Deilt um kjör Wolt-sendla Silja Rún Sigurbjörnsdóttir skrifar 18. febrúar 2026 00:09 ASÍ segir starfsemi Wolt byggða á gerviverktöku en Wolt neitar ásökununum. Samsett Deilur um stöðu og kjör sendla Wolt hafa vaknað eftir að fulltrúar ASÍ gagnrýndu harðlega starfsemi Wolt á Íslandi. ASÍ heldur því fram að viðskiptamódel fyrirtækisins grafi undan kjarasamningbundnum réttindum. Wolt hafnar ásökununum og segir útreikninga ASÍ ranga.
Karen Ósk Nielsen Björnsdóttir, lögfræðingur hjá Alþýðusambandi Íslands (ASÍ), og Saga Kjartansdóttir, sérfræðingur í vinnumarkaðsmálum hjá ASÍ, rituðu skoðanagrein á Vísi í morgun þar sem starfsemi Wolt er harðlega gagnrýnd. „Starfsemi Wolt og sambærilegra fyrirtækja hefur mætt harðri andstöðu verkalýðshreyfinga um allan heim. Módelið byggir á vinnuframlagi gerviverktaka sem sendast með matvæli og aðrar vörur á kjörum sem eru langt undir kjarasamningsbundnum lágmarkskjörum,“ segir í skoðanagreininni. Bent er á að ASÍ hafi reiknað út laun sendla á vegum Wolt á Íslandi og taka tillit til launatengdra gjalda, kostnaðar verktakans og annarra umsaminna réttinda. Gert er ráð fyrir 4800 krónum á klukkustund en þá eigi eftir að greiða iðgjald í lífeyrissjóð, tryggingagjald og virðisaukaskatt. Samkvæmt útreikningunum fá sendlar 55 prósent af lægstu launum kjarasamninga á dagvinnutíma og 31 prósent á yfirvinnutíma. Þeir fái þá ekki hefðbundin réttindi eins og veikindarétt eða uppsagnarfrest. „Þetta er „raunhagkerfið” sem Wolt boðar. Viljum við þessi samfélagslegu áhrif? Viljum við hverfa árhundrað aftur í tímann til þess þegar launafólk beið í ofvæni hvort það fengi vinnu þann daginn eða ekki?“ spyrja þær. „Wolt-sendlarnir vita ekki hvort þau fái verkefni á morgun, í næstu viku eða næsta mánuði eða hvert endurgjaldið verður. Þrátt fyrir fagurgala um „frelsi“ ráða þau engu um vinnuaðstæður sínar. Þetta er ekki sjálfstæði. Þetta er varnarleysi.“ Þær skora á Wolt að fara að kjarasamningum og tryggja sendlunum lágmarksréttindi. Þær skora einnig á frambjóðendur til sveitarstjórnarkosninga að taka afstöðu gegn undirboðum á vinnumarkaði en frambjóðendur Sjálfstæðisflokksins og Viðreisnar hyggjast mæta á opinn fund Wolt. Það ætlar einnig fulltrúi Hagkaupa að gera og skorar ASÍ fyrirtækið á að tryggja að allt starfsfólk, þar á meðal sendlar, búið við mannsæmandi kjör. Mynd ASÍ sé bjöguð Christian Kamhaug, upplýsingafulltrúi Wolt á Íslandi og í Noregi, segir í svargrein að fyrirtækið hafi alltaf gætt fullkomins gagnsæis og boðið ASÍ á viðburði á þeirra vegum. „Þá höfum við hjá Wolt höfum enn fremur verið opin gagnvart vinnumarkaðssamningum sem gætu náð yfir þennan nýja hluta hagkerfisins. Í þeim tilgangi höfum við m.a. hitt ASÍ, fyrst í maí 2023 til að kynna þeim viðskiptamódel okkar. Í kjölfar þess fundar buðum við þeim að kynna sér hvað við erum raunverulega að greiða sendlum en þau hafa aldrei þegið það boð okkar en velja frekar að reikna út bjagaða mynd sem hentar þeim,“ segir í svargrein Wolt. Hann bendir á að líkt og leigubílstjóri fái ekki greitt á meðan hann situr í bílnum sínum fyrir utan Leifsstöð fái verktakar ekki heldur greitt nema þegar þeir eru að sendast. Þrátt fyrir að viðskiptavinir greiði yfirleitt á milli fimm hundruð til fimmtán hundruð krónur fyrir sendingu fá sendlarnir að meðaltali 1720 fyrir hverja ferð. Meðaltímakaup þeirra sé því um