RESCALED Guðmundur Ingi Þóroddsson skrifar 16. febrúar 2026 11:01 Sögulegt skref verður tekið í íslenskum fangelsismálum í apríl næstkomandi en þá gengur Afstaða-réttindafélag formlega í evrópsku RESCALED-hreyfinguna og fær hingað til lands fulltrúa hennar til að hefja samtal við stjórnvöld um nýja sýn á fangelsi, sýn sem hefur þegar skilað árangri víða í Evrópu. Samhliða aðildinni mun Afstaða, í samstarfi við fulltrúa RESCALED, kynna fyrir stjórnvöldum hvernig hægt er að byggja upp fangelsiskerfi sem er bæði manneskjulegra og ódýrara en þau áform sem nú liggja á borðum um öryggisfangelsið að Stóra-Hrauni. Í dag er stefnt að því að ráðast í eitt stærsta innviðaverkefni fangelsiskerfisins frá upphafi, nýtt öryggisfangelsi að Stóra-Hrauni, með kostnað upp á tugi milljarða. Afstaða hefur nú þegar sent stjórnvöldum ítarlegt minnisblað þar sem bent er á að til séu ódýrari og árangursríkari leiðir. Öryggi skapast nefnilega ekki með hærri múrum heldur með litlum, sérhæfðum einingum og raunverulegum hvötum til breytinga, námi, vinnu, meðferð og stuðningi. Í slíkri nálgun er fangelsi ekki endapunktur heldur tímabundið úrræði til endurhæfingar. Stór fangelsi eru bæði dýr í byggingu og rekstri og skila oft verri niðurstöðum þegar kemur að endurkomutíðni. Í stað þess að setja alla undir sama þak er farsælla að leggja áherslu á 10-30 manna einingar sem eru tengdar beint við nærumhverfi samfélagsins, heilbrigðisþjónustu, menntakerfi, vinnumarkað og fjölskyldur. Afstaða hefur árum saman bent á sama, að íslensku fangelsin séu yfirfull, kerfið sé plástrað saman og að fjármunum sé fyrst og fremst varið í múra en ekki í nám og raunverulega endurhæfingu. Að ganga í RESCALED er því eðlilegt næsta skref, að tengja íslenskt umbótastarf við alþjóðlega hreyfingu með sömu markmið. Hvað er RESCALED? RESCALED er evrópsk umbótahreyfing sem sameinar fræðafólk, fagfólk, fanga- og aðstandendasamtök og stjórnvöld víða um álfuna í því markmiði að endurmóta fangelsi nútímasamfélaga. https://www.rescaled.org/ Markmiðin eru skýr: Draga úr endurkomutíðni með mannlegri og markvissari vistun í smærri einingum Auka raunverulegt öryggi með því að fleiri komi út með húsnæði, vinnu og tengsl við samfélagið Nota almannafé skynsamlega – minna í múra, meira í menntun og heilbrigðisþjónustu Ísland hefur lagaramma, vantar bara stefnuna Íslensk löggjöf stendur ekki í vegi fyrir RESCALED-nálgun. Lög um fullnustu refsinga nr. 15/2016 heimila fullnustu utan fangelsis, samninga við sérhæfðar stofnanir, rafrænt eftirlit og fjölbreytt úrræði sem geta tekið við af hefðbundnu fangelsi. Þar að auki er nám og starfsþjálfun sérstaklega nefnt sem hluti af fullnustu, og Afstaða hefur ítrekað bent á að menntun sé einn sterkasti þátturinn í að draga úr endurkomu. Í stuttu máli, við höfum lögin, við höfum dæmi frá Norðurlöndum, það sem vantar er pólitísk ákvörðun. Afstaða mun halda fast við þá kröfu sem félagið hefur þegar lagt fram, að hætta við öryggisfangelsið að Stóra-Hrauni í núverandi mynd og nýta þann sveigjanleika sem er í lögum til að byggja upp fangelsi framtíðarinnar, í þágu þeirra sem afplána, þeirra sem verða fyrir brotum og samfélagsins alls. Höfundur er formaður Afstöðu-réttindafélags. