Veljum vistvænar samgöngur Finnur Ricart Andrason skrifar 19. febrúar 2026 08:02 Þrátt fyrir endalaus loforð um Borgarlínu eru ennþá að minnsta kosti fimm ár í að fyrsta lota af sex verði tilbúinn. Ég vil standa vörð um Borgarlínu því það er sótt að þessu mikilvæga verkefni úr ýmsum áttum, en ég vil líka flýta henni. Almennileg Borgarlína er stærsta forsendan fyrir því að hægt sé að draga úr umferð á höfuðborgarsvæðinu og í leiðinni draga úr losun gróðurhúsalofttegunda og bæta loftgæði. Það er margfaldur ávinningur sem hlýst af því að vera með almennilegar almenningssamgöngur, m.a. fjárhagslegur ávinningur fyrir heimilin og borgina. En hvernig förum við að því að flýta uppbyggingu Borgarlínu? Jú með því að forgangsraða peningum rétt. Förum yfir nokkrar lykiltölur: Það kostar um 11 milljarða á ári að reka Strætó á höfuðborgarsvæðinu. Samgöngusáttmáli höfuðborgarsvæðisins gerir ráð fyrir um 40 milljörðum í göngu- og hjólastíga, 130 milljörðum í stofnvegi og 130 milljörðum í Borgarlínu. Áætlað er að Sundabraut muni kosta hátt í 200 milljarða. Ef okkur væri alvara um að fá Borgarlínu í gagnið eins hratt og við getum myndum við setja Sundabraut á ís og setja alla þessa milljarða í uppbyggingu hágæða almenningssamgangna. Hluti af þessari forgangsröðun fjármuna snýr að því að efla Strætó og styðja við virka samgöngumáta þar til Borgarlína verður tilbúin. Við þurfum að bæta leiðarkerfi, auka tíðni og fjölga sérakreinum fyrir Strætó og gera hann gjaldfrjálsan fyrir ungt fólk, námsmenn og eldri borgara. Samhliða því þurfum við að fjárfesta í öruggara og þéttara hjólastíganeti með tilraunaverkefnum um upphitaða hjóla- og göngustíga. Einnig væri hægt að lækka kostnað við viðhald á stofnvegum með því að taka gjald fyrir notkun nagladekkja í borginni. Nagladekk slíta vegunum okkar margfalt hraðar en venjuleg dekk, býr til loftmengun með tilheyrandi kostnaði í heilbrigðiskerfinu og löngu kominn tími til að við spornum við þessum vanda. Til að leysa samgönguvandann á höfuðborgarsvæðinu þurfum við að styðja við alla flóru mismunandi samgöngumáta og pass að öll púslin smelli saman. Þröngsýni í samgöngumálum skilar engu því það er best fyrir okkur öll, efnahagslega, félagslega og umhverfislega, ef fjölbreyttir og vistvænir samgöngumátar eru aðgengilegir sem flestum. Borgarlína snýst ekki um að þrengja að einkabílnum heldur um að bjóða fólki upp á raunverulegt valfrelsi sem verður til þess að bílum fækkar á götunum sem gerir það auðveldara fyrir fólk sem vill eða þarf að vera á bíl að komast leiða sinna. Almennilegar almenningssamgöngur gagnast öllum, ekki einungis þeim sem eru virkir notendur þeirra. Höfundur sækist eftir 1. sæti í forvali Vinstri grænna í Reykjavík. