Grafalvarlegt að berklasmit hafi greinst Lillý Valgerður Pétursdóttir skrifar 20. febrúar 2026 13:30 Sigríður Dóra Magnúsdóttir forstjóri Heilsugæslu höfuðborgarsvæðisins segir að fleiri starfsmenn verði skimaðir. Vísir/Sigurjón Forstjóri Heilsugæslu höfuðborgarsvæðisins segir það grafalvarlegt mál að tveir starfsmenn heilsugæslunnar hafi greinst með berklasmit við skimun. Ráðist verður í frekari skimanir í framhaldinu.
Um er að ræða tvo starfsmenn Heilsugæslunnar Miðbæ samkvæmt tilkynningu frá Heilsugæslu höfuðborgarsvæðisins. Sigríður Dóra Magnúsdóttir forstjóri Heilsugæslu höfuðborgarsvæðisins segir að skjólstæðingar stöðvarinnar hafi ekki verið útsettir fyrir smiti í samskiptum við starfsmennina. Áður höfðu átta starfsmenn bráðamóttöku Landspítalans greinst með berkla. „Þegar að greindist berklasmit og kom í ljós að það voru einstaklingar smitaðir úti í samfélaginu og þeir leita náttúrulega töluvert til heilsugæslunnar, þá ákváðum við að kanna hvernig ástandið væri hjá okkar starfsfólki. Við byrjuðum þá á þeim starfsstöðvum þar sem voru mestar líkur á að viðkomandi hefði verið útsettur eða starfsstöðvum þar sem er mjög erfið aðstaða og mikil þrengsli.“ Hún segir að ráðist verði í frekari skimanir í framhaldinu. „Í okkar huga er þetta náttúrulega bara grafalvarlegt mál og við viljum náttúrulega fyrst og fremst núna bara hugsa um þetta starfsfólk sem tók berklasmit. Sem betur fer eru þessir starfsmenn einkennalausir og hraustir, en það þarf náttúrulega, þeir þurfa að fara í gegnum þetta ferli, að meta stöðuna og fara væntanlega á lyfjameðferð. Þannig að við erum náttúrulega fyrst og fremst að huga að þeim starfsmönnum og síðan þá öðru starfsfólki hérna á stöðinni en við munum fara víðar. Við munum náttúrulega skoða aðstæður á öllum okkar starfsstöðvum.“ Mikilvægt sé að hafa í huga að starfsfólkið sé ekki smitandi þó að það hafi greinst með berklasmit. „Fólk getur haldið áfram að leita eftir okkar þjónustu og mun fá hana alveg óhindrað og við bara hugum að starfsfólkinu og tryggjum að aðbúnaðurinn sé sem bestur en skjólstæðingum er ekki hætta búin.“ Þá þurfi að skoða aðstæður starfsfólksins í framhaldinu. „Það er svo sem vel vitað að það eru mjög víða hjá okkur þrengsli og húsnæðismálin eru mjög víða ekki í nógu góðu ástandi og það hefur gengið mjög hægt að fá úrbætur. Við munum setja allan þunga í það núna að tryggja okkar starfsfólki viðunandi starfsaðstöðu. Þannig að við getum til dæmis sinnt sýkingavörnum.“
Heilsugæsla Heilbrigðismál Berklar Mest lesið Átta í bílunum fjórum: Sumir alvarlega slasaðir Innlent Illa brugðið en heill á húfi Innlent Unglingar bundnir og skildir eftir við heimili Innlent Taka sig upp á ógnarhraða og smella beltinu af Innlent Sláandi hugmyndir íslenskra karla um ofbeldi Innlent Íbúar gáttaðir eftir ofrukkanir frá Vegagerðinni Innlent Lýsa eftir Halldóri Inga Innlent Heiða í veikindaleyfi Innlent Laug að Morgunblaðinu um nýjan KFC-stað Innlent Viðvörunarmerki fyrir íslenskt samfélag Innlent Fleiri fréttir Viðbúnaður á slóðum Vítisengla Katla skelfur Salma nýr formaður ungra Miðflokksmanna „Okkur finnst við vera undanskilin“ Viðvörunarmerki fyrir íslenskt samfélag Taka sig upp á ógnarhraða og smella beltinu af Átta í bílunum fjórum: Sumir alvarlega slasaðir Smella af sér bílbeltunum á ógnarhraða og breytingar í Kerlingarfjöllum Gul viðvörun eftir stóra skriðu Illa brugðið en heill á húfi Handtekinn grunaður um að beita piparúða Lýsa eftir Halldóri Inga „Of margar sögur af vondri meðferð“ Halda hækkunum innan við 2,5 prósent og hætta við lækkun systkinaafsláttar Íbúar gáttaðir eftir ofrukkanir frá Vegagerðinni Aurskriða féll á veginn og honum lokað Starfsmaður Reykjavíkurborgar smitaðist af nóróveiru Heiða í veikindaleyfi Fagfélögin kalla eftir heimild til að slíta kjarasamningum Unglingar bundnir og skildir eftir við heimili Fara fram á 16 ár yfir meintum morðingja Allir sautján frjálsir ferða sinna „Við erum óþolinmóð“ Minni gjaldahækkanir kosti ríkissjóð 2,5 milljarða Þetta eru stæðin sem borgin hefur endurheimt Segir ágreininginn í Landsvirkjun ekki snúast um arðgreiðslur Geri málið tortryggilegt að neita að svara „Við höfum séð mikla aukningu á því á Íslandi“ Íslensk skólastúlka varð fyrir táragasi í París Laug að Morgunblaðinu um nýjan KFC-stað Sjá meira