun Heiður hússins: Um kynferðisofbeldi í nánum samböndum Hrafnhildur Kjerúlf Sigmarsdóttir skrifar