sex þúsund krónur. Kjósa verktökuna umfram annað fyrirkomulag „ASÍ virðist skorta umboð frá vinnandi fólki í þessum málaflokki ef marka má endurteknar árásir sem byggja á endurnýttu efni sem löngu hefur verið hrakið. ASÍ byggir umboð sitt á hefðbundnu vinnumarkaðsmódeli sem hentar ekki umhverfi verkvangsvinnu og ekki virðist vera vilji hjá þeim né geta til að mæta þessum nýja hluta hagkerfisins,“ segir í svari Wolt. „Ef til vill ætti ASÍ að hugleiða af hverju verktakar eru ánægðir með þetta fyrirkomulag og kjósa það þrátt fyrir að þeim bjóðist þau kjör sem ASÍ segist tryggja þeim.“ ASÍ sé að skauta fram hjá nokkrum punktum og sé til að mynda að bera saman tvo ólíka hluti, annars vegar verktakagreiðslur og hins vegar hefðbundið tímakaup launafólks á föstum vöktum. Verktakarnir fái að velja sjálfir hvenær þeir eru skráðir inn og fá greitt fyrir virkni og sendingar frekar en fasta vinnutíma. Samkvæmt nýjustu könnun er meðaltíminn í slíkri vinnu hér á landi um tíu klukkustundir á viku. Þá sögðust 91 prósent verktaka Wolt á Íslandi kjósa verktökuna umfram annað fyrirkomulag.
ASÍ Kjaramál Heimsendingarþjónusta Mest lesið Rammagerðin leitar nauðasamninga Viðskipti innlent Bláa lónið eykur hlut sinn í þremur baðlónum Viðskipti innlent Sameinaður sjóður ætti rúma þúsund milljarða Viðskipti innlent Epli opnar nýja og glæsilega verslun í Smáralind Samstarf Tvær stöndugar fasteignasölur sameinast Viðskipti innlent Dóra Björt ráðin deildarstjóri Viðskipti innlent Hækkun á heilsugæslu auki verðbólgu í ágúst Viðskipti innlent Nýr kokteilbar opnaður á Hverfisgötu: „Okkur langaði bara að opna dyrnar sem fyrst“ Viðskipti innlent Kristinn V. Jóhannsson er látinn Viðskipti innlent Plantan kveður Norræna húsið: „Dæmið er ekki alveg að ganga upp“ Viðskipti innlent Fleiri fréttir Rammagerðin leitar nauðasamninga Sameinaður sjóður ætti rúma þúsund milljarða Bláa lónið eykur hlut sinn í þremur baðlónum Dóra Björt ráðin deildarstjóri Hækkun á heilsugæslu auki verðbólgu í ágúst Tvær stöndugar fasteignasölur sameinast Plantan kveður Norræna húsið: „Dæmið er ekki alveg að ganga upp“ Nýr kokteilbar opnaður á Hverfisgötu: „Okkur langaði bara að opna dyrnar sem fyrst“ Kristinn V. Jóhannsson er látinn Hugrún nýr markaðsstjóri Defend Iceland Kaupa allt hlutafé í Nicetravel Fluttu eitt prósent færri farþega en í júní á síðasta ári Fá AA- í einkunn Afkoma ríkisins neikvæð um 182 milljarða Neytendastofa tæklar bílastæðamálin Kristjana nýr framkvæmdastjóri Saffran Loka Te og kaffi á Suðurlandsbraut Eitt app fyrir ferðamenn til að skemmta sér og forðast hættur Of snemmt að draga fram heykvíslar Alvarlegt að forstjóri Samkeppniseftirlitsins taki undir með ASÍ og FÍB Fríverslunarsamningur EFTA og Víetnam í höfn Hægt að ráðstafa séreign í október frá og með 1. janúar Samkeppniseftirlitið hugsi yfir verðbreytingum olíufélaganna Drangar kaupa Brauð & Co Gul viðvörun hjá öllum og fjörutíu prósent á rauðu Mango opnar í Kringlunni Landsbankinn annast skráningu Styrkáss Má gefa börnunum sínum peninga? Vinna að því að fella niður kolefnisgjöld á strandsiglingar „Lukkuhjól“ Byko talið villandi fyrir neytendur Sjá meira
Nýr kokteilbar opnaður á Hverfisgötu: „Okkur langaði bara að opna dyrnar sem fyrst“ Viðskipti innlent
Nýr kokteilbar opnaður á Hverfisgötu: „Okkur langaði bara að opna dyrnar sem fyrst“ Viðskipti innlent