Ofurlaun fyrir leikskólakennara Ólöf Hugrún Valdimarsdóttir skrifar 19. febrúar 2026 12:15 Verandi foreldri barns á leikskólaaldri hef ég skoðun á leikskólamálum í Reykjavík og sérstaklega á kjörum og aðbúnaði leikskólakennara sem og annars starfsfólks leikskóla. Nýverið hef ég tekið þátt í aðlögun míns eigins barn á leikskóla. Tvisvar reyndar, á innan við ári, þar sem við fengum fyrst inni í leikskóla á Kjalarnesi. Við fjölskyldan búum reyndar alls ekki á Kjalarnesi heldur búum við í Árbæ og sækjum vinnu í Kópavog og Hlíðarnar. Reiknast mér til að við foreldrarnir höfum keyrt um 16 þúsund kílómetra bara til að koma drengnum okkar í leikskólann á Kjalarnesi þann tíma sem hann dvaldi þar og við hjálpuðum aldeilis við að gera samgöngur í borginni þægilegri með öllum þessum akstri, eða þannig. Nú erum við hinsvegar komin með leikskólapláss í hverfinu og munurinn á því að losna við þennan mikla akstur daglega er gífurlegur og birtist í formi aukinna lífsgæða, því tíminn er víst ein okkar dýrmætasta auðlind. Við erum reyndar ekki með barnið okkar á leikskólanum sem er í götunni okkar, því sá leikskóli hefur verið lokaður vegna framkvæmda síðan árið 2022. Sjálf er ég kennaramenntuð, starfa reyndar á öðrum vettvangi menntunar en við kennslu, en þessi grein snýst ekki um mig heldur starfsfólk leikskóla, menntað og ófaglært. Leikskólakennarar taka á móti börnunum okkar, því dýrmætasta sem foreldrar eiga, og leggja sig fram um að sinna þeim vel. Leikskólaárin skipta gríðarlegu máli fyrir þroska og velferð barna. Gæði leikskólastarfs hefur mikil áhrif á hegðun og líðan barna og enginn kennari kemur jafn snemma að mótun einstaklingsins og leikskólakennarinn. Af hverju eru leikskólakennarar ekki með hæstu laun kennarastéttarinnar? Þegar við skoðum ábyrgðina sem fylgir starfi leikskólakennara og áhrif þess á framtíð barna, ætti það að vera sjálfsagt að þeir séu metnir til jafns, ef ekki hærra, en aðrir kennarar í menntakerfinu. Breyting á lögum um leyfisbréf kennara tók gildi 1. janúar 2020. Breytingin fól í sér að eitt leyfisbréf skyldi vera fyrir kennara, þvert á skólastig leik-, grunn- og framhaldsskóla, í stað þriggja aðskildra leyfisbréfa. Þessi breyting varð til þess að einhver hreyfing hefur orðið á kennurum á milli skólastiga en gjarnan bara í eina átt. Leikskólakennarar hafa fært sig yfir í grunnskólana og grunnskólakennarar yfir í framhaldsskólana. Ég veit ekki til þess að margir hafi farið hina áttina á milli skólastiganna. Ef miðað er við núverandi kjarasamninga og meðaltöl þá liggur fyrir að framhaldsskólakennararfá hæstu heildarlaun kennarastéttarinnar. Grunnskólakennarar eru í miðjunni og leikskólakennarar eru svo með lægstu laun samkvæmt kjarasamningum. Þessum píramída þyrfti nauðsynlega að snúa á hvolf. Að sjálfsögðu er mikilvægt að kennarastéttin í heild sinni búi við góð kjör en ég vil taka leikskólakennarana sérstaklega út fyrir sviga því staðreyndin er sú að það er viðvarandi mönnunarvandi í leikskólum landsins. Búa þarf þannig um hnútana að kjör leikskólakennara séu samkeppnishæf við kjör framhaldsskólakennara og jafnvel gerð mun eftirsóknarverðari. Það er mikið rætt um að leysa húsnæðisvandamál þegar rætt er um umbótatillögur eða lausnir í vandamálum leikskólastigsins. Vissulega þarf að lagfæra húsnæði sem er komið til ára sinna eða undirlagt af myglu en mér finnst gjarnan vanta í umræðuna hvernig leysa má vanda manneklunnar. Það er hægt að laga allt húsnæði landsins en ekki verður hægt að halda uppi góðu leikskólastarfi ef aðalfólkið vantar, þ.e. starfsfólk leikskólanna og þá sérstaklega menntaða leikskólakennara. Ef leikskólakennarar fengju betri laun og vinnuaðstæður, myndi það laða fleiri hæfa einstaklinga að starfinu, auka fagmennsku og draga úr starfsmannaveltu. Það myndi minnka álag á leikskólakennara og annað starfsfólk leikskóla, sem og álag á fjölskyldur. Þetta skilar sér margfalt til samfélagsins. Hærri laun leikskólakennara eru ekki sokkinn kostnaður; þau eru fjárfesting í framtíð þjóðarinnar, því afleidd áhrif stöðunnar eins og hún er í dag eru svo miklu dýrari fyrir samfélagið þegar upp er staðið. Höfundur er deildarfulltrúi og verkefnastjóri við listkennsludeild Listaháskóla Íslands. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Leikskólar Reykjavík Kjaramál Mest lesið Gleðilegan dag læsis Auður Soffíu Björgvinsdóttir Skoðun Við vissum að þetta myndi gerast Íris E. Gísladóttir Skoðun Hjartaendurhæfing er fjárfesting Kristín E. Hólmgeirsdóttir,María Barbara Árnadóttir Skoðun Betri gögn, minni stjórnsýsla? Karl Steinar Óskarsson Skoðun Fjárfestum í heilsu – Alþjóðlegur dagur sjúkraþjálfunar Gunnlaugur Már Briem Skoðun Engin miskunn hjá Reykjavíkurborg Kolbrún Áslaugar Baldursdóttir Skoðun Stækkum kökuna í stað þess að sneiða hana þynnra Rannveig Grétarsdóttir Skoðun Hvenær hættum við að vera þjóð? Jón Pétur Zimsen Skoðun Örvæntingafullir karlar Ebba Margrét Magnúsdóttir Skoðun Hvaða gervigreind og skýjaþjónustur mega opinberir aðilar nota? Karl Thoroddsen Skoðun Skoðun Skoðun Allir ósáttir við PISA – en hvað er hægt að gera? Fanný Gunnarsdóttir skrifar Skoðun Örvæntingafullir karlar Ebba Margrét Magnúsdóttir skrifar Skoðun Endurreisa þarf Kennaraháskólann Jón Bjarnason skrifar Skoðun Loksins úr mínus í plús Daði Már Kristófersson skrifar Skoðun Hreyfing skiptir sköpum – fyrir og eftir heilablóðfall Guðbjörg Þóra Andrésdóttir skrifar Skoðun Við vissum að þetta myndi gerast Íris E. Gísladóttir skrifar Skoðun Betri gögn, minni stjórnsýsla? Karl Steinar Óskarsson skrifar Skoðun Eru tómstundir allra? Margrét Júlía Rafnsdóttir skrifar Skoðun Öryggisnet í 90 ár! Unnur Sverrisdóttir skrifar Skoðun Þrautseigja í framlínunni Sigríður Björk Þormar skrifar Skoðun Hjartaendurhæfing er fjárfesting Kristín E. Hólmgeirsdóttir,María Barbara Árnadóttir skrifar Skoðun Hvaða gervigreind og skýjaþjónustur mega opinberir aðilar nota? Karl Thoroddsen skrifar Skoðun Hvenær hættum við að vera þjóð? Jón Pétur Zimsen skrifar Skoðun Hver ertu þegar yfirmaðurinn fer út úr herberginu? Valerio Gargiulo skrifar Skoðun Fjárfestum í heilsu – Alþjóðlegur dagur sjúkraþjálfunar Gunnlaugur Már Briem skrifar Skoðun Varnir frá 2019, ógnir frá 2026 Sigvaldi Einarsson skrifar Skoðun Hvað varð um það að vilja betri heim? Indriði Þröstur Gunnlaugsson skrifar Skoðun Sjálfbærni í heimi glötunar Kristján Logason skrifar Skoðun Ert þú kannski frábær í ofbeldisforvörnum barna? Alfa Dröfn Jóhannsdóttir skrifar Skoðun Bókun 35, ESA og stjórnarskrá Íslands — hvenær verður EES samningurinn stjórnarskrárlega ólýðræðislegur? Eggert Guðmundsson skrifar Skoðun Gleðilegan dag læsis Auður Soffíu Björgvinsdóttir skrifar Skoðun Engin miskunn hjá Reykjavíkurborg Kolbrún Áslaugar Baldursdóttir skrifar Skoðun Brjóstagjöf er svoddan streð… Íris Erlingsdóttir skrifar Skoðun Stækkum kökuna í stað þess að sneiða hana þynnra Rannveig Grétarsdóttir skrifar Skoðun Er þetta ásættanleg frammistaða íslenskrar stjórnsýslu? Þorsteinn Narfason skrifar Skoðun Forsjálni því þetta reddast ekki Gunnar Hersveinn skrifar Skoðun Flokkur fólksins og fjárlögin Sigurjón Þórðarson skrifar Skoðun Svargrein við grein Hauks Arnþórssonar Jón Sigurgeirsson skrifar Skoðun Sjálfstæðisflokkurinn og Bókun 35. Fullveldi eftir hentugleikum? Júlíus Valsson skrifar Skoðun Hvar er náungakærleikurinn? Steindór J. Erlingsson skrifar Sjá meira
Skoðun Bókun 35, ESA og stjórnarskrá Íslands — hvenær verður EES samningurinn stjórnarskrárlega ólýðræðislegur? Eggert Guðmundsson skrifar