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Guðmundur Ingi Þóroddsson Mest lesið Í hvaða vitleysu erum við stödd? Ragnheiður Stephensen Skoðun Hver á arfinn? Gunnar Ármannsson Skoðun Landsleikar RÚV! Sigurlín Margrét Sigurðardóttir Skoðun Skuggamansal á Íslandi Sævar Þór Jónsson Skoðun Hvar eru þingmenn NV-kjördæmis? Sigurður Páll Jónsson Skoðun Opið bréf til Húnboga Þórs Árnasonar Margrét Rut Eddudóttir Skoðun Noregur styrkir EES – Ísland verður að fylgja Rögnvaldur Guðmundsson Skoðun Skattlagning til velsældar Hannes Lúðvíksson Skoðun Grateful Dead á Sæbrautinni Júlíus Valsson Skoðun Við erum ekki jafn ömurleg og við höldum Þorsteinn Tjörvi Sigurðsson Skoðun Skoðun Skoðun Bókasöfnin okkar Hrönn Soffíu Björgvinsdóttir skrifar Skoðun Skildi hugmynd Trumps vera “sleggjan” sem allir eru að leita af. Eggert Guðmundsson skrifar Skoðun Opið bréf til Húnboga Þórs Árnasonar Margrét Rut Eddudóttir skrifar Skoðun Hvar eru þingmenn NV-kjördæmis? Sigurður Páll Jónsson skrifar Skoðun Noregur styrkir EES – Ísland verður að fylgja Rögnvaldur Guðmundsson skrifar Skoðun Landsleikar RÚV! Sigurlín Margrét Sigurðardóttir skrifar Skoðun Við erum ekki jafn ömurleg og við höldum Þorsteinn Tjörvi Sigurðsson skrifar Skoðun Bjórinn sem slapp við suðurferðina Elís Pétur Elísson skrifar Skoðun Í hvaða vitleysu erum við stödd? Ragnheiður Stephensen skrifar Skoðun Skattlagning til velsældar Hannes Lúðvíksson skrifar Skoðun Baráttan er ekki búin Mordekaí Elí Esrason skrifar Skoðun Hver á arfinn? Gunnar Ármannsson skrifar Skoðun Að tala um dauðann er að tala um lífið Ingrid Kuhlman skrifar Skoðun Til hamingju Reykjanesbær með leikskólana okkar Guðný Birna Guðmundsdóttir skrifar Skoðun Skuggamansal á Íslandi Sævar Þór Jónsson skrifar Skoðun Grateful Dead á Sæbrautinni Júlíus Valsson skrifar Skoðun Þjóðarsjúkrahúsið seinkar Sigurður Sigurðsson skrifar Skoðun Er gervigreindin spegill mannkyns Kristján Logason skrifar Skoðun Er Þórarinn Tyrfings nýja framtíð Vogs? Bergþóra Haralds Eiðsdóttir skrifar Skoðun Tólf ára ákvað ég að gera bíó Arnar Benjamín Kristjánsson skrifar Skoðun Hvað segja gögnin í raun um ásakanir á hendur séra Friðriki Theódór S. Halldórsson skrifar Skoðun Það er sárt að tapa kosningum Heimir Már Pétursson skrifar Skoðun Er enn þess virði að leggja á sig langt háskólanám? Gunnar Alexander Ólafsson skrifar Skoðun Engin fjölskylda á að þurfa að standa ein Eydís Ásbjörnsdóttir skrifar Skoðun Þegar reglurnar gilda ekki jafnt Ágúst Karlsson skrifar Skoðun Utanríkisstefna án ábyrgðar? Erna Bjarnadóttir skrifar Skoðun Heiður hússins: Um kynferðisofbeldi í nánum samböndum Hrafnhildur Kjerúlf Sigmarsdóttir skrifar Skoðun PISA-skellur en hvað svo? Inga Sæland skrifar Skoðun Hver verndar velferð barna þegar náttúran blandar kynjunum? Jón Þór Ólafsson skrifar Skoðun Einhliða bergmálshellir og heimildir sem hrynja Lilja Benatov Hjartar skrifar Sjá meira
Skoðun Heiður hússins: Um kynferðisofbeldi í nánum samböndum Hrafnhildur Kjerúlf Sigmarsdóttir skrifar