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Finnur Ricart Andrason Skoðun: Sveitarstjórnarkosningar 2026 Vinstri græn Mest lesið Hver á arfinn? Gunnar Ármannsson Skoðun Í hvaða vitleysu erum við stödd? Ragnheiður Stephensen Skoðun Landsleikar RÚV! Sigurlín Margrét Sigurðardóttir Skoðun Skuggamansal á Íslandi Sævar Þór Jónsson Skoðun Hvar eru þingmenn NV-kjördæmis? Sigurður Páll Jónsson Skoðun Opið bréf til Húnboga Þórs Árnasonar Margrét Rut Eddudóttir Skoðun Grateful Dead á Sæbrautinni Júlíus Valsson Skoðun Noregur styrkir EES – Ísland verður að fylgja Rögnvaldur Guðmundsson Skoðun Skattlagning til velsældar Hannes Lúðvíksson Skoðun Við erum ekki jafn ömurleg og við höldum Þorsteinn Tjörvi Sigurðsson Skoðun Skoðun Skoðun Skildi hugmynd Trumps vera “sleggjan” sem allir eru að leita af. Eggert Guðmundsson skrifar Skoðun Opið bréf til Húnboga Þórs Árnasonar Margrét Rut Eddudóttir skrifar Skoðun Hvar eru þingmenn NV-kjördæmis? Sigurður Páll Jónsson skrifar Skoðun Noregur styrkir EES – Ísland verður að fylgja Rögnvaldur Guðmundsson skrifar Skoðun Landsleikar RÚV! Sigurlín Margrét Sigurðardóttir skrifar Skoðun Við erum ekki jafn ömurleg og við höldum Þorsteinn Tjörvi Sigurðsson skrifar Skoðun Bjórinn sem slapp við suðurferðina Elís Pétur Elísson skrifar Skoðun Í hvaða vitleysu erum við stödd? Ragnheiður Stephensen skrifar Skoðun Skattlagning til velsældar Hannes Lúðvíksson skrifar Skoðun Baráttan er ekki búin Mordekaí Elí Esrason skrifar Skoðun Hver á arfinn? Gunnar Ármannsson skrifar Skoðun Að tala um dauðann er að tala um lífið Ingrid Kuhlman skrifar Skoðun Til hamingju Reykjanesbær með leikskólana okkar Guðný Birna Guðmundsdóttir skrifar Skoðun Skuggamansal á Íslandi Sævar Þór Jónsson skrifar Skoðun Grateful Dead á Sæbrautinni Júlíus Valsson skrifar Skoðun Þjóðarsjúkrahúsið seinkar Sigurður Sigurðsson skrifar Skoðun Er gervigreindin spegill mannkyns Kristján Logason skrifar Skoðun Er Þórarinn Tyrfings nýja framtíð Vogs? Bergþóra Haralds Eiðsdóttir skrifar Skoðun Tólf ára ákvað ég að gera bíó Arnar Benjamín Kristjánsson skrifar Skoðun Hvað segja gögnin í raun um ásakanir á hendur séra Friðriki Theódór S. Halldórsson skrifar Skoðun Það er sárt að tapa kosningum Heimir Már Pétursson skrifar Skoðun Er enn þess virði að leggja á sig langt háskólanám? Gunnar Alexander Ólafsson skrifar Skoðun Engin fjölskylda á að þurfa að standa ein Eydís Ásbjörnsdóttir skrifar Skoðun Þegar reglurnar gilda ekki jafnt Ágúst Karlsson skrifar Skoðun Utanríkisstefna án ábyrgðar? Erna Bjarnadóttir skrifar Skoðun Heiður hússins: Um kynferðisofbeldi í nánum samböndum Hrafnhildur Kjerúlf Sigmarsdóttir skrifar Skoðun PISA-skellur en hvað svo? Inga Sæland skrifar Skoðun Hver verndar velferð barna þegar náttúran blandar kynjunum? Jón Þór Ólafsson skrifar Skoðun Einhliða bergmálshellir og heimildir sem hrynja Lilja Benatov Hjartar skrifar Skoðun KEMUR TÓLFAN? Hilmar Jökull Stefánsson skrifar Sjá meira
Skoðun Heiður hússins: Um kynferðisofbeldi í nánum samböndum Hrafnhildur Kjerúlf Sigmarsdóttir skrifar