Undir pressu vegna tengsla við Epstein: „Ég get ekki rekið hann“ Valur Páll Eiríksson skrifar 18. febrúar 2026 11:00 Casey Wasserman er formaður skipulagsnefndar ÓL í Los Angeles 2028. Joe Scarnici/Getty Images for American Honda Casey Wasserman, yfirmaður skipulagsnefndar Ólympíuleikanna í Los Angeles 2028, sætir töluverðri pressu vegna tengsla við samverkakonu Jeffrey Epstein. Borgarstjóri L.A. hefur kallað eftir afsögn hans.
Tölvupóstar milli Wasserman og Ghislaine Maxwell frá árinu 2003 voru opinberuð í gögnum frá bandarískum stjórnvöldum sem birt voru örfáum dögum áður en Vetrarólympíuleikarnir í Mílanó og Cortina hófust. Alþjóðaólympíunefndin, IOC, hefur lítið viljað tjá sig um málið og segir framhald Wasserman í starfi liggja hjá bandarísku skipulagsnefndinni. Nefndin lýsti yfir stuðningi við Wasserman í síðustu viku. „Það gengur eðlilega á ýmsu í umræðunni en ég get ekki tjáð mig frekar. Þetta augljóslega mál sem liggur á borði stjórnar skipulagsnefndarinnar,“ sagði Mark Adams, talsmaður IOC, á blaðamannafundi í gær. Karen Bass, borgarstjóri Los Angeles, vill Wasserman á brott. Hún tjáði sig um málið í samtali við CNN. „Mér finnst hann eigi að segja af sér,“ sagði Bass. „En ég get ekki rekið hann.“ Wasserman hefur verið burðarás í undirbúningi komandi leika frá því að Los Angeles bauðst til að halda leikana árið 2015. Staða hans er aftur á móti völt eftir að nýleg gögn voru birt. Wasserman rekur umboðsskrifstofu vestanhafs og hefur vegna málsins misst þónokkra skjólstæðinga. Þar á meðal eru poppstjarnan Chappell Roan og fyrrum knattspyrnukonan Abby Wambach. Wasserman vinnur nú að því að selja téða umboðsskrifstofu.
Ólympíuleikar Ólympíuleikar 2028 í Los Angeles Mál Jeffrey Epstein Bandaríkin Mest lesið „Ég gef ekki kost á mér í næsta leik“ Fótbolti „Held að fólk átti sig ekki á því sem við vorum að gera í kvöld“ Handbolti City sekir: Trufluðu rannsókn og svindl upp á 140 milljarða Enski boltinn Einkunnir Íslands: Lúxus frá Andra Lucasi í Lúxemborg Fótbolti Slapp eftir að hafa tekið Brynjólf hálstaki: „Þetta er bara rautt“ Fótbolti Meistarataktar í Sevilla frá upphafi til enda Fótbolti Uppgjörið: Lúxemborg - Ísland 0-3 | Gott svar við döprum upphafsleik Fótbolti „Frá morgunmat fram á 90. mínútu“ Fótbolti Uppgjörið: KR - Stjarnan 94-87 | KR-ingar höfðu betur í sveiflukenndum leik Körfubolti „Get ekki beðið um mikið meira“ Fótbolti Fleiri fréttir Dagskráin í dag: Blikar í Evrópu og titilvörn Njarðvíkur hefst Slapp eftir að hafa tekið Brynjólf hálstaki: „Þetta er bara rautt“ „Þurfum að bæta varnarleikinn umtalsvert“ „Baráttan góð en margt sem við þurfum að gera betur“ „Held að fólk átti sig ekki á því sem við vorum að gera í kvöld“ Uppgjörið: Valur - Mors-Thy 39-28 | Þar lágu Danir í þvi Grindavík hóf tímabilið á stórsigri „Ég gef ekki kost á mér í næsta leik“ „Get ekki beðið um mikið meira“ Meistarataktar í Sevilla frá upphafi til enda „Langt síðan við unnum fótboltaleik“ Uppgjörið: KR - Stjarnan 94-87 | KR-ingar höfðu betur í sveiflukenndum leik „Frá morgunmat fram á 90. mínútu“ Tíu tékkar réðu ekki við Englendinga Uppgjörið: Lúxemborg - Ísland 0-3 | Gott svar við döprum upphafsleik Einkunnir Íslands: Lúxus frá Andra Lucasi í Lúxemborg Stressaður Arnar verði að vinna: „Er þetta of flókið?“ „Það er ekkert grín að skora fimm mörk í landsleik“ „Við ætlum bara að klára okkar og gera það sem við mögulega getum“ Uppgjörið: Ísland - Sviss 5-1| Draumurinn um EM lifir „Þýðir ekkert að væla yfir stöðunni“ Vandræðalegt viðtal við stjórnanda City Þakklátur Gylfi Þór byrjar í kvöld: „Núna er þetta öðruvísi“ Gylfi Þór kemur inn í byrjunarlið Íslands Harðorð yfirlýsing Manchester City Tjáir sig um City: „Íþróttalegt réttlæti var ekki til staðar“ City sekir: Trufluðu rannsókn og svindl upp á 140 milljarða Grænn Rúnar dró Grindavík Fundaði með Sir Alex um að spila á miðjunni með Keane 50 Íslendingar meðal 8.500 áhorfenda Sjá meira