Frá einni ofurbombu til annarrar Magnús Jochum Pálsson skrifar 20. febrúar 2026 10:49 Romain var með Dua Lipa og er nú byrjaður með Emily Ratajkowski. Bandaríska fyrirsætan Emily Ratajkowski fann ástina í örmum fransk-gríska leikstjórans Romain Gavras og hefur frumsýnt sambandið á miðlunum. Gavras deitaði poppstjörnuna Dua Lipa árið 2023 og söngkonuna Ritu Ora þar áður.
Ratajkowski tilkynnti sambandið með sex mynda myndaveislu á Instagram í gær. Á fyrstu myndinni sést Romain taka utan um Emily og kyssa hana, á annarri mynd stilla þau sér upp hvort í sínu lagi á snæviþöktum götum New York-borgar og svo eru nokkrar persónulegar myndir af kósýheitum. Emily og Romain sáust fyrst saman opinberlega í nóvember á síðasta ári þar sem þau kysstust úti á gangstétt í New York. Tíu ára aldursmunur er á parinu, Emily er fædd 1991 en Romain árið 1981. Snjór, kósí og knús. Ofurfyrirsæta og menningarbarn Emily steig sín fyrstu skref í fyrirsætubransanum árið 2012 og vakti síðan heimsathygli ári síðar fyrir leik sinn í tónlistarmyndbandinu við umdeilda lagið „Blurred Lines“ með Robin Thicke, TI og Pharrell Williams. Hún hefur síðan þá gengið tískupallana fyrir mörg stærstu tískufyrirtæki heims og er gjarnan sett í hóp nýrrar kynslóðar ofurfyrirsæta. Hún fór út í kvikmyndaleik í spennutryllinum Gone Girl (2014), hefur leikið í þónokkrum myndum og verður í nýrri seríu Lenu Dunham. Emily gaf út esseyjusafnið My Body út árið 2021 og leit þar yfir farin veg í bransanum. Romain Gavras er sonur gríska leikstjórans Costa Gavras og franska kvikmyndaframleiðandans Michèle Ray-Gavras. Romain vakti fyrst athygli þegar hann leikstýrði tónlistarmyndböndunum við lögin „Born Free“ og „Bad Girls“ með M.I.A. og enn meiri þegar hann leikstýrði myndbandinu við „No Church in the Wild“ með Jay-Z og Kanye West. Síðan þá hefur hann leikstýrt markaðsherferðum fyrir stór tískumerki og kvikmyndunum Athena (2022) og Sacrifice (2025). Romain sló sér upp með poppstjörnunni Dua Lipa árið 2023 og sáust þau meðal annars saman á rauða dreglinum og á tískuvikunni í París. Þar áður var hann í sambandi með tónlistarkonunni Ritu Ora. Emily var gift kvikmyndaframleiðandanum Sebastian Bear-McClard,frá 2018 til 2022 og á með honum fjögurra ára soninn Sly. Frá því þau skildu hefur hún verið orðuð við Harry Styles, Brad Pitt, Eric André og Pete Davidson. View this post on Instagram A post shared by Emily Ratajkowski (@emrata)
Ástin og lífið Bandaríkin Mest lesið Megas er látinn Lífið Næringarfræðingi brá þegar Simmi Vill tók upp nestið Lífið Guðrún Sóley gengin út Lífið „Einn af fáum lögfræðingum sem heldur upp á siðfræðina“ Lífið Lauren Bennett látin 37 ára að aldri Lífið Harry Styles setti heimsmet Lífið Hvarf vegna athyglisbrests á hæsta stigi Tónlist Skvísur og töffarar fögnuðu með Elvari Tónlist Það allra besta að gráta í gufu Lífið Listabarn á leiðinni Lífið Fleiri fréttir Megas er látinn Guðrún Sóley gengin út „Einn af fáum lögfræðingum sem heldur upp á siðfræðina“ Harry Styles setti heimsmet Næringarfræðingi brá þegar Simmi Vill tók upp nestið Það allra besta að gráta í gufu Lauren Bennett látin 37 ára að aldri Listabarn á leiðinni Kenningin um útskiptin miklu sem umbreytti vestrænum stjórnmálum Snæfríður og Högni selja útsýnisíbúð í 101 Baðst afsökunar á að hafa sagst vilja ríða Minogue Pétur Jóhann á von á öðru barnabarni Birtu fyrstu myndina af Mette-Marit eftir aðgerðina Stjörnulífið: Bátsferðir og brjóst Rauðhærðasti Íslendingurinn fundinn Stjörnum prýddur gestalisti Swift og Kelce Krakkatía vikunnar: Tindur, stríð og letibikkja Melabúðin fagnar sjötíu árum „Þú ert greinilega manneskja sem hefur strögglað mikið andlega“ „Það er gaman að gera erfiða hluti“ Taylor Swift og Travis Kelce eru gift Eins og að vera með kláða sem hverfur aldrei „Erum enn að ná utan um allt sem gerðist“ Fréttatía vikunnar: EBU, aftaka og Love Island „Klukkan er fimm einhvers staðar“ „Þegar þið eignist ykkar fyrsta barn, má ég þá fá það?“ Snæddi með furstanum af Mónakó Kyssti ekki Maguire heldur tottaði rafrettu Allir og amma þeirra á Ítalíu Brúðkaupshátíð Taylor Swift og Travis Kelce hafin Sjá meira